Fréttablaðið - 08.07.2017, Qupperneq 20
kominn tími á það,“ segir Glódís
ákveðin.
„Við erum með frábærar stelpur
en þær missa auðvitað áhugann ef
þær fá ekki pláss í landsliðinu. Það
vantar betri vettvang fyrir þessar
ungu og bráðefnilegu, setja þeim
markmið. Um leið og þú ert búin
með U19 þá þarf eitthvað að taka
við. Það er of fjarlægt markmið að
komast í landsliðið eftir U19 og þá
er hætt við því að stelpur gefist upp.
Það þarf að koma í veg fyrir þetta,“
segir Glódís og Gunnhildur Yrsa og
Hallbera taka undir.
Fínt fyrir kynin að spila saman
Stelpur þurfa stundum að spila
drengjamegin í sumum liðum lands-
ins. Hvað finnst ykkur um það? „Mér
finnst ekki endilega neikvætt að
stelpur þurfi að æfa með strákum.
En það er kannski ekki gott ef ástæð-
an er sú að það eru einfaldlega ekki
nógu margar stelpur að æfa til þess
að það sé hægt að halda úti stelpna-
flokki,“ segir Hallbera. „Ég held að
það væri mjög gaman ef það væri
hægt að blanda þessu saman þó það
væri nóg af stelpum. Að leyfa þeim
að spila með. Ég held það sé gott
fyrir stelpur að spila með strákum
og öfugt.“
„Já, tek undir þetta, alveg upp
í fjórða flokk,“ bætir Glódís við.
„Þetta ætti að vera svolítið frjálsara.“
„Já, þau yngri eru nefnilega bara
ótrúlega svipuð og það er fínt fyrir
kynin að spila saman,“ segir Gunn-
hildur Yrsa.
„En ég tek það fram að auðvitað er
það ekki gott ef það er eina úrræðið
í boði að æfa með strákum,“ segir
Hallbera.
Tiltrú skiptir öllu
Fá stelpur jafn færa og áhugasama
þjálfara og strákar í yngri flokkum?
„Ég var með mjög áhugasaman þjálf-
ara í yngri flokkum,“ segir Glódís.
„Hann var með mér upp alla yngri
flokka í HK. Ég fékk gott atlæti.“
„Ég fékk líka góða þjálfara, það var
lagt mikið upp úr því í Stjörnunni,“
segir Gunnhildur Yrsa.
„Ég man ekki eftir því að þetta
hafi verið vandamál hjá mér, en ég
skipti mjög oft um þjálfara. En það
getur verið að þetta sé vandamál
sums staðar,“ segir Hallbera.
„Í dag finnst mér metnaður fyrir
því að hafa menntaða þjálfara og
lið leggi mikla áherslu á það,“ segir
Gunnhildur Yrsa.
„Minn þjálfari breytti viðhorfi
mínu,“ segir Glódís. „Ég var ekkert
frábær leikmaður í fimmta flokki.
Þjálfarinn fékk mig til að trúa því
að ég hefði hæfileika og gæti unnið
úr þeim.“
Gunnhildur Yrsa segir sömu sögu.
„Ég lenti líka í því þegar ég var fjór-
tán ára að þá voru allar stelpur að
hætta. Þjálfarinn tók mig til hliðar
og sagði mér að hann ætlaði ekki
að gefast upp á mér. Hann ætlaði
að láta mig halda áfram. Þá hugsar
maður til þess sem aðrir sjá í manni.
Þegar mann sjálfan vantar tiltrú.
Hún hélt mér í fótboltanum. Hún
var alls ekki að pína mig en fékk mig
til að átta mig á hæfileikum mínum
og að ég ætti að leggja rækt við þá.“
„Það er ótrúlega mikilvægt að
finna þessa trú. Því fyrr því betra. Ef
einhver hefur trú á þér þá leggur þú
meira á þig,“ segir Glódís.
