Morgunblaðið - 09.01.2017, Page 32
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Kynlífið endaði með ósköpum
2. Gengu nakin upp að altarinu
3. Róbert Wessman á lausu
4. Verður Óttarr heilbrigðisráðherra?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Haltu kjafti og skrifaðu leikrit! er
yfirskrift viðburðar sem hefst í Tjarn-
arbíói í kvöld kl. 20. Samkvæmt upp-
lýsingum frá skipuleggjendum kemur
hugmyndin að Haltu kjafti og skrif-
aðu! frá San Francisco og er hugsuð
til þess að hjálpa höfundum að koma
sér af stað við skrif. Að skrifa er oft
einmanalegt verk og því gott að geta
hitt aðra höfunda, skrifa með þeim
og svo ræða eigin verk og annarra.
Allir sem hafa áhuga á að skrifa eru
velkomnir á viðburðinn og skiptir
engu hvort höfundar eru með verk í
vinnslu eða á algjöru frumstigi. Ef
kvöldið í kvöld gefur góða raun
stefna skipuleggjendur að því að
halda samskonar viðburð mán-
aðarlega. Byrjað verður að skrifa
stundvíslega kl. 20.15 og ætlast er til
þess að viðstaddir sitji við og hafi
hljóð til kl. 21.15. Þá hefjast óform-
legar umræður til kl. 22 þar sem fólk
getur varpað fram spurningum eða
pælingum. Einnig verða nokkrir leik-
arar á staðnum sem tilbúnir eru að
leiklesa verk í vinnslu.
Morgunblaðið/Ófeigur
Haltu kjafti og
skrifaðu leikrit!
Sóley Eiríksdóttir fjallar um bók
sína Nóttin sem öllu breytti, sem hún
skrifaði ásamt Helgu Guðrúnu John-
son, í Bókasafni Seltjarnarness ann-
að kvöld, þriðjudag, kl. 19.30. Sóley
var ellefu ára þegar snjó-
flóð féll á Flateyri
1995. Hún lá klukku-
stundum saman undir
snjófarginu meðan ör-
væntingarfullt björg-
unarfólk hamaðist við
leit í öngþveitinu
sem ríkti í þorp-
inu.
Fjallar um bók sína
Á þriðjudag Fremur hæg breytileg átt, en norðaustan 8-13 með
norðurströndinni. Dálítil él norðan- og austanlands, annars úr-
komulaust. Líkur á snjókomu syðra um kvöldið. Frost 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan- og norðanhvassviðri eða
stormur um mestallt land. Úrkomulítið syðra, annars snjókoma,
talsverð norðaustantil. Dregur úr vindi og úrkomu seint í dag.
VEÐUR
Erfið ákvörðun bíður Geirs
Sveinssonar og aðstoðar-
manna hans að velja endan-
legan hóp Íslands sem
keppir á heimsmeistara-
mótinu í handbolta í Frakk-
landi. Mótið hefst í vikunni
en íslenski hópurinn heldur
þangað á morgun. Aron
Pálmarsson heldur til móts
við hópinn frá Íslandi í dag
en hann glímir við nára-
meiðsli og þá er Vignir
Svavarsson með flensu. »1
Erfið ákvörðun
bíður Geirs
Spenna er hlaupin í toppbaráttuna í
Dominos-deild kvenna í körfubolta á
nýjan leik eftir að Íslands- og bikar-
meistarar Snæfells tóku sig til og
unnu topplið Keflavíkur eftir fram-
lengdan leik í Keflavík. Snæfell og
Skallagrímur eru tveimur stigum á
eftir toppliðinu. Haukar og Grindavík
eru eins og áður í neðstu sætunum
með jafn mörg stig. »6
Snæfell hleypti spennu í
toppbaráttuna
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Landsliðsmenn og landsliðsþjálfarar
koma og fara en Brynjólfur Jónsson
er alltaf á sínum stað og er á leiðinni
á enn eitt stórmótið sem læknir
karlalandsliðsins í handbolta. „Þetta
er bara skemmtilegt,“ segir bækl-
unarskurðlæknirinn í Orkuhúsinu,
sem hefur fylgt landsliðinu síðan
1990 eða í nær 27 ár.
Skömmu eftir að Þorbergur Aðal-
steinsson var ráðinn landsliðsþjálfari
1990 fékk hann Brynjólf til liðs við
sig, en þeir kynntust í Svíþjóð þegar
Þorbergur lék og þjálfaði 1. deildar
lið Saab í Linköping og fékk Brynjólf
sem lækni liðsins. Fyrsta mótið, sem
Brynjólfur starfaði á sem læknir
landsliðsins, var í Danmörku og
fyrsti leikurinn á móti Frakklandi,
en þangað er förinni heitið á HM í
vikunni.
