Ægir - 01.04.2016, Blaðsíða 29
29
þeirra til hafnar á Íslandi vegna
Schengen-samkomulagsins og
siglingaverndar, sem er eitt af
verkefnum VSS.
Stjórnstöðin er elsta starfs-
eining Landhelgisgæslunnar á
eftir Sjómælingum en hún var
sett á fót þann 1954 og var
starfrækt að Seljavegi 32 í
Reykjavík í rúmt 51 ár eða þar til
starfsemin var flutti í björgunar-
miðstöðina að Skógarhlíð 14.
Um leið tók Landhelgisgæslan
og stjórnstöð hennar við stjórn
og rekstri VSS. Til hlutverka VSS
teljast m.a. strandastöðvaþjón-
ustan og tilkynningarskylda ís-
lenskra skipa.
Sjálfstæð tölvu- og fjarskiptakerfi
Stjórnstöð LHG og VSS er búin
sérstökum tölvu- og fjarskipta-
kerfum og getur starfað sjálf-
stætt og óháð almennum fjar-
skiptakerfum. Markmiðið er að
tryggja eins og kostur er virkni
stöðvarinnar og fjarskiptasam-
band hennar og gæslueining-
anna, annarra skipa og loftfara
ef almenn fjarskiptakerfi bregð-
ast, innanlands eða milli landa.
Þannig getur stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar haldið
uppi fjarskiptasambandi við
varðskipin eða erlendar björg-
unarstöðvar undir flestum
kringumstæðum, um eigin
gervihnattastöðvar og fjar-
skiptabúnað á stuttbylgju, auk
búnaðar strandastöðva-þjón-
ustunnar í VSS, sem er jafnframt
öflugasti hluti fjarskiptakerf-
anna.
Það er aldrei dauður punktur í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar við Skógarhlíð. Verkefnin eru enda fjölþætt
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er fjarskiptastöð fyrir varðskip og gæsluloftför, björgunarstjórnstöð og
hlekkur í hinu almenna öryggiskerfi landsins, fjareftirlits- og fiskveiðieftirlitsstöð og móttökustöð tilkynninga
erlendra skipa vegna siglinga þeirra um lögsöguna.