Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 16

Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 16
VARNARLIÐIÐ Á FÖRUM Bæjarstjórn Sandgerðis bókar í kjölfar fundar með ráðherrum: Hugað verði sérstaklega að aðstæðum starfsmanna Varnarliðsins sem eru að nálgast eftirlaunaaldur Forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra sátu fund með sveitarstjórn Sand- gerðisbæjar og Reykjanesbæjar en á þeim fundi var gerð grein fyrir stöðu mála er varðar sam- drátt á flugvallarsvæðinu og að flest bendi til að starfsmenn fái uppsagnarbréf um næstu mánaðarmót. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar leggur áhersla á neðanritað í framhaldi af gagnlegum og góðum fundi. 1. Að skipuð verði samráðs- nefnd, sjö manna, hið fyrsta á vegum ríkisins og sveitarfélag- anna til að takast á við brýn verkefni á næstu vikum og að bæjarstjóri verði fulltrúi Sand- gerðisbæjar. 2. Að óskað verði eftir fundi um sameiningu Brunavarna Suður- nesja, slökkviliðs Sandgerðis- bæjar og slökkviliðs Keflaflug- vallar hið fyrsta. Stofnað verði fyrirtæki sem taki að sér rekstur flugbrauta, rekstur slökkviliða, snjóruðning- tækja og viðhald brauta og lend- ingarbúnaðar. 3. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar er tilbúin til að hraða uppbygg- ingu hjúkrunarheimilis í bæjar- félaginu enda fáist til þess leyfi og fjármagn frá Heilbrigðisráðu- neytinu. Um er að ræða aukn- ingu á störfum í bæjarfélaginu. 4. Að hraðað verði uppbyggingu á svæði við Lyngsel en svæðið er hugsað sem „Vin” fyrir fólk með sérþarfir og að Félags- og Heilbrigðisráðuneytið taki þátt í og móti með bæjarfélaginu slíkt skjól og þar með atvinnuupp- byggingu á svæðinu. 5. Að hraðað verði skilum á Rockville svæðinu sem er hugsað undir atvinnusvæði. 6. Að hraðað verði uppbygginu á sædýrasafni í Sandgerðisbæ sem verði til að styrkja ferða- þjónustu á svæðinu enda er aug- ljóst að slík uppbygging er at- vinnuskapandi fyrir svæðið allt. 7. Að Landhelgisgæslan verði flutt á Suðurnes hið fyrsta og að allri uppbyggingu verði hraðað er það mál varðar. 8. Að innanlandsflugið verði flutt á Suðurnesin. 9. Að ríkisstjórn íslands leggi áherslu á uppbyggingu á stór- iðju í Helguvík 10. Að öryggis- og varnamál landins verði komið í tryggan og góðan farveg. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar leggur þunga áherslu á að hugað verði sérstaklega að aðstæðum þeirra starfsmanna Varnarliðs- ins sem eru að nálgast eftirlauna- aldur. Bæjarstjórn tekur jafnframt undir margar góðar ábendingar og skrifleg skilaboð til ríkistjórn- arinnar sem lögð voru fram á fundi í Reykjanesbæ 19. mars. 2006. BnoiÍBíai! faswaílitsHfö ■ teMteít -Ályktun stjórnar Samfylkingarinnar í Reykjanesbœ 18. mars 2006 Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ harmar að nú skuli koma til upp- sagna starfsmanna bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli án þess að nokkuð hafi verið gert til að undirbúa starfslok þeirra. Andvaraleysi sjálfstæðismanna Fyrir síðustu sveitarstjórnar- kosningar bentu frambjóðendur Samfylkingarinnar á að eitt af mikilvægustu verkefnum kjör- tímabilsins væri að undirbúa viðbrögð vegna verulegrar fækk- unar í herliðinu á Keflavíkurflug- velli. Viðbrögð sjálfstæðismanna voru þau að þetta mætti ekki ræða enda lýsti oddviti þeirra Árni Sigfússon því yfir að hann ætlaði að sjá til þess að ekki yrði um verulega fækkun að ræða, þetta tal væri hins vegar sönnun þess að Samfylkingin í Reykja- nesbæ ætlaði að reka herinn. Nú þarf starfsfólk á Keflavíkur- flugvelli að súpa seyðið af þessu andvaraleysi ráðamanna Sjálf- stæðisflokksins. Það vita þó allir að sveitarstjórnarmenn hafa ekk- ert með það að gera hvort um samdrátt eða brottför verður að ræða hjá Bandaríkjaher hér á landi. Það er hins vegar skylda sveitastjórnarmanna að standa vörð um hagsmuni íbúanna og í því efni hefur Sjálfstæðisflokkur- inn í Reykjanesbæ brugðist. Það er hjákátlegt að sjá núver- andi bæjarstjóra Árna Sigfússon koma fram í fjölmiðlum og gefa til kynna að bæjarstjórnin hafi