Víkurfréttir - 12.04.2006, Side 6
Ársreikningur Reykjanesbæjar:
Gatnagerðar-
gjöld renni til
hafnarinnar
Vegna tap rekstr ar
Reykjaneshafnar hefur
komið fram sú tillaga
um að gatnagerðar- og fast-
eignagjöld af hafnarsvæðum í
landi Reykjanesbæjar renni til
hafnarinnar. Garðar Vilhjálms-
son (D), bæjarfulltrúi og nefnd-
armaður í Atvinnu- og hafnar-
ráði, lagði fram þessa tillögu
á bæjarstjórnarfundi núna í
vikunni en áður hafði bókun
sama efnis komið fram á fundi
hjá fulltrúa Samfylkingarinnar
í Atvinnu- og hafnarráði. Með
þessu væri hægt að auka tekjur
hafnarinnar umtalsvert en
rekstrartap hennar á síðasta ári
nam tæpum 196 milljónum.
I tillögu Garðars segir að
Reykjaneshöfn hafi lagt í mik-
inn kostnað við endurbyggingu
hafnarsvæðaíReykjanesbæ. Fjár-
magnsliðir séu af þessum sökum
þungir á höfninni og brýnt að
þær tekjur sem skapist vegna
hafnsækinnar starfsemi nýtist
höfninni fyrst og fremst. Ásókn
í lóðir á hafnarsvæðinu í Helgu-
vík hafi aukist að undanförnu
og líkur séu á að umtalsverðar
tekjur geti skapast af þeim, segir
í tillögunni. Því sé lagt til að
bæjarstjórn samþykki að gatna-
gerðargjöld og fasteignagjöld af
skilgreindum hafnarsvæðum í
landi Reykjanesbæjar, renni til
Reykjaneshafnar sem framlag
frá og með síðustu áramótum.
Þrátt fyrir að efni tillögunnar
fengi góðan hljómgrunn í bæj-
arsjórn var samþykkt að vísa
henni til umfjöllunnar í bæjar-
ráði, þar sem fulltrúar minni-
hlutans töldu eðlilegra að hún
færi þá leið.
HVARERTÞUAÐ
AUGLÝSA?
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 4210000
BATIEDA BINDING?
Nokkrar umræður urðu
um ársreikning Reykja-
nesbæjar fyrir síðasta
ár þegar hann kom til fyrri
umræðu á bæjarstjórnarfundi
í gær. Góður árangur hefur
náðst í rekstri bæjarins á und-
anförnum misserum og segir
minnhlutinn það nýlundu
að sjá jákvæða niðurstöðu í
rekstrarreikningi á þessu kjör-
tímabili. Það sé hins vegar
engin nýlunda að sjá að rekst-
urinn standi ekki undir sér.
í bókun meirihlutans kemur
fram að reksturinn hafi skilað
384 milljón króna afgangi á síð-
asta ári, sem er talsvert betri
árangur en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Þar af skili rekstur bæjar-
sjóðs tæplega 90 milljón króna
afgangi. Fulltrúar minnihlutans
benda hins vegar á að rekstur-
inn sýni neikvæða niðurstöðu
upp á 174 milljónir þrátt fyrir
auknar tekjur og að bæjarsjóður
sé rígbundinn í bak og fyrir,
eins og segir í bókun. Sitt sýnist
því hverjum þegar rýnt er í árs-
reikninginn.
Bæði meiri- og minnihluti
lögðu fram bókanir á fundinum
og er bókun meirihlutans á
þessa leið:
Hröð uppbygging skilar
hagnaði
„Rekstur Reykjanesbæjar skilar
rúmlega 384 milljón króna af-
gangi vegna ársins 2005 og er
það umtalsvert betri árangur en
áætlanir ársins gerðu ráð fyrir.
Þar af skilar rekstur bæjarsjóðs
tæplega 90 milljón króna af-
gangi. Sú hraða uppbygging sem
átt hefur sér stað í Reykjanesbæ
hefur leitt til þess að íbúafjölgun
hefur orðið örari og tekjur sveit-
arfélagsins hafa vaxið hraðar en
áður hafði verið reiknað með.
Auknar tekjur
- sömu álögur
Helsta ástæða fyrir þeim góða
árangri í rekstri sveitarfélagsins
eru auknar skatttekjur. Skatt-
tekjur aukast um 11% á milli
ára og heildartekjur sveitarfé-
lagsins um 19%. Á sama tíma
aukast rekstrargjöld um 5%.
Auknar tekjur sveitarfélagsins
eru ekki tilkomnar vegna hærri
skattlagningar en meirihluti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar hefur tryggt
lægra útsvar í Reykjanesbæ en
í flestum öðrum sveitarfélögum
sem við berum okkur saman við
þrátt fyrir að minnihluti Sam-
fýlkingar og Framsóknar í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar hafi hvatt
til hækkunar skatta við gerð fjár-
hagsáætlunar ársins 2005.
Tekjur af fasteignum hækka um
40 milljónir á milli áranna 2004
og 2005 og munar þar mestu
um þá fjölgun sem varð á íbúð-
arhúsnæði í Reykjanesbæ á tíma-
bilinu. Ánægjulegt er að benda á
könnun ASI um fasteignagjöld í
8 stærstu sveitarfélögum lands-
ins en þar kemur fram að íbúar
Reykjanesbæjar greiða lægstu
fasteignagjöldin af eigum sínum
í þeim sveitarfélögum sem borin
eru saman.
