Víkurfréttir - 23.03.2006, Blaðsíða 27
Aðsent efni: postur@vfis
Helga Sigrún Harðardóttir skrifar:
ALLT í PLATI
Böðvar Jónsson bæjar-
fulltrúi skrifaði grein
í síðasta tölublað Vík-
urfrétta þar
s e m h a n n
bendir á að
kosningabar-
átta D-listans
hafi staðið frá
síðustu kosn-
ingum. Ergo.
Kosninga-
barátta D-listans hefur snúist
um sölu eigna og fjármögnun
ýmissa gæluverkefna sem ekki
hafa skilað miklu öðru en stein-
steypu og auknum skuldum.
íbúafjölgun sem fráfarandi
meirihluti hefur haldið á lofti
og þakkað sér, er í takt við
fjölgun íbúa á öðrum svæðum
semliggjaaðhöfuðborgarsvæð-
inu og því um eðlilega þróun
að ræða. Nema áhrifasvæði D-
listans í Reykjanesbæ, nái upp
á Akranes, í Hveragerði og á
Selfoss? Og sjá menn kannski
fyrir sér mikla fóiksfjölgun
í bænum, þar sem mönnum
hefur ekki hlotnast sú gæfa
að halda almennilega á spöð-
unum í atvinnumálum?
D-listinn stingur
höfðinu í sandinn...
Töluvert hefur runnið af stein-
steypu í Reykjanesbæ á undan-
förnum árum og er það vel, svo
langt sem það nær. Nú standa
bæjarbúar frammi fyrir alvar-
legu ástandi í atvinnumálum
sem Böðvar og hans félagar
hafa engar áætlanir um nema
það sem þeim hefur dottið í hug
á undanförnum dögum. Þegar
þeir tóku við völdum fyrir
íjórum árum síðan, var hafist
handa við að “endurskipuleggja”
rekstur bæjarins. Hluti af að-
gerðinni var að leggja niður
Markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofuna (MOA), sem þó var að
mestu kostuð af Byggðastofnun
og segja upp þremur starfs-
mönnum sem þar höfðu unnið
að uppbyggingu í atvinnu- og
ferðamálum. Bæjarstjórinn ætl-
aði þá sjálfur að sinna þeim verk-
efnum sem starfsmennirnir þrír
höfðu unnið að til að halda nú
örugglega í alla spottana sjálfur,
eins og raunin hefur orðið í
ýmsum málum bæjarins, þ.m.t.
fjármálum nú undanfarna mán-
uði. Allt hefur það verið unnið
bak við luktar dyr og enginn
til frásagnar um þau verkefni
sem leitað hefur verið til bæj-
arstjórans með. Síðar voru at-
vinnumálin, ef ég man rétt, færð
undir atvinnu- og hafnaráð.
Helstu afrek manna á þeim bæ
er framkvæmd upp á hundruðir
milljóna við lóðina sem stálpípu-
verksmiðjan átti að rísa á, sem
engum hefur nýst ennþá. Rétt
er að halda til haga að bæjar-
stjórinn fullyrti á opnum fundi
að fjármögnun á stálpípuverk-
smiðju væri lokið en það var
svo bara allt plat. Hann fullyrti
svo á öðrum fundi að á meðan
hann væri bæjarstjóri, yrði
fækkun starfa á vellinum ekki
vandamál og því væri ekkert að
óttast. Eins og hann stjórnaði í
Washington. Líka plat. Eftir að
ljóst var að stálpípuverksmiðjan
yrði ekki reist fóru menn að
tala um álver, sem því miður er
ekki útlit fyrir að rísi á næstu
misserum. D-listinn hefur því
ítrekað stungið höfðinu í sand-
inn, neitað að leggja vinnu í það
að undirbúa brotthvarf hersins
af svæðinu þar sem það væri
þá viðurkenning á því að sýnd-
arveruleiki þeirra væri bara
plat. Enda stendur fráfarandi
meirihluti nú á ögurstundu og
kastar fram tillögum sem aldrei
hafa sést áður og tekur langan
STÆRSTA FRÉTTA-OG AUGlVSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Horft yfir Helguvtk og til Keflavikur og Njarðvíkur.
