Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 4
Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra ákvað að ekki yrði af sameiningu á rekstri Fjöl­ brautaskólans við Ármúla og Tækniskólans að svo stöddu. Nauðsynlegt væri að gera ítarlegri athuganir á stöðu framhaldsskólanna í landinu og þróun í starfsemi þeirra á næstu árum meðal annars vegna fyrir­ sjáanlegra breytinga á nemenda­ fjölda vegna styttingar náms til stúdentsprófs, stærðar árganga á næstu árum, námsframboðs og annarra þátta. Guðný Halldórsdóttir Laxness leikstjóri sagði ofsóknir íslenskra skatta­ yfirvalda gegn föður hennar ná út yfir gröf og dauða. Erfingjar nóbels­ skáldsins hafa deilt við skattayfirvöld síðastliðin fjögur ár vegna skipta á dánarbúi hans. Í erfðafjárskýrslu erfingja var höfundarétturinn metinn á 500 þúsund krónur. Matsmaður sýslumanns telur verðmætið nema 28 milljónum króna. Adolf Ingi Erlingsson fv. íþróttafréttamaður á að fá 2,2 milljón­ ir króna í bætur frá RÚV vegna eineltis. Þetta úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur. Adolf Inga var sagt upp störfum hjá Ríkisútvarpinu árið 2013. Hann sagði þetta fullnaðar­ sigur fyrir sig. Dóm ur inn hefði einnig komist að þeirri niður­ stöðu að upp sögn in hefði verið ólög leg. Þrjú í fréttum Skólar, skattur og sigur Tölur vikunnar 02.07.2017 – 08.07.2017 20% var hlutfall erlendra barna af heildarfjölda leikskóla- barna í Reykja- vík í október síðast- liðnum. 90 milljóna bónusgreiðslu á mann að meðaltali fengu fjórir stjórnendur eignar- haldsfélagsins LBI, sem heldur utan um eignir gamla Landsbankans. 314 milljónir króna var launakostn- aður gjald- eyriseftirlits Seðlabankans í fyrra. Starfs- mennirnir voru 23. 1,8 milljónir rúmar er áætlaður árlegur rekstrarkostnaður á hvern nema í grunnskóla reknum af sveitarfélögum. 569 rekstrarleyfi til fólksflutninga voru í gildi í síðasta mánuði en þau voru 389 í árslok 2014. 70% aukning varð í sölu hjólhýsa á fyrsta helm- ingi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. viÐSkiPTi Íslenskir kaupmenn hafa sannarlega fundið fyrir áhrifum af innkomu bandaríska smásölurisans Costco á hérlendan smásölumarkað en misjafnt er hve mikil áhrifin hafa verið. Velta nær allra matvöruversl­ ana á höfuðborgarsvæðinu hefur dregist saman eftir að Costco opn­ aði verslun sína í Garðabæ undir lok maímánaðar, mest hjá stóru mat­ vörukeðjunum, en viðmælendur Fréttablaðsins telja að áhrif Costco muni fara dvínandi eftir því sem líður á árið. Mesti skellurinn hafi verið í júní. Í nýju verðmati hagfræðideildar Landsbankans er bent á að í ljósi vaxandi einkaneyslu hér á landi sé ekki hægt að ganga út frá því að velta Costco dragist öll frá veltu þeirra verslana sem fyrir eru á mark­ aðinum. Þó leiki ekki vafi á því að Costco hafi tekið til sín stóran hluta af markaðinum. Aukin samkeppni og sterkari króna, sem hefur þrýst verði á dagvöru niður, hafi einnig haft áhrif á rekstur verslananna. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá varð meiri samdráttur í sölu í verslunum Haga í júní en fjárfestar bjuggust við. Dróst salan saman um 8,5 prósent í krónum talið í mánuð­ inum að teknu tilliti til aflagðrar starfsemi. „Við höfum fundið fyrir áhrif­ unum af komu Costco, eins og allir aðrir, en ekki í eins miklum mæli og stóru verslanakeðjurnar,“ segir Eiríkur Sigurðsson, eigandi mat­ vöruverslunarinnar Víðis. Costco sé risastórt félag og mikil viðbót við íslenska smásölumarkað­ inn og því sé ekki skrýtið að önnur félög á markaðinum finni fyrir áhrifunum. Eiríkur segir að sala í Víði hafi dregist örlítið saman í júnímánuði en samdrátturinn sé þó ekki neitt í líkingu við samdráttinn Mesti skellurinn vegna komu Costco hafi verið í júnímánuði Velta langflestra matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu hefur dregist saman eftir að Costco opnaði versl- un sína í Kauptúni í Garðabæ í maí. Samdrátturinn er meiri en margir bjuggust við í upphafi. Þó er talið að áhrifin af innreið smásölurisans hingað til lands muni fara dvínandi eftir því sem lengra líður á árið. Innkoma bandaríska risans Costco á íslenskan markað hefur valdið titringi á meðal heild- og smásala. Verslun Costco var opnuð 23. maí síðastliðinn í Kauptúni í Garðabæ. FréttablaðIð/Eyþór Lækka verðmat sitt á