Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 28
Álagsprófunum Rannsóknar-stofu byggingariðnaðarins á Fibra húsinu var að ljúka á
dögunum. Húsið stóðst þær tífalt,“
segir Regin Grímsson, frumkvöðull
og stofnandi Fibra, einingahúsa úr
trefjaplasti.
„Ég hef búið til báta úr trefjaplasti
frá 1977 og setti bátaverksmiðju á
fót á Sauðárkróki fyrir nokkrum
árum. Þar er steinullarverksmiðjan
og sú hugmynd fæðist í kollinum
á mér að búa til íbúðarhús úr
einingum, steyptum úr trefjaplasti,
með kjarna úr steinull. Verkefnið
vann samkeppni um viðskipta-
hugmynd í sveitarfélaginu og
vann einnig samkeppni um bestu
hugmyndina í sjónvarpsþáttunum
Toppstöðin á RÚV. Í framhaldinu
hlaut verkefnið styrk frá Rannís og
nú höfum við sett á fót verkstæði í
Vogum þar sem við munum fram-
leiða Fibra húsin,“ segir Regin.
Hugmyndinni var hrundið í
framkvæmd 2015 og þó eiginleg
framleiðsla húsanna sé ekki hafin
hafa þau þegar vakið athygli
út fyrir landsteinana. Von er á
sérfræðingum á vegum Danska
Tækniháskólans, DTU, en til
stendur að setja upp Fibra hús á
Grænlandi til reynslu í eitt og hálft
ár.
„Danski tækniháskólinn er með
þeim virtustu í Evrópu og þetta
verður afar spennandi prófraun en
á Grænlandi má segja að séu verstu
veðuraðstæður í heiminum,“ segir
Regin. Hann hefur fulla trú á að
húsið standist prófið.
Vatnsheld og viðhaldsfrí
„Allt verklagið úr bátasmíðinni
yfirfæri ég í húsasmíðina. Trefja-
plastbátar leka aldrei og það sama
á við um Fibra húsin. Einingarnar
eru settar saman á staðnum og sam-
skeyti límd eða plöstuð. Skilyrði
munu því ekki skapast fyrir myglu
í þessum húsum. Inni í rýminu þarf
þó að sjálfsögðu að vera loftræsting.
Fibra húsin eru einnig núll-orku-
hús og verða sjálfbær hvað snertir
upphitun.“
Þá verða Fibra húsin algjörlega
viðhaldsfrí að sögn Regins.
„Veggirnir eru með innbyggðu
burðarvirki úr trefjaplasti. Ekkert
ryðgar, ekkert fúnar, ekkert viðhald
þarf, nema fólk vilji skipta um lit á
húsinu, þá er hægt að mála. Efnið
hefur einnig staðist allar eldpróf-
anir og Þar með opnast mögu-
leikinn á að byggja fjölbýlishús en
þar sem þetta hefur aldrei verið
gert áður eru engir staðlar til fyrir
húsbyggingar á þennan máta. Verk-
fræðistofan Mannvit hefur boðist
til að gera reiknilíkanið sem þarf,“
segir Regin og bætir við að þessi
byggingatækni og efni bjóði upp á
spennandi hönnunarmöguleika.
„Við ætlum að brjóta blað í
byggingasögunni á Íslandi. Þessi
hús geta enst í hundruð ára og í
fullkomnu lagi. Ef fólk vill flytja, til
dæmis ef atvinnuástand breytist
á svæðinu, má einfaldlega sjósetja
húsið og draga það á nýjan stað.
Það flýtur eins og kassi og er ekki
valt. Bara muna eftir að loka glugg-
unum áður.
Við stefnum á að gera ódýr hús
en möguleikinn á stórum húsum er
fyrir hendi.“
„Við stefnum á að gera ódýr hús en möguleiki á stórum húsum er fyrir hendi.“
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Regin Grímsson hefur fengið einkaleyfi á hugmyndinni, einingar úr gler- og
koltrefjum með kjarna úr steinull. mynd/FibRa
Einingarnar eru
settar saman og
samskeyti límd
eða plöstuð
saman. Húsin
eru vatnsheld og
viðhaldsfrí.
Útfærsla á Fibra húsi eftir Harald ingvarsson arkitekt.
ný tækni við húsasmíði
Einingahús úr gler- og koltrefjum með kjarna úr steinull eru hugmynd
Regins Grímssonar. Við smíðina er sama verklag notað og í bátasmíði.
Vinsælasta
útvarpsappið
9 útvarpsstöðvar • fréttir • hljóðbrot •
upplýsingar um flytjendur og margt fleira
6 KynninGaRbLaÐ FÓLK 8 . j ú l í 2 0 1 7 L aU G a R daG U R
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
4
8
-5
9
8
8
1
D
4
8
-5
8
4
C
1
D
4
8
-5
7
1
0
1
D
4
8
-5
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K