Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 10
GRINDAVIK / FERÐAMAL
Saltfisksetur íslands í Grindavík var stofnað
haustið 2002 og hefur á þeim stutta tíma náð
að marka sér stöðu sem einn af helstu ferða-
mannastöðum Reykjaness. A/likill vaxtarbroddur
er í ferðamennsku á svæðinu og segir Óskar
Sævarsson, forstöðumaður Saltfisksetursins og
stjórnarmaður í Ferðamálasamtökum Suður-
nesja að möguleikarnir hér á Suðurnesjum séu
næróþrjótandi.
Texti og myndir: Þorgils Jónsson
„Það hefur verið nokkur aukn-
ing hjá okkur undanfarið og
sem dæmi var síðastliðinn febr-
úar okkar besti febrúarmánuður
frá upphafi,” segir Óskar, en á
síðasta ári sóttu 12000 gestir
setrið heim,
Fjölbreytt starfsemi er í Saltfisk-
setrinu, en fyrir utan sýninguna
„Saltfiskur í sögu þjóðar”, sem
hefur verið uppi frá upphafi er
í setrinu glæsilegur listsýninga-
salur þar sem nokkrir frægustu
listamenn þjóðarinnar hafa
sýnt verk sín. Vinsældirnar hafa
heldur ekki látið á sér standa og
sækja nú um 400 manns hverja
sýningu að jafnaði. Óskar segir
sýningarsalinn í mikilli sókn
sem slíkan, en hann er nú full-
bókaður fram á næsta ár.
„Mesta umferðin hjá okkur
þessa dagana er í hópferðunum,
en þá koma til okkar vinnu-
staðir eða félög. Ferðin hefst
gjarnan í hellaferð í nágrenninu,
hópurinn kemur svo hingað í
Saltfisksetrið þar sem er boðið
upp á rauðvín og saltfiskbollur
eftir sérstakri uppskrift,” segir
Óskar, en eftir þá dagskrá er
farið á veitingastað í Grindavík
til að snæða og eftir það á pöbb-
arölt.
Áætlanir eru þó uppi um að í
nánustu framtíð verði í Saltfisk-
setrinu allsherjarferðamanna-
miðstöð. Lykillinn að því er í
fyrsta lagi að bæta aðstöðu í
setrinu, en strax næsta surnar er
gert ráð fyrir að opna kaffiteríu
sem hefur bráðvantað til að geta
annað eftirspurn. „Svo erum við
líka að byrja með aðra nýjung
en það er svokölluð hljóðleið-
sögn. Þá fá erlendir ferðamenn
geislaspilara með heyrnartólum
með sér sem leiðir þá um sögu-
sýninguna og segir frá því sem
fyrir augu her á tungumáli áhorf-
andans.”
Sá ferðamannahópur sem
hefur vaxið hvað örast á síð-
ustu árum er farþegar skemmti-
ferðaskipa, en Óskar hefur lagt
mikla áherslu á að fá slíka við-
skiptavini á Reykjanes. „Það
skiptir öllu máli að markaðs-
setja svæðið rétt og bjóða upp
á eitthvað einstakt. Við höfum
til dærnis verið að vinna í því
að koma á fót jeppaferðum um
Reykjanesið, en það verður
að sjálfsögðu skipulagt með
umhverfisvernd í huga,” segir
Óskar og er full alvara þar sem
hann metur hið ósnortna svæði
Reykjaness mikils. Flann hefur
gengið um nesið þvert og endi-
langt frá því hann var drengur
og þekkir þar til betur en flestir.
Óskar var einmitt í göngu fyrir
skemmstu ásamt ferðahópnum
FERLIR þegar hann rak augun í
áður óþekktar mannvistarleyfar
sem stendur til að rannsaka og
aldursgreina.
Honum er heitt í hamsi þegar
talið berst að umgengni fólks
á Reykjanesi, sem hann segir
til háborinnar skammar. „Það
eru ótrúlega margir útlendingar
sem hafa farið um svæðið sem
minnast á slíkt. Það er varla eitt
skilti sem ekki er útskotið svo
að maður minnist ekki á gróð-
urskemmdirnar. Jeppaslóðirnar
og förin eftir torfæruhjólin eru
skelfileg. Það má ekki skilja sem
svo að ég vilji láta banna hjólin
og jeppana með öllu, en við
verðum að vinna saman að því
að frnna öllum stað. Það gengur
ekki að bjóða fólki að skoða nátt-
úru sem er búið að fara svona
með.”
Möguleikar Reykjaness í ferða-
mannaiðnaðinum eru nær
óþrjótandi og með bættum sam-
göngum telur Óskar að svæðið
eigi enn eftir að eflast. „Tilkoma
Kynnisferða hér á svæðinu
hefur stóraukið tíðni rútuferða
frá Reykjavík. Það er að vísu
óvíst með framhaldið á því þar
sem fyrirtækið er til sölu, en við
erum bjartsýn.”
Þá hafa Ferðamálasamtökin
staðið fyrir rniklu átaki í að
merkja gönguleiðir á svæð-
inu og er nú búið að stika 5 af
u.þ.b. 20 leiðum leiðum. Auk
þess er búið að setja upp eitt af
6 stórum gönguleiðaskiltum við
Sólarvéið í Grindavík.
Vonir Óskars og fleiri ferðaþjón-
ustaðila á svæðinu standa til
þess að fá nánara samstarf við
Bláa lónið, fjölsóttasta og best
kynnta ferðamannastað lands-
ins. „Það væri mikil lyftistöng
fyrir Grindavíksem ferðamanna-
stað að kúnninn gæti farið í
Bláa lónið og tekið þaðan rútu
að Grindavík. Þaðan væri svo
farið í hellaferðir, gönguferðir,
ferðir með Leiðsögumönnum
ses. eða eitthvað slíkt. Þá gæti
Þegar þú pantar þér ný gleraugu, fylgir frítt par af
sólglerjum með þínum fjærstyrkleika: Notaðu eigh^^^^^^^
umgjörð eða við bjóðum þér nýja á hagstaaðu verði.
Styrklelki 0 til -6/0 til +4, sjónskekkja til 1.00
Optical Studio
KEFLAVÍK
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
10
VfKURFRÉTTIR i 12.TÖLUBIAÐ 27. ÁRGANGUR