Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2016, Síða 26

Ægir - 01.04.2016, Síða 26
26 „Bæjarhátíð okkar Grindvík- inga, Sjóarinn síkáti, fagnar 20 ára afmæli í ár. Þá vill svo skemmtilega til að Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur heldur upp á 60 ára afmæli í ár þannig að það er tvöföld ástæða til að halda upp á Sjómanna- dagshelgina í Grindavík með pompi og pragt í ár,“ segir Þor- steinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs en Sjóarinn síkáti fer að vanda fram um sjómannadagshelgina. Barnadagskráin í öndvegi á afmælisárinu Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í ársbyrjun og er mikið lagt í hátíðina í ár. Að sögn Þor- steins verður barnadagskráin í öndvegi en búið er ráða m.a. Villa og Góa, Gunna og Felix, Einar Mikael, íþróttaálfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, brúðubílinn o.fl. Þá verða leik- tæki og hoppukastalar alla helgina, paintball og lazertag, vatnaboltar, gokart, dorgveiði- keppni, skemmtisigling, sjó- pulsa í höfninni, krakkakeyrsla á mótorhjólum, andlitsmálning, svo eitthvað sé nefnt. „Einnig verðum við með fiskasafn með lifandi sjávardýr- um í fiskabúrum á bryggjunni á sunnudeginum en þetta er samstarfsverkefni Sjóarans sí- káta, Hafró í Grindavík, Gunna kafara og sjávarúvegsfyrirtækj- anna í Grindavík. Við gerðum þetta í fyrsta skipti í fyrra og sló algjörlega í gegn. Við bætum við í ár. Einnig hafa frystitogarar Þorbjarnar safnað saman ýms- um furðufiskum og verða þeir til sýnis fyrir gesti og gangandi. Við erum með sullu-búr fyrir krakkana þar sem þau geta komist í tæri við krabba, skeljar og minni fisktegundir,“ segir Þorsteinn. Óhætt er að segja að lands- lið skemmtikrafta verði á Sjóar- anum síkáta í ár. Á meðal þeirra sem búið er að bóka á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem kemur fram bæði á Bryggjuballi og verður með Palla-ball í íþrótta- húsinu. Bræðurnir Jón og Frið- rik Dór Jónssynir munu skemmta saman ásamt hljóm- sveit á bryggjuballinum og heimamaðurinn Ellert Heiðar Jóhannsson sem sló í gegn í The Voice treður upp ásamt hljómsveit sinni. Ingó Veðurguð sér um brekkusöng eins og honum einum er lagið. Þá verð- ur keppnin Sterkasti maður á Ís- landi á sínum stað og er met þátttaka í ár. Þá mun hópur tónlistarfólks í Grindavík standa fyrir klassískri rokkhátíð í íþróttahúsinu. Alls koma fram 15 flytjendur, sem flestir búa í, hafa búið í eða tengjast Grindavík á einhvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum en á það sameiginlegt að njóta þess að flytja frábæra tón- list. Hópurinn ætlar að flytja framsækið rokk sem átti sitt blómaskeið á áttunda áratugn- um. Flutt verða lög eftir hljóm- sveitir á borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og Queen, í bland við nýrra efni. Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu á hátíðinni með öflugum hætti að vanda og er í lykilhlut- verki á hátíðinni. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vand- aðri barnadagskrá. Um 25 þús- und gestir voru á hátíðinni í fyrra. Frá heiðrun sjómanna á hátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík. Síkátur sjóari í 20. sinn S jóm a n n a d a g u rin n Ker Umbúðamiðlunar eru eingöngu ætluð til leigu undir matvæli.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.