Morgunblaðið - 09.01.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 09.01.2017, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú vilt fá einhvers konar tryggingu fyrir því að einhver samvinna muni ganga upp. Hverju ertu bættari með því? Sýndu sjálfum þér og náunganum þolinmæði. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er óþarfi að taka alla skapaða hluti bókstaflega því það kallar bara á álag og ör- væntingu. Vinur kemur þegar þú þarft ein- mitt á honum að halda. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Stjörnurnar vilja endilega minna þig á hvað þú vildir verða þegar þú yrðir stór. Ekki vera sífellt að plokka af þér plásturinn og kíkja á sárið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Af einhverri ástæðu langar þig að gera eitthvað öðruvísi í dag, eitthvað sem er frábrugðið þínum hversdagslegu venjum. Ekki fara á taugum, veldu bara annan. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert viðkvæmur þessa dagana; jafn brothættur og nýfætt barn og ekki fjarri guð- dómnum. Fólk finnur enn sterkar fyrir tryggð þinni þegar það eru hindranir á vegi ást- arinnar, eins og nú. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það þýðir lítið að stinga við fótum þegar allt er á fleygiferð í kringum þig. Papp- írsvinna fer forgörðum og svo mætti lengi telja. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hlustaðu vel á þinn innri mann, þegar þú veltir fyrir þér verkefnum dagsins. Blekkingin gæti þó orsakast af mistúlkun af þinni hálfu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er hyggilegt að hafa augun opin fyrir nýjum tækifærum. Mundu að á byrjunarstigi getur hvert smáatriði haft þýð- ingu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ný ást mun að líkindum kvikna í lífi þínu á næstu dögum þó ekkert sé öruggt í heimi hér. Ekki taka það ýkja nærri þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert svoddan bjartsýnismaður, að þú sérð lífið í framtíðinni innihalda það sem þig langar í, og án allra leiðinda. Auk þessa eru aðrir tilbúnir til að veita þér þá að- stoð sem þú þarfnast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér hefur gengið vel í öllum fram- kvæmdum undanfarið og engin fyrirsjáanleg hindrun í vegi. En ástæðulaust er að prófa þau á hverjum degi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vertu ekkert að velta þér upp úr því hvort samstarfsmenn þínir eru karlar eða konur. Til allrar hamingju eru áætlanir um aukna fjáröflun einnig að ganga eftir. ÍVísnahorni á föstudag var stakaeftir Gústa Mar. og var tilefnið fyrirsögn í Fréttablaðinu: „Prestur barði Hallgrím.“ Bjarki Karlsson brá á leik á Leir: „Við Matti Jokk slógum í þessa saman: (Matti sá um ofstuðlunina) Atburð sé ég anda mínum nær, enda gerðist hann í fyrragær; Inn í háan kirkuturn ég treð, töturmaður stynur þar á beð. Maðkur og ei maður sýnist sá. Sár og kaun og benjar holdið þjá, Blinda hvarma baða sollin tár, bylja lætur högg þar klerkur flár. Til hvers viltu, prestur, pynta hart píslarmynd sem anda dregur vart, sem aðframkominn hásum hrygluróm hóstar, löngu rændur klukknahljóm? Sóknarklerkur, Sigurður minn kær! Svei þér meðferð sú er skáldið fær! Landins niðjar lengi munu klerk lasta fyrir drottins níðingsverk.“ Undirskriftin : „Bjarki og Matti. P.s. Við Matti biðjum síra Sigurð forláts á kerskninni. En óneitan- lega stóð hann vel til höggsins.