Högum Hagfræðideild Landsbankans hefur lækkað verðmat sitt á bréfum í Högum úr 49,7 krónum á hlut í 43,2 krónur. Nýtt verðmat deildarinnar, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er aftur á móti þrettán prósentum yfir dagslokagengi smásölufélagsins í Kauphöllinni í gær sem var 38,2 krónur á hlut. Sérfræðingar hagfræði- deildarinnar segja að sala Haga hafi valdið vonbrigðum undan- farið ár. Benda þeir á að í fyrsta heila mánuðinum eftir opnun Costco hér á landi hafi sala Haga dregist saman um 8,5 prósent. Á sama tíma jókst einkaneysla í landinu. Telja þeir að eitthvað muni draga úr áhrifunum eftir því sem líður á árið, en að þau verði engu að síður töluverð. Er það mat þeirra að tekjur Haga muni dragast saman um 6,1 prósent á yfirstandandi rekstrarári. Það hefur mikið verið talað um jarðarberin í Costco. Við höfum selt þessi nákvæm- legu sömu ber í fimm eða næstum sex ár. Þannig að það er í sjálfu sér engin nýjung. Jón Gerald Sullen- berger, kaup- maður í Kosti hjá stóru verslanakeðjunum. „Þetta er bara eins og allt annað: Þú verður að standa þig í sam­ keppninni og gera eins vel og þú getur,“ segir hann. „Við áttum ágætis júnímánuð og hann var í samræmi við áætl­ anir okkar,“ segir Jón Björnsson, forstjóri Festar, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Krónunnar, Elko og Kjarvals. Jón Gerald Sullenberger, eigandi matvöruverslunarinnar Kosts, segir ljóst að allar verslanir hafi fundið fyrir áhrifunum af komu Costco. Kostur sé þar engin undantekning. „Það er ekki við öðru að búast þegar markaðurinn hér á landi er ekki stærri en þetta,“ segir hann. Jón Gerald segir að Kostur hafi skapað sér sérstöðu á markaðinum með því að leggja mikla áherslu á amerískar vörur. „Við höldum okkar sérstöðu og vonum að með því að sinna viðskiptavininum haldi hann áfram að koma til okkar.“ Verslunin hafi gripið til ýmissa aðgerða til þess að bregðast við breyttu samkeppnisumhverfi. „Við höfum til dæmis dregið úr starfs­ mannahaldi og minnkað launa­ kostnað, sem er mjög dýr. Við höfum einnig farið að bjóða upp á minni pakkningar og aukið vöruúrval, því það er mjög takmarkað hjá Costco, sér í lagi í matvörunni. Við leggjum líka mikla áherslu á amerískar vörur og teljum okkur auk þess vera leið­ andi í því að bjóða upp á ferskasta grænmetið og ferskustu ávextina,“ segir Jón Gerald og tekur dæmi: „Það hefur mikið verið talað um jarðarberin í Costco. Við höfum selt þessi nákvæmlegu sömu ber í fimm eða næstum sex ár. Þannig að það er í sjálfu sér engin nýjung.“ kristinningi@frettabladid.is ÞýSkaland Fundur leiðtoga G20­ ríkjanna hófst í Hamborg í Þýska­ landi í gær. Var þar samankomið valdamesta fólk heims. Fátt vakti þó meiri athygli en fyrsti fundur Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Vlad imírs Pútín Rússlandsforseta. Forsetarnir hafa hælt hvor öðrum undanfarin misseri sem og skotið hvor á annan. Þá rannsakar banda­ ríska alríkislögreglan nú hvort Rúss­ ar hafi átt samskipti við háttsetta aðila í forsetaframboði Trumps og haft áhrif á kosningarnar. Trump neitaði að svara spurningu blaðamanns um meint áhrif Rússa á kosningarnar fyrir fundinn í gær en sagði: „Við hlökkum mikið til þess að sjá eitthvað jákvætt gerast á milli Rússlands og Bandaríkjanna.“ Þegar forsetarnir hittust sagði Trump það heiður að hitta Pútín. Þá svaraði Rússinn: „Það er sönn ánægja að hitta þig í eigin persónu og ég vona að fundur okkar verði árang­ ursríkur. Samtöl í síma duga aldrei.“ Ræddu forsetarnir meðal ann­ ars um utanríkismál en þar greinir þá einna helst á. Til að mynda er afstaða ríkjanna til styrjaldanna í Sýrlandi og Úkraínu afar ólík. – þea Allra augu beinast að Trump og Pútín Handabands trumps og Pútíns var beðið með eftirvænt- ingu enda hefur heimsbyggðin óvenju mikinn áhuga á handa- böndum hins fyrrnefnda. NordICPHotos/ aFP KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Það er sönn ánægja að hitta þig í eigin persónu og ég vona að fundur okkar verði árangursríkur. Samtöl í síma duga aldrei. 8 . j ú l í 2 0 1 7 l a u G a r d a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a Ð i Ð 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -1 4 6 8 1 D 4 8 -1 3 2 C 1 D 4 8 -1 1 F 0 1 D 4 8 -1 0 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.