Himinn og haf á milli launa
Þjálfarar ykkar sögðu á síðasta ári að
þótt nokkrar í liðinu hefðu það mjög
gott væru leikmenn meðal ykkar
sem ættu ekki fyrir mat í síðustu
viku hvers mánaðar. Eruð þið ekki
á góðum launum? „Almennt séð
eru konur langt, langt á eftir karl-
mönnum þegar kemur að fótbolta,“
segir Hallbera. „Enn sem komið er
þá eru minni tekjur af kvennabolt-
anum. Núna síðustu ár hafa fleiri
leikmenn náð góðum samningum.
Ég held að flestar sem eru úti núna
komist vel af. Það hefur hins vegar
ekki alltaf verið þannig,“ segir Hall-
bera og Glódís tekur undir. „Í saman-
burði við strákana er himinn og haf
á milli. Við erum ekki að draga inn
jafn mikið af tekjum fyrir klúbbinn.
En það eru að koma fleiri styrktarað-
ilar og stærri klúbbar farnir að taka
þátt. Þetta er á uppleið,“ segir Glódís.
Annað atriði sem þjálfarar ykkar
nefndu sem dæmi voru glæsibif-
reiðar sem U23 eru á meðan stelp-
urnar keyra um á Volkswagen Polo.
„Já, það er hluti af þessu sem við
vorum að ræða áðan. Kvennabolt-
inn er ekki kominn næstum því jafn
langt og karlaboltinn. Ef þú spáir í
það, þá er þetta ekki gömul íþrótt,
ekki miðað við karlaboltann. Þetta
er undir áhorfendum komið. Það er
ekki langt síðan íslenska kvenna-
landsliðið var bara lagt niður,“ segir
Hallbera.
Er bylting handan við hornið?
„Mér finnst eins og það sé ótrúlega
mikið að gerast akkúrat núna,“ segir
Gunnhildur Yrsa.
„Maður sér það eins og þegar við
vorum að spila gegn Brasilíu að þá
sláum við vallarmetið. Bara svona
hlutir eru ómetanlegir. Öll athygli
skiptir líka öllu máli og verður til
þess að kvennaboltinn vex,“ bætir
hún við.
Kvenfyrirmyndir skipta máli
„Áður voru fótboltakonur ekki sýni-
legar í samfélaginu,“ heldur Gunn-
hildur Yrsa áfram.
„Ungar stelpur verða að sjá hvað
er hægt að afreka sem fótboltakona.
Ekki bara að það séu fótboltakarlar.
Bara það að sjá að Hallbera er úti að
spila og að spila með landsliðinu.
Að hún er er atvinnufótboltakona,
það skiptir máli. Þegar ég var yngri
þá var ekki mikið af fyrirmyndum.
Ég fór ung á kvennaleik í Banda-
ríkjunum og þá kom íslensk knatt-
spyrnukona og gaf mér miða á leik.
Þetta breytti lífi mínu. Þessu atviki
mun ég aldrei gleyma. Ég vildi verða
eins og hún. Svona litlir hlutir geta
breytt miklu.“
Glódís tekur undir með Gunn-
hildi Yrsu. „Kvenfyrirmyndirnar
skipta miklu máli. Þegar ég var í
yngri flokki var ég að spila með
systur Kötu Jóns. Kata var oft að
horfa á leiki þegar ég var að spila
og það voru svo sannarlega best
spiluðu leikirnir þegar hún var að
horfa. Bara það að vita af henni ýtti
við einhverju innra með manni. Ein-
hverri löngun.“
Efnilegar stúlkur í aukavinnu
Þær eru allar sammála um það að
þótt kvennaboltinn vaxi þá sé það
ennþá þannig að ungar stúlkur
þurfi að hafa miklu meira fyrir því
að stunda fótbolta en strákar. „Þetta
er staðreynd. Í stóru liðunum þegar
góðir strákar eru hæfileikaríkir fá
þeir samning og einhverja peninga.
