Víkurfréttir - 23.03.2006, Blaðsíða 15
Námskeið á næstunni
nýta flugskýli Varnarliðsins til
að breyta farþegavélum í farm-
vélar og öfugt, en til þess þarf
þessa aðstöðu sem einungis er
til staðar á Keflavíkurflugvelli.
Ákveðið var að mynda sjö
manna samráðsnefnd ríkis og
sveitarfélaganna og leggja sveit-
arstjórnamenn mikið upp úr því
að árangur sjáist af starfinu ekki
síðar en um mánaðarmót. Þá er
talið að fyrstu uppsagnarbréfin
fari að berast starfsmönnum.
Á stjórnarfundi Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum sem
haldinn var á mánudagsmorgun
ítrekaði stjórnin í ályktun sinni
að brýnt væri að bregðast skjótt
við vegna atvinnuástandsins.
Jón Gunnarsson, formaður
stjórnar SSS, alþingismaður og
forseti bæjarstjórnar í Vogum,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að forgangsatriði sé að fá á
hreint hverjir af starfsmönnum
á Keflavíkurflugvelli haldi
stöðum sínum. „Þar á ég við
starfsmenn Slökkviliðsins og
brautarstarfsmenn. Svo þurfum
við að fylgja því eftir að Land-
helgisgæslan verði flutt til Kefla-
víkur og síðast en ekki síst þarf
að ýta á úrlausnir í yfirtöku á
landsvæði og húsnæði á varn-
arstöðinni. Við þurfum að vita
hver umsvif Bandaríkjamanna
verða því það kemur ekki til
greina að húsin standi tóm þar
til herinn ákveður að koma til
baka. Það er það versta sem
getur gerst.“
Þorsteinn Erlingsson, formaður
Atvinnu- og hafnarráðs Reykja-
nesbæjar, sagði í samtali við Vík-
urfréttir að hugur sveitastjórn-
armanna væri hjá því fólki sem
mun missa vinnuna og að þeir
muni reyna allt til að hjálpa
þeim. Hins vegar yrði Reykja-
nesbær einnig fyrir miklum
búsifjum. „Þetta er mikið tjón
fyrir okkur, en það kemur sér
vel að við í Reykjanesbæ erum
búin að vinna ötullega í atvinnu-
málum síðustu ár. Við brugð-
umst hratt við og kölluðum rík-
isstjórnina að borðinu, en nú
taka hins vegar við mánuðir og
ár sem við þurfum að berjast
við að fylgja þessum málum
eftir gagnvart ríkinu. Til þess
þarf sterka forystu og ég treysti
engum betur til þess heldur en
Árna Sigfússyni."
Guðbrandur Einarsson, for-
maður Verslunarmannafélags
Suðurnesja og oddviti A-listans
í Reykjanesbæ, sagði í samtali
við Víkurfréttir að ástandið sé
vissulega skelfilegt en lausnin
felist í samtakamætti Suður-
nesjamanna. „Nú þurfum við að
spýta í lófana, en ég þekki kraft-
inn sem býr í fólkinu í kringum
mig og ég er viss um að við
munum finna svör við spurn-
ingum dagsins innan tíðar.“
Ríkisstjórn og ráðherrar hafa
haft í mörg horn að líta undan-
farna viku þar sem þeir hafa
rætt við sveitarstjórnir og stéttar-
félög. Halldór Asgrímsson, for-
sætisráðherra sagði á fundi sem
Framsóknarflokkurinn í Reykja-
nesbæ hélt í Stapa að þrjár meg-
instoðir kæmu í stað varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. Þær
væru Flugstöð Leifs Eiríkssonar
hf, Landhelgisgælan, sem myndi
eflast mikið við þessar nýju að-
stæður þar sem flugflotinn yrði
stóraukinn, og Sýslumannsemb-
ættið á Keflavíkurflugvelli. Sýslu-
mannsembættin á svæðinu yrðu
hugsanlega sameinuð og starf-
semi þeirra efld.
