Fréttablaðið - 22.06.2017, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 4 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 2 2 . j ú n Í 2 0 1 7
FrÍtt
FYRIR TILEFNIN
STÓR SEM SMÁ
OPIÐ TIL 21 Í KVÖLD
1999 kr.kg
KjötPól gæða pylsur
Kryddpylsur
með basiliku
Chilipyls
ur
EN
GI
N F
YLLI
NGAREFNI
98%
KJÖT
kr.
kg
eFnaHagsMál Sterk staða krónunn
ar þýðir að opnun hótels á Sjalla
reitnum á Akureyri seinkar um tvö
til þrjú ár. Áður hafði verið stefnt að
því að opna hótelið á næsta ári.
„Við horfum nú til þess að hótelið
á Sjallareitnum verði opnað 2020
eða 2021 og þá myndu framkvæmd
ir hefjast mögulega á næsta ári. Þar
er allt meira og minna tilbúið, það
er nánast búið að fullhanna hótelið
og samþykki bæjaryfirvalda á loka
stigi. Við gætum í raun og veru hafið
framkvæmdir mjög fljótlega,“ segir
Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmda
stjóri Íslandshótela.
Í tilkynningu félagsins í upp
hafi árs, þar sem sagt var frá fram
kvæmdunum, var vísað í spár um 20
prósenta fjölgun ferðamanna. Nú sé
útlit fyrir að bókanir verði færri en
fyrstu áætlanir fyrirtækisins gerðu
ráð fyrir.
„Við erum ekki að sjá þessa aukn
ingu sem við vorum búin að áætla
á þessum svæðum og þetta verður
enn þyngra ef þessi virðisauka
skattur kemur á ferðaþjónustuna og
menn þurfa að velja og hafna hvar
ný hótel verða byggð,“ segir Davíð.
Þó að krónan hafi styrkst mjög
undanfarna tólf mánuði hefur
gengið fallið síðustu tvær vikur.
Gengið féll um tvö prósent í gær og
hefur gengisvísitalan hækkað um
7,1 prósent það sem af er mánuði.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að lækkun síðustu daga megi rekja
að hluta til viðskipta Arion banka
síðustu daga. Merkja mátti áhrif
veikingarinnar í Kauphöllinni en
HB Grandi, Icelandair Group og
Eimskip hækkuðu öll í verði.
– hg, kij / sjá síður 4 og 18
Sterk króna
stoppar hótel
Ris krónunnar undanfarin ár samhliða ævintýraleg
um vexti í ferðaþjónustu hefur verið mikið. Hótel
uppbyggingu á Akureyri seinkar vegna sterkrar
krónu. Hins vegar hefur krónan veikst umtalsvert
síðustu tvær vikur. Gengið féll um tvö prósent í gær.
Við erum ekki að sjá
þessa aukningu sem
við vorum búin að áætla á
þessum svæðum.
Davíð Torfi Ólafsson,
framkvæmdastjóri Íslandshótela
lÍFið Fasteignamarkaðurinn og
verð fasteigna er mörgum lands
mönnum ofarlega í huga um þessar
mundir. Fréttablaðið tók af því til
efni saman nokkrar dýrustu og
svakalegustu fasteignirnar sem eru
til sölu þessa stundina.
Ásett verð fyrir eign
irnar sem náðu í
samantektina
er á bilinu 124
til 230 millj
ónir. Nú geta
lesendur látið
sig dreyma,
eða hlaupið
út í banka
og skellt sér í
greiðslumat.
– sþh / sjá síðu 50
Dýrustu eignir
í bænum
saMFélag „Þetta er upphæð sem
þingið hlýtur að geta fundið, smáaur
miðað við þau ómetanlegu menn
ingarverðmæti sem eru í hættu
ef ekkert er gert,“ segir Andrés
Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri
grænna í Reykjavíkurkjördæmi
norður.
Nýlega fundust merkilegar
minjar við fornleifauppgröft á
Dysnesi norðan Akureyr
ar. Talið er að kuml
sem þar fannst sé
frá víkingaöld. Vís
bendingar eru um
að mun fleiri kuml finnist á svæðinu á
næstu dögum.
Rannsókn fornleifafræðinganna er
hluti af umhverfismati fyrir stór
skipahöfn á Dysnesi með allt
að 300 metra viðlegukanti sem
fyrirtæki og sveitarfélög í Eyja
firði áforma að byggja á næstu
árum.
Andrés segir ergilegt að það sé
aldrei farið af stað í fornleifa
uppgröft nema til standi
að fara í framkvæmdir á
viðkomandi stað.
– bb / sjá síðu 6
Ómetanleg verðmæti eru í hættu
árnesHreppur „Það eru engir
almannahagsmunir eftir í þessari
fyrirhuguðu framkvæmd og þess
vegna ekki boðlegt að fara fram með
náttúrunni með þessum hætti,“ segir
Elín Agla Briem, einn skipuleggjandi
málþings um helgina um framtíð
mála í Árneshreppi á Ströndum,
þar er búist við að fyrirferðarmesta
umræðuefnið verði áform einka
fyrirtækisins Vesturverks sem gert
hefur vatnsréttarsamninga við
jarðeigendur í Ófeigsfirði vegna 55
megavatta virkjunar í Hvalá. Innan
við fimmtíu íbúar eru skráðir í
Árneshreppi, minnsta sveitarfélagi
landsins. Elín Agla segir að íbúar hafi
þungar áhyggjur af því að byggð legg
ist þar af innan fárra ára.
„Það eru einhverjir sem eru á móti
og það ber meira á þeim heldur en
hinum þögla meirihluta,“ segir Eva
Sigurbjörnsdóttir, oddviti í Árnes
hreppi og hóteleigandi í Djúpuvík,
um afstöðu íbúanna til virkjunar
innar. – gar / sjá síðu 8
Stríðandi fylkingar í Árneshreppi
Hjólreiðakappar sem taka nú þátt í hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon, og hjóla hringinn í kringum landið,
voru staddir í Hvalfirðinum þegar ljósmyndari Fréttablaðsins rakst á þá í gær. Keppnin er í boðsveitarformi þar
sem liðsfélagar skipta 1.358 kílómetrum sín á milli og er keppt í nokkrum flokkum. Keppninni lýkur á morgun.
Fréttablaðið/Ernir
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorsteinn Víglundsson
skrifar um jafnréttismál. 22
sport Landsliðsmarkvörðurinn
Aron Rafn er kominn heim úr
atvinnumennsku á besta aldri. 32
Menning Ég hef alltaf meiri
áhuga á spurningum en svörum,
segir Alicja Kwade. 42
lÍFið Kolbrún Sara,
sem margir kannast
við úr þáttunum Leit
in að upprunanum,
er flutt aftur til
Íslands. 52
plús 2 sérblöð l Fólk
l allt Fyrir Ferðalagið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
6
-E
0
8
0
1
D
2
6
-D
F
4
4
1
D
2
6
-D
E
0
8
1
D
2
6
-D
C
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K