Kiwanisfréttir - 01.12.1984, Page 8
„Byggjum
betra líf ‘
Það fer ekki hjá því, að daginn lengir og lengir.
Látlaust meira og meira að skuggunum þrengir.
Þeir hnipra sig saman og atyrða almanakið
eins og við er að búast.
Og jörðin er alltaf að hverfast um sólina sína,
og seinast finnur hún Ijósið á andlit sér skína.
Þá hallar hún sér í himneskri gleði á bakið
og hœttir alveg að snúast.
En fyrst að þú, Drottinn, lætur Ijósið þitt skína
og lengir daginn fyrir þá vini þína,
sem hafa yftrleitt ekkert við tímann að gera
annað en bara að vinna,
og úr því þú hefur af nœgum tíma að taka
en til eru hinsvegar menn, sem þurfa að vaka.
þá œttirðu líka að lofa nóttinni að vera
og lengja' hana helzt ekki minna.
í þessu ljóði Tómasar Guðmundssonar
„daginn lengir“ kemst hann flmlega að orði.
Eins og segir á einum stað ljóðsins, „sem hafa
yfirleitt ekkert við tímann að gera annað en
bara að vinna.“
Já, vinnan er nauðsynleg öllum þeim, sem
hana getað stundað. Langur vinnudagur
hefur fylgt okkur Islendingum í aldaraðir og
virðist frekar aukast, þótt þægindi og allur
aðbúnaður sé ólíkur.
Við kiwanismenn vitum að ekki eru allir
jafnheppnir og heilsuhraustir til að geta
stundað vinnu úti á hinum almenna vinnu-
markaði.
Óskum öllum Kiwanismönnum
gleðilegra jóla!
XCO HF. INN- & ÖTFL.
BÚÐARGERÐI 10
SÍMI 82388. 3 línur
íslenskir kiwanismenn hafa á undan-
förnum árum hjálpað þessum meðbræðrum
sínum. Með því t.d. að leggja til fé í vendaðan
vinnustað „Bergiðjuna“ sem rekin er í
tengslum við Kleppspítala.
Þar vinna sjúklingar við framleiðslu á t.d.
hellum, tjaldhælum, rennuböndum, bóka-
stoðum og nú fyrir jólin selja þeir jólaskreyt-
ingar. Sem kiwanismaður var ég stoltur og
ánægður er ég leit við í Bergiðjunni ekki alls
fyrir löngu. Stoltur yfir því að hafa tekið þátt í
uppbyggingu þessa staðar og ánægður yfir
starfsandanum hjá fólkinu.
Húsið við Alfaland sem Kiwanismenn
söfnuðu fé til, og rekið er að Geðverndar-
félaginu er nú formlega tekið í notkun, og
fyrsta fólkið flutt inn. Þessir skjólstæðingar
okkar hefja nú störf í almennum vinnu-
markaði, og hefja vonandi nýtt og hamingju-
samara líf.
Við sem erum svo lánsamir að hafa góða
heilsu megum aldrei vera svo uppteknir að
okkur sjálfum og vinnu okkar að við gleymum
meðbræðrum okkar og þeim sem minna mega
sín í þjóðfélaginu.
Kiwanismenn hér á landi hafa svo
sannarlega stuðlað að „Byggingu betra lífs“
með störfum sínum á undanförnum árum.
Góði kiwanisfélagi, ég óska þér og
fjölskyldu þinni gleðilegra jólahátíðar.
Ævar Breiðfjörð,
umdæmisstjóri.
8
K-FRÉTTIR