Fréttablaðið - 02.06.2017, Page 22

Fréttablaðið - 02.06.2017, Page 22
Tandoori kjúklingur með naanbrauði og raita sósu. Tandoori kjúlli á indverska vísu Eva Laufey töfrar fram kræsingar í þátt- um sínum Í eldhúsi Evu, á Stöð 2 Tandoori kjúklingur 700-800 g kjúklingakjöt, helst læri 2 hvítlauksrif 4 cm engifer, ferskt 200 g ab-mjólk 1 tsk. paprika 1 tsk. garam masala 1 tsk. salt ½ tsk. pipar 1 tsk. kóríander 1 tsk. túrmerik Rífið niður engifer og hvítlauk í skál, hellið ólífuolíunni saman við og hrærið vel. Bætið krydd- inu saman við og hrærið. Því næst fer ab-mjólkin eða hreint jógúrt út í og öllu blandað vel saman. Skerið rákir í kjúklinga- kjötið áður en þið setjið kjötið út í marineringuna.Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í ísskáp í nokkrar klukkustundir, best yfir nótt. Hitið grillpönnu eða útigrillið, takið kjúklingakjötið úr marineringunni og grillið á mjög heitri pönnu eða grilli í 5-7 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Saxið niður ferskan kóríander og sáldrið yfir kjúklinginn áður en hann er borinn fram. Naanbrauð 150 ml volgt vatn 200 g hveiti 2 tsk. þurrger 1 tsk. hunang 1 tsk. salt 3 msk. ab-mjólk 1 msk. ólífuolía 1 msk. brætt smjör 1 msk. ólífuolía 1 hvítlauksrif ½ tsk. salt 1 tsk. smátt söxuð steinselja Blandið vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki yfir skálina og um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerið tilbúið. Bætið því næst hveitinu, saltinu, ab-mjólkinni og ólífu- olíunni saman við og hrærið vel saman. Stráið smá hveiti á borð og hnoðið þar til deigið verður samfellt og fínt, leyfið deiginu að hefast í klukkustund. Skerið deigið í litla bita og mótið kökur, þær eiga að vera fremur þunnar. Steikið á heitri pönnu á hvorri hlið í 1-2 mínútur. Blandið saman í skál, smjöri, olíu, salti, steinselju og hvítlauk og penslið á naan-brauðin þegar þau eru nýsteikt. Það gefur þeim dásam- legan hvítlaukskeim! Má auðvitað sleppa því ef þið eruð ekki hrifin af hvítlauk. Raita sósa 250 g ab-mjólk ½ agúrka Salt og pipar 2 msk. smátt saxður kóríander Saxið hráefnin afar smátt og blandið öllu vel saman í skál, geymið helst í kæli í smá stund áður en þið berið sósuna fram. Í eldhúsi Evu Eva Laufey Hermannsdóttir ÍSLENSKT ungnaut akjöt 100% HVER ER INN UPPÁHALDS BORGARI? ENGINN VENJULEGUR HAMBORGARI 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . j ú n Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 0 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F E -6 D 5 4 1 C F E -6 C 1 8 1 C F E -6 A D C 1 C F E -6 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.