Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.2016, Qupperneq 12

Ægir - 01.04.2016, Qupperneq 12
12 Guðmundur Gauti Sveinsson segir á vef sínum frá skipinu Bjarka SI, sem átti sér merka sögu. „Í dag sjáum við tvær myndir frá Héraðsskjalasafni Fjallabyggðar af línuskipinu Bjarka SI 33. Skipið var smíðað í Þýskalandi árið 1911 og kom upphaflega undir nafninu Sieg- fried til Íslands árið 1925 og var það frá Cuxhaven. Skipið var 141 brl.,“ segir Gauti á síðu sinni http://skoger.123.is/ Fyrsti eigandi þess á Íslandi var Bjarni Ólafsson á Akranesi, frá 9. júlí 1926 og bar skipuð þá nafnið Ólafur Bjarnason MB 57. Skipið var selt 7. október 1929 Fiskveiðihlutafélaginu Ármanni í Reykjavík og bar þá einkennis- stafina RE 4. Skipið var síðan selt þann 25. júlí árið 1932 Samvinnuút- gerð Siglufjarðar og hét þá Bjarki SI 33. Í lok árs 1933 eign- aðist Eyþór Hallsson á Siglufirði skipið, sem síðan seldi það Steindóri Hjaltalín á Siglufirði árið 1939. Árið 1944 var skipið lengt og mældist þá 176 brúttólestir Árið 1946 var það selt til Akureyrar og fékk þá nafnið Bjarki EA 764. Skipið gert upptækt Í bókinni „Á vaktinni“ segir Hannes J. Hafstein frá því þegar að hann fékk pláss á Bjarka SI á síldarvertíðinni árið 1944. Í bók- inni segir: „Ég vissi ekki fyrr en síðar að þetta var svo sannar- lega skip með fortíð. Það var smíðað í Þýskalandi árið 1911 og gert út til línuveiða í Norður- sjónum. Þar kom að talið var að hægt væri að stunda ábatasam- ari útgerð en að draga stútunga úr Norðursjó og í byrjun mars- mánaðar 1925 var skipið komið alla leið til Íslands og lá við fest- ar í Vogavíkinni. Þrír menn reru á skipsbátnum í land og hélt einn þeirra, sem var Íslending- ur, rakleiðis til Reykjavíkur. Þeg- ar hinir tveir ætluðu aftur til skips gripu veðurguðirnir í taumana og hindruðu för út í skipið. Yfirvaldinu suður með sjó þótti ferðir skips og manna grunsamlegar, lét handtaka þýsku strandaglópana og ósk- aði eftir að stjórnvöld könnuðu frekar ferðir skipsins. Varðskipið Fylla var sent á vettvang og þegar varðskipsmenn opnuðu lestar skipsins blasti við þeim heill farmur af spírabrúsum og eðalvíni á flöskum.“ Til að gera langa sögu stutta þá voru í skipinu 17 þúsund lítr- ar af áfengi og var skipið með öllum farmi gert upptækt. Skip- verjar voru dæmdir í sektir og til tukthúsvistar. Ríkissjóður seldi skipið síðar Bjarna Ólafssyni á Akranesi og fékk það þá íslenskt nafn, Ólafur Bjarnason MB 57. Bjarki EA 764 var seldur til niðurrifs og tekinn af skrá árið 1956. Saga Bjarka SI 764 Með fulla lest af spíra- brúsum og eðalvínum! Hásetarnir á Bjarka SI blóðga þorsk á dekkinu. Bjarki SI í veiðiferð. G öm u l fisk isk ip
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.