Sterk eignarstaða
Þvert á stöðugan áróður ým-
issa bæjarfulltrúa minnihlutans
og stuðningsmanna þeirra um
að Reykjanesbær hafi selt allar
eignir sínar hefur eiginfjárhlut-
fall Reykjanesbæjar hækkað á
þessu kjörtímabili. Eiginfjárhlut-
fall bæjarsjóðs er nú rúmlega
42% og hefur hækkað um rúm
2% frá árslokum 2002 og eigin-
fjárhlutfall samstæðunnar er nú
29% og hefur einnig hækkað
um 2% á þessu kjörtímabili. 1
krónum talið hafa eignir Reykja-
nesbæjar umfram skuldir vaxið
um 424 milljónir á því kjörtíma-
bili sem nú er að líða.
Áfram Reykjanesbær!
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins munu áfram leggja ríka
áherslu á sókn og uppbyggingu
sveitarfélagsins í þeim tilgangi
að fjölga íbúum og bæta sam-
félagið. Um leið verður þess
ávallt gætt að vel sé farið með
fjármuni bæjarbúa. Standa þarf
vörð um sterka stöðu Reykjanes-
bæjar í Hitaveitu Suðurnesja hf.
og Fasteign hf. sem bæði hafa
skilað afburða árangri í rekstri á
síðustu árum.
Góð afkoma Reykjanesbæjar
2005 er staðfesting á því að
stefna meirihluta bæjarstjórnar
hefur skilað árangri“.
Bókunminnihlutansersvohljóð-
andi:
Bæjarsjóður Reykjanes-
bæjar - rígbundinn
í bak og fyrir
„Ársreikningur Reykjanesbæjar
vekur athygli fyrir margra hluta
sakir. Það er nýlunda á þessu
kjörtímabili að sjá jákvæða nið-
urstöðutölu í rekstrarreikningi.
Það er hins vegar engin nýlunda
að sjá að reksturinn stendur ekki
undir sér. Neikvæð niðurstaða
er af rekstri upp á 174 milljónir
króna þrátt fyrir að skatttekjur
vaxi um rúm 10%, framlag
úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga
um 22% og þjónustutekjur um
30%. Þá má einnig nefna tekjur
af sölu fasteigna upp á tæpar
45 milljónir króna. Jákvæð nið-
urstaða er síðan fengin vegna
hagstæðra fjármagnsliða. Það
hlýtur að vera áhyggjuefni að
sveitarfélag sem stöðugt eykur
skuldbindingar sínar í formi
húsaleigugreiðslna skuli vera
rekið með halla ár eftir ár.
Bæjarstjóri lýsir ánægju sinni
með niðurstöðu ársreiknings
á heimasíðu Reykjanesbæjar
en getur þess ekki þar, að þær
framkvæmdir sem sjálfstæðis-
menn hafa staðið fyrir allt þetta
kjörtímabil og tala svo mikið
um, hafa verið fjármagnaður
með sölu eigna. Á sama tíma
og önnur sveitarfélög eru að
leggja fram ársreikninga sem
sýna hagnað af rekstri, hreykja
sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ
sér af loftbólum“.
Q
Reykjanesbær:
Framlag til menningarmála eykst
Framlag Reykjanesbæjar
til menningarmála hefur
aukist úr rúmlega 55
milljónum króna árið 2000 í
rúmlega 115 milljónir króna
2005 á undanförnum fimm
árum. Vefur Reykjanesbæjar
greinir frá.
Þetta kemur fram á vef Reykja-
nesbæjar og er þar vitnað í rit-
gerð Svanhildar Eiríksdóttur
nema í opinberri stjórnsýslu þar
sem hún tekur saman menning-
aruppbyggingu í Reykjanesbæ
í ljósi verkefnaskrár menningar-
mála í framtíðarsýn Reykjanes-
bæjar 2002 - 2006.
Aukning á framlagi til menning-
armála er metin með hliðsjón af
íjárhagsáætlun Reykjanesbæjar.
Svanhildur segir ráðningu
menningarfulltrúa árið 2000
hafa gert stefnu og uppbygg-
ingu í menningarmálum mark-
vissari, en undanfarin 4 ár hefur
árlega verið opnað nýtt menn-
ingarrými í Reykjanesbæ sem
hefur skapað mörgum menning-
arhópum tækifæri. Uppbygging
menningarmála hefur ekki síður
skipt máli fyrir ímynd Reykja-
nesbæjar, því „með því að gefa
menningunni aukið vægi má
bæta ímynd hvers byggðalags,"
segir í ritgerðinni. Góð aðsókn
er að menningaruppákomum
og menningarstyrkir hafa aldrei
verið hærri en nú. Þó hefur
starfsfólki ekki fjölgað og mikið
starf er unnið í áhugamennsku.
Að mati Svanhildar er rökrétt
að byggja upp sögutengda ferða-
þjónustu og menningarstarf-
semi í fyrirhuguðum Víkinga-
heimi í tengslum við Islending,
þar sem staðsetningin býður
upp á meiri sýnileika en menn-
ingarstarfsemin á Duus torfu.
Hún bendir hins vegar á að
gera verði lífæðina þarna á milli
áhugaverða til að ferðamenn
haidi áfram í gegnum bæinn.
ViKURFRETTIR I 15. TÖLUBLAÐ ! 27. ARGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!