Ljósm: Oddgeir Karlsson
HVAR ERT ÞU AÐ AUGLYSA
AUGLYSIIMGASIAAINN ER 4210000
Eysteinn Jónsson skrifar:
ATHAFNIR
í STAÐ ORÐA
tíma að vinna, EF þær verða ein-
hverntíma unnar. Hundruðir at-
vinnulausra manna og kvenna
í Reykjanesbæ hafa þó líklega
ekki tíma til að bíða eftir því.
Ekki má þó gleyma því að at-
vinnuráðgjafi sem ráðinn var
til SSS eftir breytingarnar hjá
Reykanesbæ, sinnti einn mjög
viðamiklu starfi og hefur reynst
mörgum vel. Ráðgjafmn hefur
hins vegar sagt upp störfum og
er hættur þegar þessi orð eru
rituð og nú hefur verið auglýst
eftir fjármálastjóra/atvinnuráð-
gjafa sem aðallega á að sinna
greiðslu reikninga, innheimtu,
fjármálalegu eftirliti og öðrum
verkefnum. Svo mikill er áhug-
inn á uppbyggingu atvinnumála
á þeim bænum.
..og skreytir sig með
stolnum fjöðrum
I aðdraganda alþingiskosninga
2003 tók ég þátt í verkefni sem
Framsóknarflokkurinn stóð
fyrir þar sem um 40 manns tóku
þátt í að kortleggja atvinnu- og
markaðstækifæri svæðisins. Til-
lögur þessar voru afhentar for-
svarsmönnum bæjarins vorið
2003 en líklega hefur þeim verið
stungið undir stól, þar sem fátt
hefur heyrst af þeim síðan. Ég
hef jafnframt verið svo lánsöm
að frá árinu 2000 hef ég verið
þátttakandi í þeirri uppbygg-
ingu sem átt hefur sér stað í
tengslum við alþjóðaflugvöllinn
sem stjórnarmaður í Flugstöð
Leifs Éiríkssonar hf. og síðar
í Fríhöfninni ehf. Fráfarandi
meirihluti í Reykjanesbæ hefur
talið framkvæmdir við stækkun
stöðvarinnar, fjölgun starfa og
aukin umsvif, með í útreikn-
ingum, um framkvæmdir í
Reykjanesbæ, þrátt fyrir að Flug-
stöðin sé staðsett í öðru sveit-
arfélagi. D-listinn hefur ekki
lagt hönd á plóg í Flugstöðinni,
heldur starfsfólk hlutafélagsins
og stjórn.
Nýr valmöguleiki
bæjarbúa
í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum býðst bæjarbúum að
snúa við þeirri óheillavænlegu
þróun sem fráfarandi meirihluti
hefur kallað yfir þá. A-listinn
býður fram kröftuga einingu
sem hefur traust, ábyrgð og heið-
arleika að leiðarljósi og er tilbú-
inn til að leggja sitt af mörkum
við uppbyggingu betri bæjar
fyrir fólkið sem þar býr með
mannlegri nálgun og ábyrgð
auk atvinnutækifæra. Eg skora á
íbúa í Reykjanesbæ að merkja X
við A á kjördag 27. maí n.k.
Helga Sigrún Harðardóttir.
Höfundur er stjórnarmaður
í Frthöfninni ehf. ogsitur í
kosningastjórn A-listans.
Einhliða tilkynning
Varn arliðs ins um
stórfelldan samdrátt
------------ í vörnum ís-
Iands hefur
mikil áhrif
á atvinnu-
urnesjum.
Atvinna er
undirstaða
vel ferð ar
hverrar fjölskyldu. Mikilvægt
er fyrir Suðurnesjamenn
að snúa bökum saman og
heQa nú þegar undirbúning
að brottför Varnarliðsins.
