Ægir - 01.04.2016, Blaðsíða 45
45
Leiðbeiningar FAO að leiðarljósi
Fáir Íslendingar þekkja þessi
mál eins vel og Kristján Þórar-
insson, stofnvistfræðingur hjá
SFS. Hann segir að flestir þeir
sem bjóða upp á vottun á
þessu sviði segist fara eftir
reglum FAO. En hverjar eru þær
reglur í stuttu máli?
„Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
(UN-FAO) samþykkti alþjóðleg-
ar leiðbeiningarreglur árið
2005, sem uppfærðar voru fjór-
um árum síðar,“ segir Kristján.
„Kjarninn í reglum FAO er að
vottun staðfesti að fiskveiðum
sé vel stjórnað á grundvelli
sjálfbærrar nýtingar viðkom-
andi fiskistofna.“
Kristján segir leiðbeiningar-
reglur FAO um vottun byggja á
siðareglum FAO í fiskimálum frá
árinu 1995 og þá alveg sérstak-
lega á varúðarleið við stjórn
fiskveiða sem þar er sett fram
og skilgreind. „Varúðarleiðin er
sýn alþjóðasamfélagsins á það
hvað telst vera ábyrg og vönd-
uð fiskveiðistjórnun,“ segir
Kristján. „Veiðum þarf að vera
stjórnað samkvæmt varúðarleið
til þess að þær megi votta eftir
alþjóðlegum reglum.“
Ekki verði látið undan þrýstingi
Þú segir að flestir vottunaraðilar
segist fara eftir reglum FAO. Er
sú hætta fyrir hendi að vísinda-
leg nálgun víki fyrir fjárhagsleg-
um hagsmunum þegar vottun
er orðin jafn mikilvæg í mark-
aðsstarfi og raun ber vitni?
„Á seinni árum gætir þess
viðhorfs á erlendum mörkuð-
um að allar sjávarafurðir þurfi
að vera vottaðar til að fá hillu-
pláss í stórmörkuðum. Við
þessar aðstæður er viðbúið að
þrýstingur skapist á vottunar-
aðila að veita afslátt af alþjóð-
lega viðurkenndum kröfum. Af-
ar mikilvægt er að ekki sé látið
undan slíkum þrýstingi,“ segir
Kristján.
Merkjum sem votta uppruna og eða sjálfbærni veiða fer fjölgandi með vaxandi kröfum neytenda.
með Bravo II hældrifi
Til afgreiðslu
á lager
ÁSAFLHjallahrauni 2 - 220 HafnarfjörðurSími 562 3833 - asafl@asafl.is - www.asafl.is
Vélar og tæki Sjómenn
þjónusta
kringum
landið
Hljóðlát og sparneytin díeselvél með öflugu hældrifi
Hyuandai 250 hestafla díselvél