Víkurfréttir - 23.03.2006, Side 32
EqillFJonassonigerir
her sigurkórfuna
'Séljaskblamq
faqnaðarlætimlétu
ekkifápetTstandaihiá
Niarðvíkinqumt
Bræður berjast
í Sláturhúsinu
Undanúrslit Iceland Ex-
press deildar karla i
körfuknattleik hefjast
um helgina.
Keflavík mætir Skallagrími á
laugardag en Keflvíkingar sóp-
uðú Fjölni út úr 8 liða úrslit-
unum 2 - 0. í síðari viðureign
liðanna þurftu Keflvíkingar að
hafa nokkuð fyrir sigrinum í
skemmtilegum baráttuleik þar
sem AJ Moye fór enn og aftur
á kostum með 38 stig og 10 frá-
köst. Arnar Freyr Jónsson og
Jón N. Hafsteinsson áttu einnig
afbragðsleik en Keflavíkurliðið
gengur nú eins og vel smurð vél
og vinnur hvern leildnn á fætur
öðrum.
„Þetta verða skemmtilegar
viðureignir, Skallagrímsmenn
eru með hörkulið og ánægðir
með sig í augnablikinu enda
nýbúnir að vinna Grindavík 2
- 0. Það skipti olckur engu máli
hverja við myndum fá, það
verða allir klárir í leikina og
rúmlega það,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvík-
inga, í samtali við Víkurfréttir
en Valur Ingimundarson, bróðir
Sigurðar, þjálfar Skallagrím
svo það er von á bræðrabyltu á
laugardag.
Njarðvíkingar mæta KR í und-
anúrslitunum og verður fyrsti
leikur liðanna á sunnudag en
Njarðvíkingar gáfu ÍR - ingum
skammt af sínu eign tevatni og
sendu þá inn í sumarið með því
að vinna þá 2 - 0. Seinni viður-
eign Njarðvíkur og ÍR fór fram
AmanlFrevr
gerðifl'2
stigiógltgk
7rfráköst
gegniFjolm
ailaugardág!
Hann á
orugglega
eftifíaðitaka
skemmtilega
rimmu við
þáflHafþjjgog
Dimitar hja
Skallagrim
í Seljaskóla og lauk með 76 - 78
sigri Njarðvíkinga þar sem Egill
Jónasson gerði sigurkörfu leiks-
ins með glæsilegri troðslu. Frið-
rik Stefánsson var stigahæstur
Njarðvíkinga gegn ÍR með 18
stig og 8 fráköst.
„Þetta er eins og hvert annað
verkefni, ég átti von á því að KR
færi áfram. Við höfum spilað
við KR nokkrum sinnum í
vetur en við höfum ekki mætt
þessu KR liði eftir að þeir fengu
nýju erlendu leikmennina. Það
er tilhlökkunarefni að takast á
við KR - inga því þessi tvö lið
hafa átt sér dramatíska sögu s.l.
ár og það verður væntanlega
engin breytinga þar á,” sagði
Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkinga, í samtali við
Víkurfréttir.
Næstu leikir:
Föstudagur, 24. mars,
kvk
19:15 Keflavík - UMFG
Laugardagur, 25. mars,
kk
16:00 Keflavík -
Skallagrímur
Sunnudagur, 26. mars,
kk
15:00 Njarðvík - KR
Getraunaseðill
vikunnar
STUÐLABERG
FASTEIGNASALA
Jóhann,
Kristinn og
Stefán frá
Myllubakka
skóla.
Guðlaugur
og Halldór
frá
Stuðlabergi
1. Aston Villa - I’ulham X 1 X
2. Chelsea - Man. City 1 X 1
3. Wigan - West Ham 1 1 X
4. Sunderland - Blackburn 2 2
5. Leicester - Reading 2 x2
6. Sheff. Utd - Southampton 1 1
7. Leeds - Stoke 1 2 _
8. Watford - Millwall 1 1
9. Derby - Crystal Palace 1 X 1 x 2
10. Wolves - Sheff. Wed 1 1
11. Crewe - Coventry x 2 2
12. Cardiff - Q. P. R. 2 1
13. Brighton - Luton 1x2 1 X
Stuðlabergsmenn verma 2. sæti keppninnar en í 10.
og neðsta sæti er Myilubakkaskóli sem myndi ekki
slá hendinni á móti sigri þessa leikvikuna.
Úrslitakeppni kvenna hafin
rslitakeppnin í kvenna-
körfuknattleik er hafin
og fór fyrsti leikur
Grindavíkur og Keflavíkur
fram í gær en blaðið var farið
í prentun áður en úrslit urðu
ljós.
Grindavíkurkonur hafa heima-
leikjaréttinn í viðureignum lið-
anna en hin undanúrslitaviður-
eignin er á milli deildarmeistara
Hauka og ÍS. Grindavík sigraði
Keflavík í síðustu viku 77 - 70
en sá leikur skar úr um það
hvort liðið fengi heimaleikjarétt-
inn. Tamara Stocks, bandaríski
leikmaður Grindavíkur, fór mik-
inn í þeim leik og setti niður 29
stig og tók 17 fráköst. Hjá Kefla-
vík var La Barkus stigahæst með
23 stig. Nánar á vf.is.
„Ætluðum okkur lengra”
Bikarmeistarar Grind-
víkur féllu úr 8 - liða úr-
slitum Iceland Express
deildarinnar s.I. sunnudag er
þeir biðu ósigur gegn Skalla-
grími 73-77 í Röstinni. Skalla-
grímur vann því einvígið 2-0
og eru komnir í undanúrslit.
Leikurinn var jafn og æsispenn-
andi, Helgi Jónas Guðfinns-
son jafnaði metin í 65-65 svo
framlengja varð leikinn en
gestirnir úr Borgarnesi reynd-
ust sterkari á endasprettinum
og höfðu sigur. Helgi Jónas var
stigahæstur Grindvíkinga með
18 stig í leiknum. „Því miður
vorum við bara vanstilltir, þetta
var ekki það Grindavíkurlið sem
maður á að þekkja á heimavelli.
Hugur og hönd fóru ekki saman
á sunnudag og við verðum bara
að axla þá ábyrgð. Miðað við
okkar frammistöðu í þessum
leik þá bara áttum við ekki
skilið að fara lengra. Veturinn
var ekki alslæmur þar sem við
urðum bikarmeistarar en þetta
eru samt vonbrigði þar sem við
ætluðum okkur lengra,” sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, í samtali við Vík-
urfréttir.
Vl’KURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is* LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!
32
VIKURFRÉIIIR I IÞRÓTTASfÐUR