Stjórnvöld spila stórt hlut-
verk í þessum verkefnum,
því er afar mikilvægt að
samstarfið við stjórnvöld sé
eins og best verður á kosið.
Traust, ábyrgð og heiðarleiki
þarf að ríkja í samskiptum
við stjórnvöld.
Leggja þarf áherslu á þrjá
megin áherslupunkta í þeirri
vinnu sem framundan er:
1. Hvernig verður tekið á
móti þeim sem missa vinn-
una: Leggja verður áherslu á
að reynt verði að draga sem
mest úr þeirri óvissu sem
það fólk er í sem nú starfar á
Keflavíkurflugvelli. Þeir sem
geta búist við endurráðningu
við sömu störf hjá öðrum að-
ila verði gerð grein fyrir því
eins fljótt og auðið er. Unnið
verði að því að starfslok þeirra
sem munu missa sína vinnu
verði vel undirbúin og náið
samráð verði haft við alla að-
ila. Unnið verði að því að sem
flestir fái starfslokasamning,
endurmenntun á launum,
eða á annan hátt auðvelduð
leitin að annarri atvinnu. Sér-
staklega verði kannað hvort
stofnun frumgreinadeildar og
fjölgun starfsmenntabrauta
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
geti hjálpað til við lausn hluta
þessa vanda.
2. Uppbygging nýrra atvinnu-
tækifæra sem taka skamman
tíma og geta komið til fram-
kvæmda strax eða innan árs:
Stjórnvöld verða að fá niður-
stöðu í það sem allra fyrst
hvernig farið verði með þá
aðstöðu sem er nú á umráða-
svæði Varnarliðsins en mik-
ilvægt er að sú aðstaða sem
losnar verði nýtt til atvinnu-
uppbyggingar. Þar má helst
nefna flutning Landhelgis-
gæslunnar en fyrirsjáanlegt
er að efla þarf bæði þyrlusveit
hennar og skipakost. Miðstöð
eftirlits með land- og loft-
helgi íslands verði staðsett á
Keflavíkurflugvelli. Miðstöð
öryggismála þjóðarinnar verði
staðsett á Keflavíkurflugvelli.
Flugmálastjórn íslands verði
staðsett á Keflavíkurflugvelli.
Öryggisgæsla í Leifsstöð þarf
að eflast, þ.e. landamæra-
gæsla og fíkniefnaeftirlit sbr.
Schengen. Mikilvægt er að efla
starfsemi Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja (HSS) í tengslum
við mögulegan flutning mið-
stöðvar innanlandsflugs til
Keflavíkurflugvallar, m.a. með
sólarhringsvöktum við HSS og
opnun nýrrar skurðstofu.
3. Uppbygging atvinnulífsins
á Suðurnesjum til lengri tíma.
Leggja þarf áherslu á að stofn-
aður verði Nýsköpunarsjóður
Suðurnesja með sérstöku fram-
lagi frá Ríkisstjórn íslands
þar sem horft verði til nýrra
atvinnutækifæra á svæðinu og
einstaklingum auðveldað að
hefja eigin atvinnurekstur með
aðgangi að ráðgjöf og stofn-
styrkjum auk áhættulána og
lánatrygginga. Þá verði horft
sérstaklega til þeirra tækifæra
sem skapast í kringum alþjóða-
flugvöllinn við brotthvarf hers-
ins. Jafnframt verði horft til
Helguvíkur sem framtíðar iðn-
aðar- og/eða stóriðjusvæðis í
þeirri vinnu.
Ágætu íbúar Reykjanesbæjar,
oft var þörf, en nú er nauðsyn.
Það er því áríðandi í komandi
kosningum að við veljum
okkur framsækna, stórhuga,
öfluga og jákvæða forystu til
nýrrar framtíðar.
Eysteinn Jónsson
Skipar 2. sœtið á A-list-
anuin í Reykjanesbœ
VIKURFRÉTTIR . FIMMTUDAGURINN 23. AAAR5 20061 27