Víkurfréttir - 30.03.2006, Page 26
ÍÞRÓTTIR í BOÐI
LANDSBANIŒNS
250 krakkar
á Svalamóti
Svalamótið í knattspyrnu
fór fram í Reykjaneshöll
um síðustu helgi en mótið
er fyrir iðkendur í 7. flokki.
Bæði strákar og stelpur tóku
þátt á mótinu og voru kepp-
endur um 250 talsins í 32 liðum
frá átta félögum. Þetta var í
fyrsta skipti sem Svalamótið
er haldið á vegum Keflavíkur
og þótti það heppnast vel. Vífil-
fell styrkti mótið en sigurliðin
í mótinu fengu bikar og allir
fengu þátttökumedalíu að rnóti
loknu. „Þátttakan var mjög góð
í mótinu og við urðum að vísa
félögum frá þar sem við höfðum
ekki meiri tíma í Reykjaneshöll-
inni,” sagði Elís Kristjánsson,
knattspyrnuþjálfari í Keflavík.
„Það gæti vel hugsast að stækka
Svalamótið í framtíðinni eða
búa til annað og stærra mót
með það að augnamiði að íjölga
leikjum hjá krökkunum,” sagði
Elís að lokum.
Úrslitin í mótinu:
Eplasvala meistarar:
FH
Jarðarberjasvala meistarar:
FH
Sítrónusvala meistarar:
Keflavík
Appelsínusvala meistarar:
Keflavík og Breiðablik
Unnu heima og lágu úti
Iafnt er í undanúrslitaviður-
eignum Iceland Express
deilar karla í körfuknatt-
. Njarðvík og Keflavík hafa
bæði unnið einn ieik gegn
Skallagrím og KR en bæði Suð-
urnesjaliðin máttu sætta sig
við ósigur á útivelli.
Njarðvíkingar hófu undanúr-
slitin á því að rassskella KR 101-
65 í Ljónagryfjunni og voru yfir-
burðirnir það miklir að Herbert
Arnarson, þjálfari KR, sá sig
nauðbeygðan til þess að biðja
áhorfendur Sýnar afsökunar á
frammistöðu KR - inga. Herbert
hafði þó fátt til að biðjast afsök-
unar á eftir leikinn á þriðjudag
þar sem KR snéri taflinu við og
lagði Njarðvík 77-61. Liðin mæt-
ast svo aftur í Ljónagryfjunni á
morgun kl. 19:15.
Keflvíkingar völtuðu yfir Skalla-
grím í Sláturhúsinu í fyrsta leik
liðanna og voru Borgnesingar
skjálfandi á beinunum gegn
pressuvörn Islandsmeistaranna.
Fyrsta leiknum lauk með 97-82
sigri Keflavíkur en Valur Ingi-
mundarson sá við bróður sínum
í Borgarnesi þar sem heima-
menn fóru á kostum og höfðu
betur gegn Keflavík 94-76. Það
lið sem er fyrra til að vinna þrjá
leiki í undanúrslitunum kemst
áfram í úrslitin en sé tekið mið
af gangi mála þá er ekki ósenni-
legt að bæði Njarðvík og Kefla-
vík endi í fimm leikja hrynu
gegn Skallagrím og KR.
Verslunarmannafélag
Suðurnesja
Að^mmémr
Verslunarmannafélags Suðurnesja
verður haldinn að Vatnsnesvegi 14,
Reykjanesbœ,
þriðjudaginn 4. apríl kl. 20.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Reglugerðarbreyting sjúkrasjóðs VS
3. Önnur mál
Stjórn
Verslunarmannafélags Suðurnesja
SAGA
car rental
PANTIÐ ISIMA 421 3737
löavellir 10 - Reykjanesbæ - www.sagacarrental.is - saga@sagacarrental.is
Viðbragðsaætlun fyrir íþróttahreyfinguna
Iþrótta-
banda-
1 a g
Reykjanes-
bæjar (ÍRB)
í samstarfi
við Reykja-
n e s b æ ,
fþrótta- og
ólymp íu-
sam band
íslands og
Lögregluna í Keflavík hefur
undanfarið staðið fyrir nám-
skeiðum fyrir þjálfara allra
deilda og félaga innan ÍRB.
Á þessum námskeiðum hefur
m.a. verið fjallað um, tilgang
með barna- og unglingastarfi
íþróttafélaga, skilgreiningu á ár-
angri og hvað er árangur. Einnig
um þjálfarann sem fyrirmynd
og samskipti þjálfarans við iðk-
endur og foreídra. Þá var einnig
fjallað um að greina óæskilega
hegðun/óæskilegt ferli og tekið
á þáttum eins og einelti, neyslu
hjá iðkendum og vanlíðan
þeirra.
Einn veigamesti hlutinn í
þessum námskeiðum var inn-
leiðing verklagsreglna og við-
bragðsáætlana fyrir íþróttafé-
lögin. Hvernig eiga þjálfarar og
eða stjórnarmenn að bregðast
við ef grunur kemur upp um
t.d. einelti, neyslu ólöglegra
efna, hegðunarmynstur iðkand-
ans breytist og iðkandi verður
fyrir alvarlegu slysi (jafnvel
dauðsfalli). Ef grunur þjálfara
og stjórnarmanna er á rökum
reistur er málinu vísað til fag-
hóps á vegum Reykjanesbæjar
sem tekur við málinu og leggur
fram tillögur um áframhald
málsins til stjórnar félagsins.
Námskeiðunum lauk með fundi
sem haldinn var í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja miðvikudags-
kvöldið 15. mars s.l. Foreldrum
barna og unglinga sem iðka
íþróttir og stjórnarfólki í íþrótta-
hreyfingunni var boðið á þann
fund. A þeim fundi var öllum
þjálfurum sem sótt höfðu nám-
skeiðin afhentar möppur og ein-
tak af viðbragðsáætlun.
Þá hefur stjórn ÍRB sett inn upp-
iýsingar frá námskeiðunum og
viðbragðsáætlunina inn á vef
bandalagsins, www.irb.is/hjaip.
Þess má geta að Forvarnarsjóður
Reykjanesbæjar styrkti þetta
verkefni um 400.000 krónur og
er þeirri fjárhæð vel varið.
Undiritaður vill að lokum óska
ÍRB til hamingju með að hafa
farið í þessa vinnu sem svo sann-
arlega var nauðsynleg og þakka
fyrir samstarfið bæði í undirbún-
ingsnefnd, við stjórn ÍRB og sér-
staklega formann ÍRB, Jóhann
B. Magnússon.
Ragnar Örn Pétursson
Forvarnar-og æskulýðsfulltrúi
Reykjanesbæjar
SAGA Bílaleiga kynnir
SENDIBÍL í FULLRI STÆRÐ TIL LEIGLJ
HÖFUM ALLAR STÆRÐIR AF BÍLUM
VÍKURFRÉTTiR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU MÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!
26
VIKUk’l K’l 11IR I íl’ROTIASlDUR