verið að vinna í þessum málurn. Hið rétta er að sjálfstæðismenn hafa komið í veg fyrir slíka vinnu. Ekki hlustað á skynsemis- rödd Samfylkingarinnar Á vordögum 2003, þegar ljóst var að Bandaríkjamenn vildu draga verulega úr starfsemi sinni, óskuðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að sveitarstjórnarmenn á Suður- nesjum yrðu boðaðir til fundar ásamt fulltrúum frá forsætis- og utanríkisráðuneytum hið fyrsta. Sjálfstæðismenn breyttu tillög- unni í að halda skuli fund þegar aðstæður leyfa. Þær aðstæður hafa ekki enn komið upp að þeirra mati. Þegar að bæjarfulltrúar Sam- fylkingarinnar í Reykjanesbæ hafa reynt að ná upp vitrænni umræðu uni viðbrögð til varnar því fólki sem vinnur á Keflavík- urflugvelli þá hafa sjálfstæðis- menn í meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar ekki haft hug á slíkum umræðum því þar með gætu þeir verið að auðvelda hernum að fara. Á þennan hátt hafa sjálfstæðis- menn í Reykjanesbæ brugðist því fólki sem starfar á Keflavík- urflugvelli. Nú þegar þeir standa loks frammi fyrir því að fólk missi atvinnu sína innan skamms, þykjast sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hafa verið að vinna í þessum málum. Betra er nú en aldrei og mikilvægt er að allir sameinist um að verja hagsmuni starfsfólks Keflavík- urflugvallar og þeirrar byggðar sem óneitanlega hefur þróast með hliðsjón af því að hér hefur verið herstöð. Viðræður um viðskilnað -Samfylkingin leggur áherslu á að nú þegar verði teknar upp viðræður við Bandaríkjamenn um viðskilnað þeirra. Það þarf að semja um viðskilnað við fólkið Starfsfólki á Keflavíkurflug- velli, sem hefur unnið nánast alla sína starfsæfi á sérhæfðum vinnustað og á ekki auðvelt með að ganga í önnur og ólík störf, ber að tryggja starfslokasamn- inga, endurmenntun á launum eða auðvelda þeim lendinguna á annan hátt. Það þarf að semja um við- skilnað við mannvirkin Einhver mannvirki er hægt að yfirtaka og nota áfram í svipaðri mynd, önnur er hægt að nota undir aðra starfsemi og þannig nýta við uppbyggingu á nýrri framtíð en sum eru ekki nýt- anleg lengur. Gera skal kröfu um að Bandaríkjamenn gangi frá eftir sig, að ónýt mannvirki verði fjarlægð og gengið verði frá þeim sárum í náttúrunni sem þau hafa valdið. Það þarf að semja um við- skilnað við landið Víða er mengun að finna í jörðu, olía og önnur efni, sprengjur og skothylki, girðingar og fleira sem þarf að fjarlægja. Tryggja þarf að samningar um brottför hersins feli í sér að landinu sé skilað í viðunandi ástandi. Þá er mikilvægt að tekið sé tillit til þess, að við brotthvarf Varn- arliðsins verður til umframgeta (offramboð) á þjónustu vegna þess að hermenn og aðrir sem tilheyra Varnarliðinu hafa nýtt sér margvíslega þjónustu utan vallarsvæðisins. Þess vegna þarf að skapa möguleika á að „nýtt” fólk setjist að, jafnvel tíma- bundið, í þeirri byggð sem nú er á Keflavíkurflugvelli. Mikilvægt er einnig að þess sé gætt að íbúðir og önnur mannvirki sem þarna eru í miklum mæli fari ekki inn á almennan markað, því það gæti riðið byggingariðn- aðinum á Suðurnesjum að fullu og hefði einnig veruleg áhrif á fasteignaverð á svæðinu. Sem dæmi um starfsemi sem hentað getur vel á þessu svæði má nefna háskólaþorp, þannig væri hægt að nýta íbúðarhús- næðið sem vistir, mötuneyti, íþróttahús o.s.frv. Þetta gæti t.d. verið útibú frá þeim háskólum sem starfa hér á landi og e.t.v. í samstarfi við erlenda háskóla. Óþrjótandi möguleikar Möguleikarnir eru óþrjótandi. Það er því mikilvægt að menn sameinist nú um samninga um viðskilnaðinn svo hægt sé að hefja uppbygginguna sem fyrst. Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ skorar því á alla sem koma að þessu máli að taka nú höndum saman í þeim tilgangi að mæta þeim tíma- bundnu erfiðleikum sem brott- för hersins hefur í för með sér, nægur tími hefur nú þegar farið forgörðum. Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbœ 16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! VlKURFRÉTTIR I 12. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.