Fréttablaðið - 22.06.2017, Side 41
Napoleon-ferðagrillið er handhægt í
flutningum og rennur á hjólum.
Dýrindis vindsængur, ferðabeddar og svefnpokar tryggja ljúfan nætursvefn.
Það er spennandi að fara út að leika
með sumarleikföngin í BYKO.
Réttur búnaður tryggir lúxuslíf í tjaldbúskap, eins og katlar, pönnur og pottar.
Falleg glös, könnur og borðbúnaður gera umgjörð útilegunnar kósí.
Í BYKO fæst allt til eldamennsku og sælkeralífs í útilegunni, eins og þessi for-
láta kælibox. Einnig gaseldavélar, ferðagrill, pottasett og borðbúnaður.
Ferðagleðin byrjar í BYKO
Íslensku ferðasumri fylgir ást á náttúru, sumarsól og samneyti við fjöl-
skyldu og vini. Góður og traustur viðlegubúnaður eykur enn á gleðina.
Kolbrún Ýr Árna-
dóttir er svæðis-
stjóri heimilis-
og árstíðavara
hjá BYKO og
stendur hér mitt
í nýju og glæsi-
legu útilegulandi
verslunarinnar.
MYNDIR/EYÞÓR
Við erum búin að tjalda öllu til,“ segir Kolbrún Ýr Árna-dóttir, svæðisstjóri heimilis-
og árstíðavara hjá BYKO.
„Það er beinlínis spennandi að
hefja ferðalagið hjá okkur því við
höfum nú í fyrsta sinn útbúið sér-
staka útilegudeild í BYKO. Úrvalið
hefur alltaf verið einstakt í úti-
leguvörum en aldrei eins ríkulegt
og nú,“ segir Kolbrún innan um
glæsileg tjöld, ferðagrill, útilegu-
stóla- og borð, gashitara, vind-
sængur, svefnpoka og fleira sem
fullkomnar ferðalag um íslenska
náttúru.
„Við erum með allt í útileguna;
frá ullar- og hlífðarfatnaði yfir
í ferðagaseldavélar og allt þar á
milli. Dásamlega svefnpoka, vind-
sængur og ferðabedda til að tryggja
góðan nætursvefn við fuglasöng og
lækjarnið og úrval af útilegustólum
og borðum til að láta fara vel um
sig innan tjalds og utan.“
Kolbrún segir tjaldbúskap lærast
eftir því sem fólk fari oftar í útilegu
og með reynslunni uppgötvi fólk
hvað þurfi að hafa meðferðis svo
að vel fari um alla. „Fjölbreyttur
búnaður fylgir því að fara í útilegu,
svo að líf undir berum himni verði
sem þægilegast. Umgjörðin er eitt,
tjald og svefnbúnaður, en svo vilja
margir skapa kósí andrúmsloft og
þar komum við inn með fallegar
vatnskönnur, pottasett, borð-
búnað, hnífapör, dúka og fleira
dúllerí í ferðalagið.“
Meðal nýjunga fyrir útileguna
í BYKO eru partíhimnar á súlum.
„Partítjöldin eru tilvalin fyrir
ættarmótið og mjög góð til að
skjóta skjólshúsi yfir frændfólkið
á kátum stundum. Tjöldin fást
í stærðunum 3x3m og 3x6m og
eru þak án hliða svo auðvelt er að
skjóta sér inn og út eftir þörfum,“
segir Kolbrún.
BYKO býður traust og vönduð
útivistarmerki í viðlegubúnaði.
„Við bjóðum nú stærri gerðir af
tjöldum en áður og nýjar útfærslur,
eins og tveggja manna VIP-tjald
með aðskildum herbergjum
þar sem hátt er til lofts. Þá erum
við með ferðaklósett með inn-
byggðum klósettpappírshaldara
sem eru vinsæl í tjaldvagna,
fellihýsi og hjólhýsi sem ekki eru
búin salerni. Ferðagrill fást í úrvali
og meðal annars æðislegt ferða-
grill frá Napoleon sem kemur á
vagni eins og flugfreyjutaska og
er einkar auðvelt að ferðast með
og handhægt fyrir eldamennsku
í regni jafnt sem sumarsól,“ segir
Kolbrún.
Til afþreyingar í útilegunni
býður BYKO fjölmargt til skemmt-
unar.
„Við erum með veiðistangir
og allt fyrir veiðina ásamt úrvali
útileikfanga, eins og krikket-sett,
flugdreka og lítil golfsett. Slíkt er
nauðsyn fyrir smáfólkið og eykur
enn á gleðistundir útivistarinnar,“
segir Kolbrún og bætir við að
þægilegt sé fyrir ferðafólk að þurfa
bara á einn stað til að sækja það
sem þarf í ferðalagið.
„BYKO býður eingöngu traustan
og endingargóðan viðlegubúnað
og verðið er sambærilegt þótt
vissulega oftast í lægri kantinum.“
KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 2 2 . j ú n Í 2 0 1 7
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
6
-E
A
6
0
1
D
2
6
-E
9
2
4
1
D
2
6
-E
7
E
8
1
D
2
6
-E
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K