Fréttablaðið - 08.07.2017, Side 16
farnar vikur. Fjölmargir hafa lagt
leið sína að vatninu til að njóta þar
útiveru í fallegu umhverfi. Aðstaða
við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði er
stórbætt en skógræktin hefur lagt
stíga við vatnið þannig að hægt er
að ganga hringinn í kring. Í víkinni
eru bekkir, grill og salernisaðstaða.
Gróin leiksvæði í Mosfellsbæ
Stekkjarflöt og Ullarnesbrekkur eru
góðir áfangastaðir fyrir barnafjöl-
skyldur um helgar. Leiksvæðið á
Stekkjarflöt er rúmt og skemmtilegt
og þar er einnig hægt að grilla. Ævin-
týragarðurinn sem er í Ullarnes-
brekkum er fyrir alla fjölskylduna,
hlaðinn spennandi leiktækjum sem
skátafélagið Mosverjar setti upp. Þar
er um að ræða ýmis klifur- og þrauta-
tæki ásamt veglegum hlaupaketti
sem hægt er að sveifla sér í. Einnig er
klifurnet í miðjum garðinum, nálægt
íþróttavellinum, sem er vinsælt
meðal yngri kynslóðarinnar.
Ylströndin í Garðabæ
Það er ekki bara í Nauthólsvík sem
er hægt að sóla sig á strönd því í Sjá-
landshverfi í Garðabæ er ylströnd
sem Garðbæingar nýta vel á góð-
viðrisdögum.
Rómantík í kirkjugarði
Stöku ferðamannahópar liðast í
gegnum Hólavallakirkjugarð en
annars er garðurinn friðsæll og
fáfarinn. Þar má mæla með róman-
tískum göngutúr sem endar á bekk
með nestisbita. Í garðinum er fal-
legur gróður og sögur á hverju strái.
Um helgina, af hverju ekki að …
Slökun og Skemmtun
„Ég er að undirbúa mig fyrir
Reykjavíkurmaraþon. Ætli ég
reimi ekki á mig hlaupaskóna.
Ég ætla að halda matarboð og
skála við Erlu vinkonu mína sem
fagnar þrítugsafmæli í kvöld. Á
morgun ætla ég að eyða tíma
með dóttur minni og plata ná-
granna til þess að hjálpa mér að
setja upp trampólín í garðinum
og vinna því að ég er að leggja
lokahönd á förðunarkafla fyrir
næsta Glamour-tímarit,“ segir
Harpa Káradóttir.
Smálönd jafnaðarmanna
„Við fjölskyldan höfum
eytt sumarfríinu í Smá-
löndum Svíþjóðar og
ráðgerum að eyða föstu-
deginum með fjölskyldu
og vinum, sem dvelja í
þessari Mekka jafnaðar-
manna. Á laugardeg-
inum er heimferð til
Íslands, og þá er planið að renna í Húnavatns-
sýsluna, á ættarmót. Það rennur örlítil Blanda
í mínum æðum. Á sunnudeginum á ég síðan
fund með með Jóni Gunnarssyni, samgöngu-
og byggðamálaráðherra,“ segir Pétur Markan
bæjarstjóri.
farðu
Með börnunum á
Litla Sirkus. Barna-
sýningu fyrir börn
undir fimm ára
aldri á Klambratúni
klukkan 12 á sunnu-
dag.
leStu
Pétur Markan mælir
með lestri bókarinnar
Fátækt fólk eftir
Tryggva Emilsson.
„Það er okkur öllum
hollt að rifja upp
reglulega
hvaðan við
komum
og fyrir
hverju við
berj-
umst.“
HluStaðu
Ásgeir Trausti heldur einstaka
tónleika ásamt hljómsveit sinni
í Félagsheimilinu
á Hvammstanga
í kvöld, laugar-
dagskvöld. Hann
er á æskuslóðum
því hann bjó
þar ungur
um tíma
og hefur
sérstakt
dálæti á
staðnum.
Víðáttan á Geldinganesi
Þeim sem þrá að vera í algjörum
friði fyrir ferðamönnum og vilja
teygja úr sér á fáförnum en fögrum
slóðum má ráðleggja gönguferð á
Geldingarnes. Útsýnið er fallegt yfir
borgina og þegar farið er yfir eiðið
yfir á nesið sjálft má sunnanmegin
príla í yfirgefnu skipsflaki.
Gróinn blómagarður
Farðu með börnin eða barna-
börnin í Grundargarð. Lítinn en
vinalegan almenningsgarð við
Grundargerði í Smáíbúðahverfinu
í Reykjavík. Garðurinn var opn-
aður árið 1973 og þar er til dæmis
að finna fallegan blómagarð með
steinbeðum og nýlegt leiksvæði
fyrir börn.
Blak og grill í Heiðmörk
Þótt Heiðmörk sé stærsta útivistar-
svæði í nágrenni Reykjavíkur er
það því miður lítið nýtt og mun
stærra en marga grunar. Þar er
að finna ótrúlega fjölbreytt svæði
til útivistar. Sérstaklega má mæla
með Furulundi. Þetta er fjölskyldu-
lundur búinn leiktækjum, blakvelli
og grillaðstöðu. Þar eru líka bíla-
Vannýttar
útivistarperlur
Þegar gengið er yfir eiðið blasir við þetta yfirgefna skipsflak sem gaman er að skoða og príla í. FRéttaBlaðið/VilHelM
Grundargerði í Smáíbúðahverfinu er
virkilega fallegur garður.
Ylströndin í Garðabæ er sífellt betur
nýtt á góðviðrisdögum þó að margir
eigi eflaust eftir að heimsækja hana.
Furulundur í Heiðmörk er virkilega
spennandi útivistarsvæði.
Hólavallakirkjugarður er róman-
tískur. FRéttaBlaðið/ValGaRð
stæði og salerni. Inn af Furulundi
er Dropinn, áningarstaður með
grilli, borðum og bekkjum.
Sílaveiðar og tennis í Breiðholti
Auðvitað nýta Breiðhyltingar vel
útivistarsvæðið í miðju Seljahverfi.
Öðrum kemur svæðið skemmti-
lega á óvart. Þar er manngerð
settjörn, Seljatjörn, og í kringum
hana er vinsælt leiksvæði barna.
Í garðinum er lystihús og vistvæn
leiktæki fyrir börn sem finnst þó
allra skemmtilegast að veiða síli í
tjörninni.
Í Breiðholtinu er einnig stór
almenningsgarður á milli Austur-
bergs og Vesturbergs. Þar er til að
mynda tennisvöllur fyrir áhuga-
sama.
Góð aðstaða við Hvaleyrarvatn
Það er búið að vera mikið líf og
fjör við Hvaleyrarvatn undan-
Víða á stórhöfuðborg-
arsvæðinu er að finna
skemmtileg útivistar-
svæði. Sum hver eru
nýtt af íbúum í næsta
nágrenni, önnur af
fáum.
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R16 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
helgin
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
8
-2
3
3
8
1
D
4
8
-2
1
F
C
1
D
4
8
-2
0
C
0
1
D
4
8
-1
F
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K