Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Blaðsíða 27
Brú fimm ára
Það var hinn 14. apríl 1973, sem Kiw-
anisklúbburinn BRU á Keflavíkurflugvelli
hélt víxluhátíð sína með mikilli rausn. For-
göngu um stofnunina hafði séra Alfred R.
Saeger og var Guðmundur Karlsson kjör-
inn til að verða fyrstur til að gegna starfi
forseta. Móðurklúbbar Brúar voru Eld-
borg, Hafnarfirði, Hekla, Reykjavík og
Augsburg, Þýskalandi.
Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið
og margir menn starfað í þessum klúbbi.
Kemur þetta til af tvennu. í fyrsta lagi er
Brú einn fjölmennasti klúbburinn á tslandi
með 40-60 meðlimi auk þess sem þetta
mun, auk Augsburg, vera eini starfandi
klúbburinn í heiminum, sem samanstendur
af mönnum af mörgum þjóðernum. Með-
limir klúbbsins nú eru frá tslandi, Banda-
ríkjunum, Þýskalandi, Kanada og Kína.
Eitt aðalverkefni klúbbsins er að byggja
vináttubrú milli þjóða og skapa heilbrigðan
grundvöll skoðanaskipta milli manna af
mismunandi uppruna og stundum lífsskoð-
ana, samtímis því er þeir vinna að þjón-
Kiwanisklúbburinn BRÚ á Keflavíkur-
flugvelli hefur löngum verið stórtækur í
þjónustustörfum og styrkt fjölda verðugra
verkefna innan flugvallarins og utan.
í haust gaf hann öllum börnum á Kefla-
víkurflugvelli endurskinsmerki, yfir 1000
stykki, og sjást á þessari mynd tveir með-
limir framkvæmdanefndar þeir Donald
Dix og Þorgrímur Halldórsson eftir af-
hendingu merkjanna til eins skólabekkjar
á flugvellinum.
K-FRÉTTIR
ustustarfsemi svipað og aðrir slíkir klúbbar.
Félagsstarf er mjög lifandi og eru fund-
ir allt árið vikulega og koma þar reglulega
fram ræðumenn úr röðum fremstu manna
víðsvegar úr þjóðlífinu.
Þar sem stór hluti meðlimanna eru varn-
arliðsmenn, þá eru mannaskipti í klúbbn-
um tíð og starfsaldur margra meðlima ekki
nema rúmt ár, en þessi tími er notaður til
hins ýtrasta. Ekki bætir það úr skák, að
flestir meðlimir klúbbsins eiga búsetu utan
flugvallarsvæðins, sem þrátt fyrir það halda
uppi líflegu félags- og þjónustustarfi.
Kiwanisklúbburinn Brú á Keflavíkur-
flugvelli hefur á undanförnum árum látið
málefni vangefinna og aldraðra til sín taka.
Auk þátttöku í alþjóðar K-deginum,
hefur það verið fastur siður að taka á móti
hópum vangefinna ásamt hópum gamal-
menna, sem aðrir klúbbar hafa farið með í
ferðalög. Hefur það verið Brúarfélögum
mikil ánægja, að geta verið gestgjafar
þeirra á meðan þeir dvöldu á flugvellinum.
Fyrir alllöngu ákvað klúbburinn að
kosta för íslensks kennimanns til Bandaríkj-
anna þar sem honum gæfist kostur á að
kynnast trúarfræðslu og þjónustu við van-
gefna.
Varð fyrir valinu séra Ámi Pálsson
sóknarprestur í Kársnessókn og mun hann
halda til Bandaríkjanna innan skamms
ásamt frú sinni en þar munu þau verða
gestir lúterskra safnaða í Minnisota um sex
vikna skeið og kynnast skólum þeirra og
starfi á þessu sviði.
Þorgrímur Halldórsson.
27