“ Hagyrðingar velta stjórnarmyndun fyrir sér. Ólafur Stefánsson reið á vaðið og talar um „óæri“: Árið byrjar ekki vel, ógæftir og flensa, en sýnu verra samt ég tel, að semja’um Stjórn við Bensa. Bjarki Karlsson bætti við: Árið boðar okkar hag, eygist hvorki stopp né stans á okkar styrka hag þó stjórnað sé með – Bensa. Ármann Þorgrímsson: Þó tapast hafi topp vé og traust á Framtíð stopp sé, kannski engan kopp né kamar þurfi Proppé. En áður hafði FriðrikStein- grímsson skrifað: „Ketill Skrækur sagði við Skugga-Svein: „Ég verð þér fylgispakur og held kjafti.“ Flokkur bjartrar framtíðar í fáu held sér beiti, fer í vasa viðreisnar vel að þessu leyti.“ Ármann Þorgrímsson veltir fyrir sér örþrifaráðinu, – „á leið í mynda- töku…“: Allt fer þetta á einhvern veg, örlög mun ei flýja en kennitölu kannski ég kaupa ætti nýja. Vel fer á því að rifja upp stöku eftir Matthías Jochumsson í lokin: Hver, sem á himneska auðinn, frá honum stelur ei dauðinn; þó eigi hann ekki á sig kjólinn er hann samt ríkari en sólin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Matta Jokk og hagyrðingum Í klípu AÐ BRJÓTAST Í GEGNUM GLERÞAKIÐ VAR NÁKVÆMLEGA EINS OG HÚN HAFÐI ÍMYNDAÐ SÉR ÞAÐ – OG ÞESS VEGNA GEKK HÚN ALDREI Í PILSI. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SKO, UM LEIÐ OG EINMENNINGSHERBERGI LOSNAR, MUNT ÞÚ FÁ ÞAÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gera skrítna hluti saman. FYRIRGEFÐU EF ÉG ER OF ÞREYTANDI EKKI BULLA, ÞÚ ERT ALVEG MÁTULEGA ÞREYTANDI HELGA, ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA SÚ ALVERSTA MÁLTÍÐ SEM NOKKUR HEFUR REITT FRAM Í SÖGU MANNKYNS! HVERS VEGNA ERTU ÞÁ AÐ BORÐA HANA? ÉG VILDI EKKI SÆRA TILFINNINGAR ÞÍNAR! Í bókinni Baugabrot frá árinu 1957eru stuttir kaflar teknir úr ýmsum ritum Sigurðar Nordals prófessors, sem lungann úr 20. öldinni var allt- umlykjandi í íslenskum bókmennt- um. Var kallaður „meistari íslenskrar menningar“ og sæmdarheitin voru víst fleiri. „Okkur meðalmennina sundlar að vonum við að horfa á feril margra hálftruflaðra gáfnaljósa eða stórhvela atvinnulífs og stjórnmála,“ segir í einum kafla bókarinnar. Svona komast aðeins snillingar að orði og það var Nordal svo sannarlega, hvort sem hann skrifar um fornsögurnar, stórskáld eða heimspeki. x x x Margir henda gaman að íslenskumþjóðsögum, telja þær vera þvælu og sjálfsagt eru þær það að stórum hluta. Sigurður Nordal mun þó hafa sagt að ekkert skyldi af- skrifa, einfaldar draugasögur, hvað þá merkilegri frásagnir, hefðu alltaf ákveðinn boðskap og í þeim fælist sannleikskorn. Með þau skilaboð í huga gluggaði Víkverji í bókina Ís- lenskar þjóðsögur sem kom út árið 2014. Þar eru á síðum Djákninn á Myrká, Gissur í Botnum, Bakka- bræður í Svarfaðardal, Þorgeirsboli og Loðinbarði svo nefndar séu nokkrar sögupersónur sem valdar voru í þessa bók af Jóhannesi Bene- diktssyni og föður hans, Benedikt Jó- hannessyni, formanni Viðreisnar og væntanlegum ráðherra að ætla verð- ur. x x x Margt rifjast upp þegar gluggað erí bókina Læknir á vígvelli. Þar segir frá Gísla H. Sigurðssyni lækni sem varð innlyksa í Kúveit þegar Írakar réðust inn í landið í ágúst 1990 sem aftur leiddi af sér innrás Banda- ríkjamanna með Flóabardaga í jan- úar 1991. Lýsingarnar svo sem á því þegar losa skyldi Íslendinginn úr prísundinni eru fróðlegar. Þar létu forseti Íslands og forsætisráðherra til sín taka og fengu til liðs við sig ekki minni menn en Hussein Jórd- aníukonung og Jasser Arafat, leið- toga Palestíumanna. Það var þó Jó- hanna Kristjónsdóttir blaðamaður sem á endanum frelsaði Íslendinginn, Gísla gísl eins og hann var stundum kallaður. vikverji@mbl.is Víkverji Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það. (Lúk. 19:10) LEYNIVOPN.IS HVERNEINASTADAG FRÁÞVÍ AÐÉG MANEFTIRMÉR „ ALFREÐ FINNBOGASON LANDSLIÐSMAÐUR Í KNATTSPYRNU LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR “

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.