Afskipti Brynjólfs af meiddu
íþróttafólki hófust þegar hann var
læknir á Akureyri 1980. Hann segist
hafa tekið eftir því að íþróttafólk fyr-
ir norðan fékk mjög litla þjónustu og
hann hefði því ákveðið að aðstoða
það. Tveimur árum síðar fór hann í
framhaldsnám til Skövde í Svíþjóð
og fljótlega var hann orðinn læknir 1.
deildar liðsins í handbolta, íshokkí-
liðsins og fótboltafélagsins. „Ég hef
því þrisvar verið á heimavelli í stór-
keppni, á HM á Íslandi 1995, EM í
Skövde 2002 og HM í Linköping
2011,“ segir Brynjólfur, sem hefur
meðal annars farið fjórum sinnum
með landsliðinu á Ólympíuleika.
Eftirminnilegar stundir
Brynjólfur segir að hápunktarnir
séu margir og nefnir sérstaklega Ól-
ympíuleikana í Peking 2008, EM í
Svíþjóð 2002 og HM U21 í Egypta-
landi 1993. Hann segir að allt þurfi
að ganga upp til þess að gera mót
skemmtilegt. Það sé ekki bara ár-
angurinn heldur líka öll umgjörð, að-
stæður og hópurinn. „Það hefur
stundum verið mjög gaman þótt okk-
ur hafi ekki gengið sérstaklega vel,“
segir hann og vísar meðal annars í
HM í Portúgal 2003. Þar hafi verið
með miklir reynsluboltar sem hafi
horfið af sviðinu upp úr því.
Ólympíuliðið í Barcelona 1992 og
silfurliðið í Peking 2008 eru Brynjólfi
ofarlega í minni. Hann segir að þeg-
ar liðið hafi náð bestum árangri hafi
mannskapurinn og umgjörðin verið í
lagi. „Ég hef aldrei haft eins lítið að
gera og í Peking,“ rifjar hann upp og
leggur áherslu á að það skipti miklu
máli að allir leikmenn gangi heilir til
skógar. „Ég hef aldrei haft meira að
gera en á EM í Sviss 2006 en þá var
árangur liðsins ekki góður.“
Ýmislegt hefur gengið á í lands-
liðsferðum. Brynjólfur segir að það
hafi til dæmis verið erfitt að bíða í
marga klukkutíma í bilaðri rútu uppi
á heiði í miklum kulda í Tékklandi og
ekki hafi verið auðvelt að halda ein-
beitingunni sums staðar í Austur-
Evrópu, þar sem herbergi og rúm
hafi verið full af kakkalökkum og
fæðið ekki mönnum bjóðandi. Eins
hafi tekið á að vera í höllum, þar sem
reykingar voru leyfðar og jafnvel
varla sást á milli marka vegna reyks.
„Eitt sinn varð ég fyrir stöðugu
áreiti á leik í Makedóníu, hélt að
áhorfendur væru að slá mig í höf-
uðið, henda einhverju í mig eða
hrækja á mig, en í hálfleik tók ég eft-
ir því að margar, stórar flugur lágu
dauðar úti um allt. Reykurinn hafði
drepið þær og þær fallið á mig úr
rjáfrinu.“
Brynjólfur saknar einna helst
landsleikja hérlendis úti á landi. „Því
miður er ekki fjárhagsgrundvöllur
fyrir þeim,“ segir hann. „En þegar á
heildina er litið er gaman að starfa
með landsliðinu. Þetta er skemmti-
legur félagsskapur og víðsýnin eykst
með hverjum leik og hverju móti.“
Víðsýnin eykst með hverju móti
Brynjólfur Jónsson læknir karlalandsliðsins í handbolta í bráðum 27 ár
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Silfurdrengirnir Landsliðshópurinn með silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Brynjólfur Jónsson lengst til hægri.
Íslenska landsliðið skipað leik-
mönnum U-21 árs og yngri tryggði
sér sæti í lokakeppni heimsmeist-
aramótsins í handknattleik í sínum
aldursflokki með sannfærandi hætti
um helgina. Ísland
vann alla þrjá
leiki sína í
undan-
keppninni
en riðill
Íslands var
spilaður í
Serbíu. »2
Sannfærandi hjá U-21
árs landsliðinu