Morgunblaðið - 09.01.2017, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2017
Sýningarröðin Eyja/Island hóf göngu
sína 6. janúar sl. í galleríinu Harbin-
ger, Freyjugötu 1, með sýningu á
verkum Ceciliu Durand sem ber tit-
ilinn Augun pírð. Í röðinni sýna mynd-
listarmenn sem eiga það sameiginlegt
að fást við eyjar sem stað sem vegur
salt milli innikróunar og afturhalds-
semi annars vegar og hins vegar para-
dísar sem upphefur andann og veitir
hugarró, eins og segir í tilkynningu.
Durand hefur átt viðburðaríka ævi
og hefur búið í nánast öllum heims-
hornum, segir þar. „Það er þó vera
hennar á Andamaneyjum sem hefur
haft mótandi áhrif á hana. Þar dvald-
ist hún sem lítil stúlka nokkra mánuði
á ári hjá föður sínum sem var þar við
mannfræðistörf. Á þessum miðbaugs-
eyjum eru engar árstíðir. Sólin rís að
morgni og hnígur að kveldi. Hún lýsir
veru sinni á Andamaneyjum eins og
hvarfi inní í heim þar sem tíminn
stendur í stað. Íbúarnir sem höfðu
hvorki ritmál né tímatal virtust stein-
runnir í fornöld,“ segir um verk Dur-
and.
Á opnuninni munu Samtök ungra
skálda (SUS) flytja texta um suð-
rænu, heimsendi og eyjar en það eru
skáldin Kristín Svava Tómasdóttir og
Lommi sem stýra viðburðinum. Sýn-
ingarstjórar eru Unndór Egill Jóns-
son og Una Margrét Árnadóttir.
Eyjur Eitt af verkum Durand á sýningunni í Harbinger.
Áhrifamiklar
Andamaneyjar
hættir mörgum til að grípa í þessi
hálmstrá.“
Blandað raunveruleika
Í haust hóf Gígja meistaranám í
myndlist við San Francisco Art
Institute, og kannski að þess sjáist
merki í sýningunni í Tjarnarbíói.
Segist Gígja hafa verið að fjarlægj-
ast hefðbundin sviðsverk en fengið
mikinn áhuga á að blanda saman
raunveruleika og sviðssetningu. All-
ar þrjár sýningarnar á A Guide to
the Perfect Human byrja meira að
segja á alvöruhjónavígslu og síðan
tekur við brúðkaupsveisla.
„Sýningin skoðar hugmyndir nú-
tímamannsins um hina fullkomnu
manneskju og staðalímyndir sam-
félagsins um ímynd fullkomnunar,“
segir Gígja og bendir á að þetta um-
fjöllunarefni sé eins konar framhald
af The Drop Dead Diet.
Fengu höfundarnir innblástur
bæði úr sjálfshjálparbókum og eins
hvernig hópar fólks reyna að skapa
sér fullkomna ímynd á samfélags-
miðlum eins og Facebook, In-
stagram og Snapchat. Hugmyndin
kviknaði fyrir ári og hefur sýningin
verið í þróun með hléum allan þann
tíma.
Fegruð ímynd á Fésbók
Lesendur kannast örugglega við
fullkomnunaráráttuna eins og hún
birtist á samfélagsmiðlunum, þó að
hún virðist birtast með mismunandi
hætti hjá ólíkum kynslóðum. Eðli-
legt er að vilja sýna öðrum sínar
bestu hliðar en það virðist eins og
tæknin hafi magnað upp hvöt þar
sem það sem sýnt er á samfélags-
miðlunum á fátt skylt við raunveru-
leikann.
„Þegar ég skoða fólk af sömu
kynslóð og foreldrar mínir þá sést
þessi tilhneiging til að vilja skapa
fullkomna ímynd í því að nota sam-
félagsmiðlana til að láta vita af öllu
því jákvæða sem er að gerast í lífi
fólks,“ segir Gígja og útskýrir
hvernig yngri kynslóðirnar nota
samfélagsmiðlana til að dreifa af sér
ljósmyndum þar sem fólk stýrir
þeirri ímynd sem það vill að aðrir
Í leit að fjarstæðukenndri
Verkið A Guide to the Perfect Human skoðar heim sjálfshjálparbóka og monts á samfélagsmiðlum
Hver sýning hefst á alvöru hjónavígslu en við tekur veisla þar sem áhorfendur eru gestirnir
Morgunblaðið/Eggert
Sjálfsmynd Guðrún Selma Sigurjónsdóttir og Gígja Jónsdóttir segja fólk reyna að skapa sér fullkomna ímynd með misjöfnum hætti. Unga fólkið er gjarnt
á að setja myndir af sér á netið þar sem hvert smáatriði hefur verið fínpússað til að gefa umheiminum ákveðna hugmynd um útlit þeirra og félagslíf.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Óvenjuleg sýning verður sett á svið
í Tjarnarbíói um miðjan mánuðinn.
Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma
Sigurjónsdóttir eru höfundar verks-
ins, og dansarar að mennt, en sýn-
ingin A Guide to the Perfect Human
teygir á mörkum hins hefðbundna
dansforms með því að blanda saman
dansi, veislu og meira að segja
hjónavígslu.
„Við erum óneitanleg að vinna
þvert á listgreinar og sýningin verð-
ur mjög fjölbreytt,“ segir Gígja.
Verkið verður frumsýnt næst-
komandi laugardag, 14. janúar, og
einnig sýningar helgina 20. og 21.
janúar. Eru miðar seldir á Miði.is en
færri sæti laus en á hefðbundnum
sýningum í Tjarnarbíói. Sýningar
hefjast kl. 19 og er verkefnið styrkt
af Reykjavíkurborg og mennta- og
menningarmálaráðuneytinu.
Samfélagsádeila í dansi
Leiðir Gígju og Guðrúnar Selmu
lágu saman í Listaháskólanum þar
sem þær stunduðu báðar nám í sam-
tímadansi. Eftir útskrift árið 2013
hafa þær báðar starfað að sjálf-
stæðum verkefnum innan sviðs-
listasenunnar. Þær stöllur vöktu
mikla athygli á Reykjavík Dance
Festival árið 2015 með verkinu The
Drop Dead Diet. „Þar unnum við út
frá megrunarkúrum og bjuggum í
reynd til nýjan kúr sem er innblás-
inn af hinum ýmsu tískukúrum,“ út-
skýrir Gígja en viðfangsefninu
komu þær til skila með því að „ryk-
suga í burtu aukakílóin, tyggja
ógrynni af sykurpúðum og rappa
um útlitsfyrirmyndir“, eins og þær
lýsa verkinu. „Sýningin var létt og
skemmtileg en um umfjöllunarefnið
um leið alvarlegt og snertir flesta.
Öll vitum við að allir nýju kúrarnir
og skyndilausnirnar eru algjör
þvæla, en samt ótrúlegt hvað okkur