Kiwanisfréttir - 01.08.1997, Blaðsíða 25
nig hefur þetta verið um árabil. Þetta
mikilvæga starf má ekki vera háð
geðþóttaákvörðun eins manns.
Fræðslan er á ábyrgð umdæmis-
stjórnar. Segja má að endurskoðun
fræðsluefnisins hafi fyrir alvöru hafist
á starfsárinu 1994-95. Leiðrétta þurfti
villur og koma á framfæri breytingum
sem m.a. byggðust á lagabreytingum
og tilkomu kvenna í hreyfinguna.
Margir kaflar hafa verið endurskrif-
aðir og hafa Keflvíkingarnir Einar
Már Jóhannsson og Guðmundur Pét-
ursson skilað góðu starfí í þeim efn-
um. í fræðsluhandbók yfirstandandi
starfsárs hafði tekist að leiðrétta flest-
ar villur sem í fræðsluefninu voru, en
eftir stóð þá að velja úr það sem
nauðsynlega þurfti að koma á fram-
færi við embættismenn umdæmis og
klúbba. Fræðslunefnd næsta árs hefur
gert virðingarverða tilraun í þessa átt,
en gera má enn betur. Það er miður að
engar leiðbeiningar um mætin-
gareglur og lögleg forföll er að finna í
fræðsluefni næsta starfsárs, en
alþjóðasambandið hefur gefið slíkar
reglur út, þær hafa verið þýddar og
eru til hjá umdæminu og eru þetta
einu reglurnar sem heimilt er að nota.
Þetta undirstrikar það sem áður hefur
verið bent á, að umdæmisstjórn
verður að marka sér ákveðna stefnu í
þessum málum. Það er skoðun mín að
fræðslan eigi fyrst og fremst að vera á
faglegum nótum. Það á eingöngu að
fræða menn um það sem þeir verða að
vita og þurfa nauðsynlega að nota í
sínu starfi. Þetta á að gera með
sýnikennslu og með notkun þeirra
raunverulegu gagna sem nota þarf í
starfi viðkomandi embættismanna.
Annað efni eins og t.d. fróðleikur um
sögu hreyfingarinnar, stofnun nýrra
klúbba og fl. er nóg að hafa á
umdæmisskrifstofunni þar sem féla-
garnir geta haft greiðan aðgang því.
Það er von mín að þeir sem eru nú að
taka við stjórn umdæmisins og þeir
sem verða við stjórnvölinn á komandi
árunt taki á þessu máli og afgreiði það
á viðunandi hátt þannig að fræðslan
komi að betri notum í framtíðinni og
nýtist þeim betur sem á þurfa að
halda.
Hennann Þórðarson
\r
endir
ftc&tn
á umdæmisbinq
w
Erlendir gestir á umdœmisþinginu í Reykjavík eru fjórir að þessu sinni. Þeir eru Göran Hurtig um-
dœmisstjóri Norden og kona hans Móita, og Harris Waller fulltrúi í Heimsstjórn, sem verður ráðgjafi
umdæmisins á nœsta starfsári og kona lians Nancy.
Harris Waller ráðgjafi um-
dæmisins 1997-98, hefur
verið félagi í Kiwanisklúbbn-
um Red Wing í Minnesota í 38
ár, en klúbburinn er stærsti
Kiwanisklúbburinn í Minne-
sotaríki.
Harris er af norskum ættum
en eins og kunnugt er er mikið
af fólki af norrænum ættum í
Minnesota og Dakotaríkjum í
Bandaríkjunum.
Harris varð forseti klúbbs-
ins árið 1982 og hlaut útnefningu sem frábær klúbb-
forseti, og jafnframt sem frábær svæðisstjóri 1984. Hann
var umdæmisstjóri Minnesota-Dakotas umdæmisins,
1990-91.
Hann hefur ntikla reynslu af Kiwanisstarfi og hefur
setið í fjölda nefnda á vegunt umdæmis síns og frá 1992
hefur hann einnig starfað í nefndum Alþjóðasambands-
ins, svo sem árangursnefnd og skipulagsnefnd, og jafn-
framt verið formaður í stjórnunar og viðverunefnd,
1994-96.
Hann þjónar á þessu starfsári í stjórnarnefnd Alþjóða-
sambandsins um fræðslu og verkefnamál og ennfremur í
nefndinni sem fjallar um þing og ráðstefnur og sam-
skiptamálefni.
Harris er menntaður á viðskiptasviðinu og starfar að
bankamálum. Harris og kona hans Nancy eiga tvö börn
og fimm barnabörn.
Göran Hurtig, untdæmis-
stjóri Nordenumdæmisins,
er sænskur og fæddur í litlu
þorpi sem stendur á norð-aust-
ur strönd vatnsins Vánern í
Vermalandi í Svíþjóð. Að námi
loknu gekk hann í sænska her-
inn og var liðsforingi í stor-
skotaliðinu. Starfsins vegna
var fjölskyldan á ferð og flugi
um alla Svíþjóð. Eftir 23 ára
starf í hernum hóf hann störf
hjá sænsku björgunarstofnun-
inni, Ráddnings Verket, sem er opinber stofnun sem
gegnir svipuðu hlutverki og Almannavarnir hér, og hefur
starfað þar um níu ára skeið við skipulag og samræm-
ingu björgunaraðgerða og vegna hjálparstarfa erlendis.
Göran gekk í Kiwanisklúbbinn í Kristinehamn í Svíþjóð
fyrir 20 árum síðan og var forseti þess klúbbs. Seinna
flutti hann til Karlstad þar sem hann gekk í Kiwanis-
klúbbinn þar, varð forseti hans og síðar tvívegis svæðis-
stjóri Svíþjóðar innan Nordenumdæmisins. Hann hefur
einnig starfað sem KIAR (útbreiðslufulltrúi) og í út-
breiðslunefnd umdæmisins. Kjörorð hans sem umdæm-
isstjóra eru: „Samvinna án landamæra.“ Með þessu vill
hann leggja áherslu á að Kiwanishugmyndin nær lengra
en til sveitarfélagsins þar sem klúbburinn starfar, lengra
en svæðið eða umdæmið. Helstu áhugamál Görans eru
Kiwanis, veiðar og siglingar. Göran og Móna kona hans
eiga fjögur uppkominn börn og fímm barnabörn.
KIWANISFRÉTTIR
25