Ríkisstjórnin hefur verið gagn-
rýnd nokkuð fyrir að hafa ekki
séð þessa atburðarás fyrir. Á
Alþingi hefur verið deilt á ráð-
herra fyrir meint sinnuleysi,
en Jón Gunnarsson benti á að
stjórnarandstaðan á þingi hafi
lengi talað fýrir fyrirbyggjandi
aðgerðum af hálfu stjórnvalda.
Stjórnarliðar hafi hins vegar
ekki hlustað þar sem þeir hafi
verið sannfærðir um að samn-
ingar tækjust um nær óbreytta
starfsemi, þó með auknum til-
kostnaði íslenska ríkisins.
Tækifæri eftir áfallið
Nú horfa allra augu til framtíðar
og síðustu viku hafa ótal hug-
myndir komið fram um fram-
tíðarlausnir í atvinnumálum
Suðurnesja. Þar má nefna allt
frá álveri, innanlandsflugi og
eflingu alþjóðaflugvallar til
heilsutengdrar ferðaþjónustu
og miðstöðvar fyrir alþjóðlegar
pakkaþjónustumiðstöðvar. Þá
minntist Ólafur Örn Ólafsson,
bæjarstjóri í Grindavík, á mögu-
leikana sem felast í byggingu
hótels við Bláa lónið, vinsælasta
ferðamannastað landsins.
Ljóst þykir að álversdraumarnir
hafa fengið byr undir báða
vængi. Nú er svo komið að for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Al-
freð Þorsteinsson, hefur gengið
fram fyrir skjöldu og boðist til
að bæta upp orkuþörf fyrir ál-
ver í Helguvík. Þá hafa forsvars-
menn Norðuráls lýst sig reiðu-
búna til að hefja framkvæmdir
strax á næsta ári.
Svarið felst hins vegar ekki í
þessum eina þætti því álfram-
leiðsla mun ekki hefjast fyrr en
eftir nokkur ár. Allir aðilar á Suð-
urnesjum hafa lýst sig tilbúna
til að vinna saman að bættu at-
vinnuástandi í farmtíðinni og
það er lykilatriði í málinu.
Nú er ekki tími fyrir argaþras og
hreppapólitík heldur fyrir sam-
vinnu að sameiginlegu marki.
Fara verður gaumgæfilega yfir
allar hugmyndir og meta þær
með það fyrir augum að skapa
atvinnu bæði til skamms tíma
og langframa litið.
Enginn skal gera lítið úr því
áfalli sem starfsfólk á varnar-
stöðinni sér fram á. Hins vegar
er, þar sem skaðinn er skeður,
engin ástæða til annars en að
líta á stöðuna sem tækifæri til
að renna nýjum stoðum undir
blómlegt mannlíf á Suður-
nesjum.
• Vélgæsla
• Ullarþæfing
• Sakamálasögur
• Göngum okkur til gamans
• íslenska fyrir útlendinga
Lesblindugreiningar
Upplýsingar og skráning í stma 421 7500
eða www.mss.is
Herdís Debes,
Ásabraut 5, Keflavík,
sem lést á Heilbrigöisstofnun Suðurnesja
laugardaginn 11. mars hefur verið jarösungin
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kjartan Símonarson,
Kristín Hallbergsdóttir Hedström, Thomas Hedström,
Björn Heiðar Hallbergsson, Hulda Björk Stefánsdóttir,
Símon Hallberg Kjartansson,
barnabörn og langömmubarn.
A-LISTINN
Hvernig nýtum vi& tækifærin?
Taktu þátt í að móta framtíS Reykjanesbæjar á opnum
málefnafundi A-listans um atvinnumál á kosningamiðstö&inni
á Glóöinni, Hafnargötu 62, mánudaginn 27. mars kl. 20.
Súpufundur á Glóöinni kl. 11, laugardaginn 25. mars
Friöjón Einarsson ræöir Markaðs- og atvinnuskrifstofuna.
Allir velkomnir
*A
STÆRSTA FRÉTTA- 0G AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRETTIR I FIMMTUDAGURINN 23. MARS 2006
15