Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 8
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir
hatrammar deilur á milli Katara og
fjögurra annarra arabaríkja, það er
Sádi-Arabíu, Bareins, Egyptalands
og Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna. Hafa ríkin fjögur beitt
viðskiptaþvingunum og ferða-
bönnum gegn Katörum. Þá hafa
sendiherrar ríkjanna verið kallaðir
heim frá Katar og skorið hefur verið
á stjórnmálasamband við ríkið.
Sádi-Arabar fara fyrir bandalag-
inu gegn Katörum. Segja þeir helstu
ástæðuna fyrir aðgerðum sínum þá
að Katarar fjármagni hryðjuverka-
samtök og brjóti þar með samkomu-
lag Persaflóaríkja. Þá gagnrýna Sádi-
Arabar jafnframt tengsl Katara og
katörsku sjónvarpsstöðvarinnar Al
Jazeera við stjórnvöld í Íran. Katarar
segjast aftur á móti hafa aðstoðað
Bandaríkin í stríðinu gegn hryðju-
verkum, einkum ISIS.
Undir lok júnímánaðar sendu ríkin
fjögur Katörum lista með þrettán
kröfum sem Katarar áttu að uppfylla
ef þeir vildu fá viðskiptaþvingunum
aflétt. Því neituðu Katarar í vikunni.
Áhrifin óljós
„Við eigum sjálfstæða sjóði sem
geyma nærri þrefalda landsfram-
leiðslu Katars, við eigum gjaldeyris-
forða seðlabankans,“ sagði Ali Sharif
al-Emadi, fjármálaráðherra Katars,
við The Times í vikunni. Sagðist
hann þá ekki hafa áhyggjur af við-
skiptabanninu. Katarar ættu einfald-
lega nógu mikla peninga til þess að
það skipti ekki máli.
„Lánshæfi Bareins og Egyptalands
er í ruslflokki. Ef þú lítur til Sádi-
Arabíu þá sérðu að þeir eiga í mikl-
um fjárhagsörðugleikum. Hvergi á
svæðinu er meiri hagvöxtur en hjá
okkur,“ sagði al-Emadi. Benti hann
á að hagvöxtur í Katar væri nærri
helmingi meiri en í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, þar sem
næstmestur hagvöxtur er á svæðinu.
En þótt fjármálaráðherrann sé
fullviss um að Katarar þurfi ekk-
ert að óttast er óhjákvæmilegt að
vandamál fylgi viðskiptaþvingunum
nágrannaríkjanna. Greindi Washing-
ton Post til að mynda frá því að átta-
tíu prósent allra matvæla í Katar séu
fengin frá nágrannaríkjunum.
Til að sporna gegn skorti á mat-
vælum hafa Katarar leitað til Tyrkja
og Írana. Hafa Íranar nú þegar sent
flugvélar, fullar af ávöxtum og græn-
meti, til Katars og hyggjast Tyrkir
gera slíkt hið sama.
Gera nýjar kröfur
Seint á fimmtudag barst tilkynning
frá utanríkisráðherrum ríkjanna
fjögurra. Hétu þeir því að grípa til
allra tiltækra ráða til að „standa
vörð um réttindi ríkjanna og öryggi
og jafnvægi á svæðinu“. Kenndu þeir
Katörum um að reyna að spilla fyrir
og grafa undan öryggi Persaflóaríkja.
Í tilkynningunni segir að ríkin
fjögur líti nú á áður gerðar kröfur
sem ógildar og er búist við því að
nýjar og strangari kröfur verði gerðar
til Katara á næstunni. Er því ljóst að
afar stirt er á milli ríkjanna og ekki
er útlit fyrir að deilan leysist í bráð.
Á mánudag mun Rex Tillerson,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
ferðast til Kúveits til að reyna sitt
besta til að koma á sáttum. Kúveit
hefur staðið á milli Katara og
ríkjanna fjögurra í hlutverki sátta-
semjara undanfarnar vikur.
Emírinn orðinn þjóðhetja
„Við munum streyma út á götu til
að berjast fyrir hann,“ sagði hinn
32 ára gamli verkfræðingur Ahmed
al-Kuwari í samtali við Reuters í
gær. Vísaði hann þar til Tamim bin
Hamad al-Thani, emírsins af Katar.
Emírinn er orðinn eins konar
þjóðhetja í undanförnum átökum
og líta fjölmargir Katarar á hann
sem verndara landsins gegn ofríki
Sádi-Araba. Í katörskum fjölmiðlum
er fjallað um að þúsundir skrái sig
í herinn og að Katarar skjóti fast á
Sádi-Araba á samfélagsmiðlum.
Og fyrir utan eitt húsa fjölskyldu
emírsins í höfuðborginni Doha
safnast fólk saman til að skrifa
hvatningarorð á risavaxna mynd af
emírnum.
Katarar standa þétt að baki emírnum
Fjögur arabaríki krefjast mikils af Katörum og beita þá viðskiptaþvingunum. Eru Katarar sagðir fjármagna hryðjuverkasamtök. Áhrif
þvingananna eru óljós en áttatíu prósent matvæla í Katar koma frá ríkjunum fjórum. Emírinn í Katar er orðinn þjóðhetja.
Kröfurnar þrettán
n Loka Al Jazeera og
tengdum stöðvum
n Loka öðrum fjöl-
miðlum sem ríkið
fjármagnar
n Loka herstöð Tyrkja
í Katar og hætta
hernaðarsamstarfi
við Tyrkland í Katar
n Draga úr sam-
skiptum við Íran
n Reka íranska her-
menn frá Katar
n Skera á tengsl við
hryðjuverkasamtök
á borð við Bræðra-
lag múslima, ISIS,
al-Kaída og Hez-
bollah
n Hætta að skýla
hryðjuverka-
mönnum í Katar
n Hætta afskiptum
af innanríkismálum
ríkjanna fjögurra
n Hætta að gefa
eftirlýstum ríkis-
borgurum ríkjanna
katarskan ríkis-
borgararétt
n Svipta þá eftirlýstu
ríkisborgararétti
n Greiða skaðabætur
fyrir ofangreind
brot
n Sæta eftirliti næstu
tíu ár
n Samræma stjórn-
málastefnu ríkisins
við stefnu ann-
arra Persaflóa- og
arabaríkja
Hvatningarorð skrifuð á risavaxna mynd af emírnum Tamim bin Hamad al-
Thani. NordicpHoTos/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
PLÁSS FYRIR ALLA
Volkswagen Caddy Beach
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Fimm manna fjölskyldubíllinn Volkswagen Caddy Beach er rúmgóður
og býður upp á öll helstu þægindi fyrir fjölskyldu á ferðinni.
Caddy Beach má auðveldlega breyta í lítið sumarhús
með fortjaldi. Hver einasti dagur er dásamleg upplifun,
hvar sem þú ert.
Kynningarverð 3.990.000 kr.
Verðlistaverð 4.670.000 kr.
Við látum framtíðina rætast. Volkswagen
- Svefnaðstöðu fyrir 2
- Fellanleg borð og stóla
- Geymsluhólf
- Fortjald og gluggatjöld
- Kæli og vasaljós
- Leðurklætt aðgerðastýri
- Margmiðlunartæki m. snertiskjá
- Bluetooth
- Hraðastilli
Í kynningarverði fylgir Beach
tilboðspakkinn sem inniheldur:
Til afhendingar strax!
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R8 f R é t t i R ∙ f R é t t A B l A ð i ð
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
8
-3
B
E
8
1
D
4
8
-3
A
A
C
1
D
4
8
-3
9
7
0
1
D
4
8
-3
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K