Ægir - 01.04.2016, Page 18
18
„Þó ég sé hættur að vinna er ég ekki hræddur um að hafa ekki nóg
fyrir stafni. Maður hefur þetta góða hobbý sem er golfið og svo er
ég að byggja. Ég hef alltaf verið að byggja í gegnum árin. Þetta er
þriðja einbýlishúsið sem ég byggi, að mestu leyti við hjónin sjálf
með aðstoð barnanna. Strákurinn hjálpaði okkur við að klæða loft-
ið og setja niður gólfefni og ein dóttir okkar er rafvirki og sér um
það, en við höfum unnið í þessu sjálf frá fyrstu spýtu. Það tók okkur
sjö ár að flytja inn í það og nú er frágangurinn að utan að fullu,
pallasmíð og innkeyrsla. Það er ekki neinu að kvíða.“
Ætla mætti að verið væri að
spjalla við húsasmið, en svo er
ekki. Viðmælandinn er einn
kunnasti skipstjóri landsins,
Hilmar Eyberg Helgason, sem
nú er að ljúka við fráganginn
við húsið sitt í Grindavík. Hann
hefur verið með frystistogarann
Hrafn Sveinbjarnarson í nærri
þrjá áratugi, en hefur nú farið í
sína síðustu veiðiferð með
hann.
Í land meðan maður hefur heilsu
„Þetta er spurning um að koma
sér í land meðan maður hefur
heilsu. Eitt af barnabörnunum
orðaði það svo að ég ætti að
koma mér í land og nýta lífeyr-
issjóðinn áður en ég færi í
göngugrind. Ég held að margir
sjómenn flaski á því að vera of
lengi á sjó. Þetta er slítandi
vinna en það kemur ekki í ljós
fyrr en menn fara að slaka á í
landi. Þá hefur maður séð menn
fara alveg í kör á stuttum tíma,
sérstaklega ef menn hafa ekkert
fyrir stafni. Ég er reyndar búinn
að vera að trappa mig niður síð-
ustu sex árin síðan ég fór í
hjartaaðgerð. Þá hef ég bara ró-
ið einn mánuð og frí einn. Mað-
ur er því búinn að undirbúa sig
nokkuð vel undir þetta.“
Kaupandinn
ræður veiði-
ferðinni
Hilmar Eyberg Helgason, skipstjóri í Grindavík hefur stýrt sinni síðustu
veiðiferð eftir 26 ára sjómannsferil
Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK í Grindavíkurhöfn eftir lengingu á síðasta ári. Skipið er nú orðið af þeirri lengd sem það var upphaflega
hannað.
Æ
g
isv
iðta
l