Víkurfréttir - 30.03.2006, Síða 8
FURUKRWPI
Framkvæmdir á fimmta
milljarð kr. við flugvöllinn
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmt verði fyrir hátt
í 5 milljarða króna við
alþjóðlega flugvöllinn á Mið-
nesheiði á þessu ári.
Þetta kom fram á nýliðnu fram-
kvæmdaþingi Reykjanesbæjar
þann 9. mars sl. en þar sagði
Stefán Jónsson forstöðumaður
fasteignasviðs FLE að gera
mætti ráð fyrir að farþegafjöldi
um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
fari úr 2 í 2,4 milljónir farþega á
næstu 4 árum:
Tæpum 3,7 milljörðum króna
verður varið til stækkunar
á Leifsstöð á árinu en að auki
verður 49 milljónum króna
varið á árinu til þess að bæta
aðgengi fólks að bílastæðum við
FLE með því að yfirbyggja gang-
brautir að þeim.
Einnig er gert ráð fyrir að 25
þúsund fermetra flugfraktsplan
verði tilbúið á árinu en þær
framkvæmdir eru á vegum Flug-
málastjórnar á Keflavíkurflug-
velli.
Á framkvæmdaþinginu kom
fram í máli Ómars Þórs Edvards-
sonar hjá flugöryggissviði Flug-
málastjórnar að mikil áhersla
sé lögð á að aðskilja fragtflug-
þjónustu frá farþegaflugi. Stórt
skref var stigið árið 2004 þegar
nýtt flugþjónustuplan var tekið
í notkun en með framkvæmd-
unum á þessu ári er bætt
urn betur. Áætlað er að fram-
kvæmdin kosti 250 milljónir
króna.
Frctmsóknarfélag Sandgerðis
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framsóknarfélag Sandgerðis boðar til
félagsfundar í Grunnskólanum í Sandgerði,
sunnudaginn 2. apríl kl. 20:30.
Fundarefni:
Tillaga uppstillingarnefndar að lista
framsóknarmanna í Sandgerði
Stuðningsmenn B-listans eru
hvattir til að mæta.
Stjórnin
SBÆi
agslegri þiónustu
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í
sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu. Um er að ræða fullt
starf sem snýr að almennum heimilisþrifum en verkefnin geta verið
mjög einstaklingsbundin, allt eftir þörfum þjónustuþega. Mikilvægt
er að viðkomandi starfsmaður hafi áhuga og ánægju af mannlegum
samskiptum.Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af því að starfa
með fólki. Umsóknir þurfa að berast fyrir I I. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Hjartardóttir félagsmálastjóri
eða Guðrún Björg Sigurðardóttir starfsmaður félagsþjónustu
Sandgerðisbæjar í síma 420 7555.
yáyiUjiGjz
Viðar Már tók fyrstu
skóflustunguna
Viðar Már Aðalsteins-
son, forstöðumaður
umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjanesbæjar, tók
fyrstu skóflustunguna að Ása-
hverfinu í Reykjanesbæ föstu-
daginn 24. mars síðastliðinn.
Skóflustungan markaði upp-
hafið að vinnu við nýja hverfið,
Ásahverfi, þar sem búið er að
úthluta 130 einbýlishúsalóðum.
Allar götur í Ásahverfi eiga að
vera fullbúnar í júní og verða
göturnar neðst í hverfinu fyrstar.
Að sögn Viðars Más ætti að vera
hægt að hefja húsbyggingar
í byrjun júní. „Þetta verður
skemmtilegt hverfi og plús fyrir
okkar bæjarbrag,” sagði Viðar
Már í samtali við Víkurfréttir.
„Ef allt gengur eftir þá mun
þetta svæði byggjast hratt upp,”
sagði Viðar að lokum. AÞ véla-
leiga átti lægsta tilboðið í jarð-
vinnu Ásahverfisins og hófu stór-
virkar vinnuvélar starfsemi sína
um leið og Viðar hafði lokið við
fyrstu skóflustunguna.
Mengun á varnarliðs-
svæðinu skoðuð
StarfsfólkHeilbrigðiseftir-
lits Suðurnesja safnar nú
gögnum um olíumengun
á varnarsvæðinu. Magnús Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja,
segir í Fréttablaðinu að varnar-
liðið hafi tilkynnt öll stærri
mengunaróhöpp þannig að
vitað sé með nokkurri vissu
um ástandið á svæðinu. Óháð
fyrirtæki geri fljótlega úttekt
á því landi sem herinn hafi um-
ráð yfir.
Ennfremur er haft eftir Magn-
úsi að minna sé vitað um
ástandið innan girðingar en
utan þó vitað sé um olíubletti
hér og þar. íslendingar jafnt sem
Bandaríkjamenn hafi stundað
það í 50 til 60 ár á síðustu öld að
hella niður olíu og bensíni beint
niður í jarðveginn. Magnús
segir hins vegar of snemmt að
segja til um hversu mikil meng-
unin er en hún sé einhver þar
sem upplýsingar hafi borist í
gegnum tíðina. Ætlunin sé
að nota þau gögn sem safnast
saman til að hafa svör á reiðum
höndum óski utanríkisráðherra
eftir þeim þegar viðræður hefj-
ast við Bandaríkjamenn í lok
næstu viku. Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja væntir þess að her-
inn fái fljótlega óháð fyrirtæki
til að gera úttekt á svæðinu og
koma með tillögur til úrbóta.
f framhaldinu verði svo tekin
sýni og séu ábendingar um
mengun verði jarðvegssýni
skoðuð nánar.
Afgreidsla Vikurírétta eropin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. §p?3
Athugid ad föstudaga er opid til kl. 15
Medþviai>hringjaIsíma421 OOOOerhægtaö veljabeintsamband P I Uv
vicI auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er i sima 898 2222
Útgefandi: Víkurfréttir ehf„ kt. 710183-0319
Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23,260 Njarðvik, Simi 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 421 0002, liilmar@vf,is,
Blaöamenn: Þorgils Jónsson, simi 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Jón Björn Olafsson, sími 421 0004, jbo@vf.is
Ellert Grétarsson, simi 421 0014, elg@vf.is
Auglýsingadeild: Jófríöur Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Hanna Björg Konráðsdóttir, sími 421 0001, hannabjorg@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun: Vikurfréttir ehf.
Hönnunardeild Vikurfrétta: Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Skrifstofa Víkurfrétta: Guörún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, simi 421 0010, aldis@vf.is
VIKURFRETTIR í 13.TOLUBLAÐ i 27. ARGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU •www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLECA!