Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 20
Arngrímur Guðmundsson skrifar:
Athafnir í stað orða
reinilega er kominn
mikill hræðsluskjálfti
í Sjálfstæðismenn í
Reykjanesbæ
vegna kom-
a n d i b æ j -
arstjórn ar-
kosninga og
byrjaði hann
þegar Halldór
Ásgrímsson
þekktist boð
Framsóknarfélaganna í Reykja-
nesbæ um að mæta á fund
og upplýsa um stöðu mála
vegna þeirrar stöðu sem upp
er komin vegna ákvörðunar
Bandarxkjamanna um að flytja
flugflota sinn burt frá Kefla-
víkurflugvelli. Þetta lýsti sér
í æðibunugangi og æsingi til
þess að verða á undan forsætis-
ráðherra að ná til starfsmanna
Varnarliðsins og kynna þeim
hraðsuðu sem sett hafði verið
saman til þess að líta betur út
vegna þeirra vandræða sem
sjálfstæðismenn voru komnir
í. Hverjir settu þetta í póli-
tískan klæðnað? Hverjir geyst-
ust fram á völlinn og sögðu
að þetta snérist um pólitík?
Er slæm samviska undanfari
þess?
Ég frábið mér slíka umræðu
enda dæmir hún sig sjálf. Hugur
okkar allra er hjá því fólki sem
á nú um sárt að binda. Erfiðir
tímar eru framundan og mark-
mið okkar á að vera að finna
lausnir til þess að tryggja hag
þeirra sem nú missa sín störf.
Leita á leiða til þess að aðstoða
þá sem missa vinnu sína. Því
þarf að leggja á borðið raun-
hæfar lausnir um trygga atvinnu
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Rósa Ólafsdóttir,
Vesturgötu 14a, Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
19. mars hefur verið jarðsungin í kyrrþey.
Sigurður Ingimundarson,
Ingimundur Sigurðsson, Bryndís Sigursteinsdóttir,
Ólafur Baldvin Sigurðsson, Elín Jónína Jakobsdóttir,
Haukur Sigurðsson, Ólína Sigurjónsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ástríður Guðný Sigurðardóttir,
Vallargötu 9,
Keflavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Keflavík,
sunnudaginn 26. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 5. apríl kl. 14:00.
Sigurður Herbertsson, Fríða Bjarnadóttir,
Eyjólfur Herbertsson, Lára Halldórsdóttir,
Þórdís Herbertsdóttir, Grétar Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Björgunarsveitina Suðurnes.
til framtíðar. Slíkar lausnir
koma ekki upp úr morgunverð-
arpökkum eða eru ákveðnar á
nokkrum klukkutímum.
Komið hafa fram skyndilausnir
og skýjaborgir, en hver er raun-
veruleikinn? Það er ekki búið að
ákveða hvernig staðið verður að
vörnum íslands og Keflavíkur-
flugvöllur er ennþá skilgreindur
sem varnarsvæði. Hver kemur
til með að sjá um varnir lands-
ins? Verða einhver störf áfram
á varnarsvæðinu? Komum við
til með að hafa aðgang að þeim
mannvirkjum sem þar standa?
Svör við þessum spurningum
þuríúm við að fá sem fyrst, svo
við getum farið að vinna að
raunhæfum lausnum.
Með baráttukveðju
Arngrímur Guðmundsson
iMiípeöaiEiíF
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur 2. apríl: Ferming kl. 10.30 (börn úr Myllubakka-
skóla)Prestur: Sr. Kjartan Jónsson og sr. Sigfús Baldvin IngvasonKór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti og stjórnandi: Hákon Leifs-
son.Meðhjálpari: Helga Bjarnadóttir og Guðmundur Hjaltason
Ferming kl. 14.00 (börn úr MyllubakkaskólaJPrestur: Sr.
Kjartan Jónsson og sr. Sigfús Baldvin IngvasonKór Keflavíkur-
kirkju leiðir söng. Organisti og stjórnandi: Hákon Leifsson.
Meðhjálpari: Leifur A. Isaksson og Guðmundur Hjaltason
Leiðréttingar á nöfnurn fermingarbarna sem birtust í 12. tbl. Víkurfrétta:
Þorsteinn Rúnar Steinþórsson, Fífumói 5a, fermist kl. 14.00 2. apríl.
Bergiind Ýr Kristinsdóttir, Greniteigi 7, fermist kl. 10.30 2. apríl.
Ytr i-Nj arðví kurkirkj a
Fermingarmessa 2. apríl Id. 10.30. Kór Ytri-Njarðvík-
urkirkju syngur undir stjórn Natalíu Chow Hewlett.
Meðhjálpari Ástriður Helga Sigurðardóttir.
Spilakvöld aldraðra og öryrkja fimmtudaginn 30. mars kl.20.
Umsjón hafa Lionsklúbbur Njarðvíkur, Ástríður Helga Sig-
urðardóttir, Natalía Chow Hewlett og sóknarprestur.
Baldur Rafn Sigurðsson
Hvítasunnukirkjan Keflavík
Sunnudagar kl. 11.00: Fjölskyldusamkoma
Þriðjudagar kl. 20.00: Bænasamkoma
Fimmtudagar kl. 19.00: Alfa 2
Kálfatjarnarsókn
Kirkjuskóli íTjarnarsal Stóru-Vogaskóla ásunnudögum kl. 11 ■
Léttar veitingar og hlýlegt samfélag eftir helgihaldið.
12.
Baptistakirkjan á Suðurnesjum
Samkoma fyrir fullorðna: fimmtudaga kl. 19:45.
Samkoma fyrir börn og unglinga: laugardaga kl. 13.00 - 14.45
Bænastund fyrir fullorðna: sunnudaga kl. 11 að Brekkustíg 1,
Sandgerði. (Heima hjá Patrick, presti Baptistakirkjunnar.)
Samkomuhúsið að Fitjum 4 í Reykjanesbæ (Rétt hjá Bónus)
Allir velkomnir!
Predikari/Prestur: Patrick Vincent Weimer B.A. guðfræði 847 1756
Bahá’í samfélagið í Reykjanesbæ
Opin hús og kyrrðarstundir til skiptis alla fimmtudaga kl. 20.30
að Túngötu 11 n.h. Upplýsingar í s. 694 8654 og 424 6844.
Dæmdur
fyrir að slá
sambýlis-
konu
Maður á fimmtugs-
aldri, sem bú-
settur er í Reykja-
nesbæ, var í síðustu viku
dæmdur í 6 mánaða fang-
elsi, þar af voru 3 skilorðs-
bundnir í 3 ár.
Maðurinn var dæmdur fyrir
að hafa í tvígang gengið í
skrokk á sambýliskonu sinni
á árinu 2005 en auk þess er
um margvísleg smáafbrot að
ræða.
T.a.m. varð hann uppvís að
því að stela síma og hleðslu-
tæki, hann var í tvígang tek-
inn með lítilræði af kanna-
bisefnum á sér og eitt sinn
lenti hann í umferðarslysi á
Hafnargötu í Reykjanesbæ
á óskráðum og óskoðuðum
bíl.
Viðkomandi sýndi sam-
starfsvilja og gekk skýlaust
að brotum þessum, en hann
var með þeim að rjúfa skil-
orð.
20 IVÍKURFRÉTTIR 13.TÖLU8LAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is* LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!