Ægir - 01.04.2016, Blaðsíða 6
6
Í garð gengur sjómannadagshelgin með tilheyrandi hátíðarhöldum
í sjávarplássum víða um land. Sjötíu og átta ár eru nú liðin frá því
sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur hér á landi en þá var
fagnað í Reykjavík og á Ísafirði. Allar götur síðan hefur þessi fyrsta
helgi í júní verið helguð íslenskum sjómönnum, þeirra störfum og
umræðu um þeirra brýnustu hagsmunamál.
Í Morgunblaðinu í júní árið 1938 segir frá fyrstu hátíðarhöldum
sjómannadagsins þegar Reykvíkingar þyrptust þúsundum saman
út á götur og tóku þátt í skrúðgöngu sem í frásögninni er talin sú
virðulegsta og mesta sem þá hafði sést hér á landi. Því að um 10
þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðinni fyrir þessum tæpu 80 árum
má hæglega líkja við þann mannfjölda sem nú fagnar á Menningar-
nótt í Reykjavík, þeirri hátíð nútímans sem flestir taka þátt í.
Í umfjöllun blaðsins um fyrsta sjómannadaginn segir: „Skúli Guð-
mundsson atvinnumálaráðherra steig nú í ræðustólinn. Skýrði hann
svo frá, að suður í Fossvogskirkjugarði væri leiði óþekts sjómanns.
Einmitt í þenna mund væri blómsveigur lagður á leiði hans. Bað
hann mannfjöldann að votta aðstandendum hinna föllnu hetja
sjávarins hina fylstu samúð sína, um leið og þeirra væri minnst með
lotningu.
Nú var gefið merki á trumbu, sem heyrðist út yfir mannfjöldann,
fánarnir allir feldir, svo þeir drupu niður hlið við hlið, en viðstaddir
karlmenn tóku ofan. Og hin mikla mannþyrping stóð þannig þögul
og hreyfingarlaus hina tilteknu stund. Þessi stutta og látlausa at-
höfn í birtu júnísólarinnar var svipmikil og hrífandi.
Síðan var aftur gefið merki,og hóf Söngsveit sjómanna lagið;
„Þrútið var loft“. Var vel til fallið að velja þetta kvæði til söngs, kvæð-
ið um þjóðhetjuna, hetju framfaranna. Fyrirrennara hins nýja Ís-
lands, þegar minst var þeirra manna, er látið hafa líf sitt í baráttunni
fyrir bættum högum þjóðar vorrar.“
Í síðustu setningunni felst einmitt kjarni málsins. Sjómannsstarf-
ið er kjölfestan í grunnatvinnuvegi þjóðarinnar, fjarri því að vera
hættulítið starf eins og sagan sýnir okkur. Skýringin á þeim mikla
mannfjölda sem tók þátt í sjómannadagshátíðinni árið 1938 er
vafalítið sú að í hugum Íslendinga lék enginn vafi á því að hagsæld
landsins og þjóðarinnar fólst í því hvernig sjósókninni reiddi af. Og
þannig hefur það alltaf verið. Tölulegar staðreyndir sýna mikilvægi
sjávarútvegsins á Íslandi enn þann dag í dag. Þetta er ekki spurning
um að gamall hugsunarháttur í atvinnumálum víki fyrir nýjabrum-
inu - eins og sumir vilja vera láta. Við veiðum fisk, vinnum og seljum
vegna þess að þetta er okkar auðlind og einmitt þetta er það sem
við kunnum hvað best. Sem útilokar auðvitað ekki vöxt annarra at-
vinnugreina, fjarri því. Þeim ber að fagna en hafa jafnframt í huga
að enn er sjávarútvegurinn mikilvægt tæki í baráttunni fyrir bætt-
um hag þjóðarinnar, líkt og Skúli Magnússon, atvinnumálaráðherra
sagði árið 1938.
Kappróðrar, hoppukastalar og kandíflos koma vissulega upp í
hugann þegar sjómannadaginn ber á góma. Hitt skiptir þó meira
máli að dagurinn er til að vekja athygli á öryggismálum, aðbúnaði
og starfskjörum íslenskra sjómanna og ekki síður að gefa sjómönn-
um tækifæri til að gleðjast saman, með sínum nánustu og öðrum
landsmönnum.
Ægir óskar íslenskum sjómönnum til hamingju með daginn.
Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar
Gildi sjómannadagsins
R
itstjórn
a
rp
istilll
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
www.danfoss.is
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður
er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu
skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum
sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan
og skilvirkan búnað.
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Augljós miðlun. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5900 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 10-11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.