Á meðan efnilegur stelpurnar þurfa
að fara í vinnu til að halda sér uppi.
Hættan er sú að ef þær eru í auka-
vinnu með boltanum, þá kannski
missa þær áhugann, þreytast,“ segir
Glódís sem segist sjálf hafa verið
heppin hvað þetta varðar. Hún
stundaði ekki mikla aukavinnu ung
með boltanum.
Hallbera tekur undir. „Já, þetta er
óumdeilanlegt og stundum er bara
fáránlegt að hugsa til þess hversu
mikið maður hefur verið að gera
með boltanum. Vinkonurnar spyrja
alltaf, sleppir þú ekki bara æfingu?
Nei! Gleymdu því! svarar maður þá,“
segir Hallbera. „Margar okkar eru í
skóla, hafa verið að vinna meðfram
æfingum alla tíð. Einhverjar eru líka
með börn, þetta er auðvitað mikil
vinna, við höfum meira fyrir þessu
en strákarnir,“ segir Hallbera.
„Þannig er það almennt í gegnum
þetta allt,“ segir Glódís.
„Það er óhætt að segja að stelpur
leggi miklu meira á sig við að sam-
tvinna þetta einhvern veginn. Það
taka allir undir það,“ segir Hallbera.
„Auðvitað er hægt að segja að við
sem komumst í gegnum þetta séum
sterkari. En það má líka spyrja sig,
hvað með hinar sem gáfust upp?
Hefðu þær ekki getað orðið góðar
fótboltakonur?“ Spyr Gunnhildur
Yrsa.
Hvernig breytist þetta? „Þetta er
barátta. Því meiri árangri sem við
náum, því fleiri fylgja okkur. Því
fljótar breytist þetta. Þetta veltur
allt á áhorfendum. Áhuga fólks, að
við sitjum við sama borð í umfjöllun
fjölmiða. Áhugi styrktaraðila skiptir
máli og það veltur allt á áhuga fólks
og árangri okkar,“ segir Gunnhildur
Yrsa.
„Þetta er allt annað núna. Við
höfum unnið fyrir þessu. Við fáum
kannski ekki jafn mikið og strák-
arnir myndu fá en við fáum alltaf
eitthvað og meira og meira,“ segir
Glódís.
„Við viljum verða fyrirmyndir.
Viljum að ungar stúlkur sjái fram-
tíðina í okkur,“ bætir hún við.
„Síðustu ár hefur margt breyst til
þess að svo geti orðið,“ segir Hall-
bera.
Góð mæting í Hollandi
Eruð þið sáttar við þá umfjöllun sem
þið fáið í fjölmiðlum? „Já, sérstaklega
landsliðið,“ segir Hallbera. „Það var
ekki góð umfjöllun um boltann
í Pepsi-deildinni heima. Hún var
sorglega léleg en síðustu tvö sumur
hefur hún verið mjög góð. Núna í
ár myndi ég segja að umfjöllun um
kvennaboltann hafi verið mjög góð
og það er ánægjulegt. Skiptir ótrú-
lega miklu máli.“
Skiptir máli að gagnrýna aðstæður
stelpna í boltanum? „Það skiptir
máli. Það gerist ekkert ef maður
þegir á því. Við höfum skoðun á
þessu. Við gagnrýnum helst með
því að standa okkur vel. Það er ekki
hægt að horfa fram hjá okkur,“ segir
Glódís.
Og það er allt útlit fyrir það að það
verði fjöldamæting, að það verði
10% Íslendinga á vellinum? „Jú, jú,
fjölskyldan mín mætir,“ segir Gunn-
hildur Yrsa og hlær.
„Við höfum meira fyrir þessu en strákarnir,“ segir Hallbera um aðstöðumun kynjanna í fótbolta. FréTTablaðið/Ernir
↣
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R20 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
8
-0
A
8
8
1
D
4
8
-0
9
4
C
1
D
4
8
-0
8
1
0
1
D
4
8
-0
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K