Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 29
VIÐTAL: ELLERT GRETARSSON / ELG@VF.IS
Það er eitthvað við Hafnir sem
gerir þær að einum flottasta
tökustað á Islandi, bara birtan
þar er einstök”, segir Kikka.
Fyrir nokkrum árum stofn-
aði Kikka fyritækið IsMedia,
sem hún rekur ásamt Völu
vinkonu sinni. Þær eiga ásamt
Nýsi Hf. rekstrarfélag um Aust-
urbæ og annast þær stöllur
reksturinn. Þar er mikil og
blómleg menningarstarfsemi
í gangi og miklar endurbætur
eru fyrirhugaðar á húsinu.
Stóriðjudraumar
Kikka segist hafa haft á sínum
tíma mikinn áhuga á því að
setja á fót í Reykjanesbæ sterkt
menningarfyrirtæki eins og er
nú að blómstra í Austurbæ. Er
skemmst frá því að segja að hug-
myndin hlaut ekki brautargengi
hjá bæjaryfirvöldum. Þar á bæ
voru menn víst of uppteknir
af stóriðudraumum eins og
stálpípuverksmiðju og álveri.
„Þetta svæði býður upp á marga
möguleika ef menn vilja láta
af þessari þröngsýni og horfa
á eitthvað annað en bara stór-
iðju. Þegar herinn fer væri vel
hægt að nýta herstöðna undir
kvikmyndaver á heimsmæli-
kvarða, svipað og þeir hafa gert
í Trollháttan, vinbæ Keflavíkur
í Svíþóð. Þeir byggðu mikil
kvikmyndaver og lögðu í það
bæði metnað og peninga, í dag
eru þessi kvikmyndaver þeirra
einfaldlega kölluð Trollywood.
Atvinnulega séð reif þessi bær
sig upp úr því að vera ekki neitt
í það að vera smábær með eftir-
sóttustu kvikmyndaver í norður
Evrópu, og þeir eru ekki einu
sinni með alþjóðaflugvöll í tún-
fætinum eins og við. Við erum
með kjöraðstæður til að gera
það sama hér og meira og betur,
það er allt til staðar, meðal ann-
ars mjög vinsamlegt skattaum-
hverfi. Og það fólk sem nú
vinnur í þjónustu við Herinn
gæti allt eins unnið í þjónustu
við kvikmyndaver, það er svo
einfalt. Við erum á milli tveggja
heimsálfa, sem stöðugt eru í
samframleiðslu á kvikmyndum
og sjónvarpsefni og ef við
bjóðum upp á góð kvikmynda-
ver og gott starfsfólk þá er þetta
gróðabissness fyrir bæjarfélagið
og ekkert annað. En nei, stál-
pípuverksmiðja og álver skal
það vera. Það er eitthvað að í at-
vinnumálahugsuninni hjá þeim
sem stjórna þessu bæjarfélagi
og þú mátt alveg hafa það eftir
mér. Ég meina , við leggjum
metnað í að mennta börnin
okkar og viljum auðvitað að þau
fái störf við sitt hæfi eftir námið
og komi þá aftur í sína heima-
byggð, og ég hef ekki ennþá
hitt foreldri sem segir: Æi, hvað
ég vona að hann Gunni minn
fái vinnu í þessari stálpípuverk-
smiðju þegar hann er búinn
með masterinn “, segir Kikka.
En eru þessir stóriðjudraumar
ekki bara eftii ígóða kómedíu?
„Jú, og ég efast ekki um að það
sitja einhverjir við að skrifa
slíkar kómedíur nákvæmlega
í þessum töluðu orðum, en ég
sé ekki gleðina eða vitið í stór-
iðjunni og veit ekki hverjum
hún á að þjóna, þegar það er
hægt að gera svo margt annað
á þessu frábæra svæði sem Suð-
urnesin eru. Mér finnst það t.d.
alveg stórmerkilegt hvað menn
fagna vel og lengi einhverjum
stóriðjudraumum sem ekki
eru komnir í höfn, samanber á
Húsavík um daginn. Það voru
beinar útsendingar í sjónvarp-
inu af miklum fagnaðarlátum
frá einhverjum bar á Húsavík
eins og það væri verið að opna
álverið en ekki að það yrði hugs-
anlega, kannski, einhventím-
ann, ef til vill byggt þarna. Hér
uppi á bæjarskrifstofum eru
menn búnir að fagna þessari
stálpípuverksmiðju með rjóma-
tertuáti síðan ég kom heim frá
Danmörku fýrir fimm árum og
ekkert bólar á henni, sem betur
fer kannski, en er ekki nær að
fara að skoða í alvöru hvað
hægt er að gera við mannvirkin
á Miðnesheiði þegar herinn
fer, og fara að vinna í því?”
BIFREIÐASKOÐUN
í alfaraleið við Njarðarbraut 7
Frjáls mæting - engar tímapantanir
Opið 8-16 alla virka daga
u
LL
ÉÁ
Verið velkomin
i
Mundu að tölurnar á I
skoðunarmiðanum I
. ...___ . tákna skoðunarárið!
REYKJANESBÆ 1-------------------->
Fermingarbörn
Til hamingju * , .
31 meoaaginn
AFSLATTARMI0I
E CD
qalleri
keflavík
Hafnargata 32 - S 421 7300
> Q
E
P ds
AFSLATTARAAIÐI
VÍKURFRETTIR FIMMTUOAGURINN 23. MARS 20061 29