Víkurfréttir - 12.04.2006, Page 19
Nú hafið þið gagnrýnt fjármál
bæjarins og rekstur, hvaða
breytingar viljið þið sjá þar á?
„Ég ætla ekki að upplýsa það hér og nú
en við erum með hugmyndir um mikinn
sparnað. Bærinn greiðir um og yfir 500
milljónir í leigu á ári og það er hægt
að verja þeim peningum í annað.“
rutt út af borðinu og fólkið í
bæjarfélaginu fái að svara því
hvort það vilji álver eða ekki.
Við viljum að það verði umræða
um kostina og gallana því það
eru óneitanlega miklir kostir
sem fylgja því að fá álver hingað
því það eru um og yfir 1000 góð
störf sem koma hingað. Þar er
um að ræða bæði verkfræðinga
og viðskiptafræðinga sem og
iðnaðarmenn og iðnverkafólk.
Það sem kannski mælir á móti
álveri alveg í túnfætinum eru
mengunarmálin, hvort heldur
það sé loftmengun eða sjónræn
mengun. Við viljum fá alvöru um-
ræðu um þetta mál og láta síðan
bæjarbúa taka afstöðu til máls-
ins. Við teljum að kosningarnar
nú snúist ekki um álver. Síðustu
tvær kosningar voru menn að
tala um magnesíumverksmiðju
sem ekki varð að neinu, stálpípu-
verksmiðju sem ekki varð að
neinu nema stórri holu í berginu
sem kostaði 400 milljónir og við
erum enn að borga af því í dag.
Þarna hafa Reyknesingar borgað
400 milljónir í holu sem ekki nýt-
ist neinum eins og sakir standa.
Álver eða ekki álver? Við viljum
meina að það sé fólkið sjálft sem
ákveður það þegar að því kemur
en það er ekki á dagskrá í dag.
■ Hvernig finnst ykkur
i A listanum hafa tekist til
í þróun byggöar i Reykja-
nesbæ og hvernig sérð þú
framtíðina í þeim efnum?
Þetta hafa verið ógurleg læti í
þróununni undanfarin tvö ár og til
marks um það eru sundurgrafnir
vegir í Innri-Njarðvíkum og íbú-
arnir hljóta nú að vera orðnir
þreyttir á því. Ég hef nú grun um
að þetta horfi nú til betri vegar.
Við viljum fá meiri byggð upp á
Nikkelsvæðið og nýta það vel
undir íbúabyggð. Við viljum eins
skoða möguleika á þvi að fara
í Borgarhverfið og Vatnsnesið,
sem eru nær okkur. Þétting
byggðar er eitt af þeim málefnum
sem við leggjum áherslu á.
■ Nú hefur Reykjanesbær
verið mikið í sviðsljósinu og
umræða um bæjarfélagið
verið mjög góð út á við. Af
hverju ætti fólk að snúa baki
við núverandi meirihluta
sem virðist hafa verið að
gera svona góða hluti?
Þeir hlutir sem hafa verið gerðir
hér kosta óheyrilegan pening
og það kemur að skuldadögum.
Eins og sagt er: Þegar þú
heldur góða veislu, þarftu að
eiga pening til þess aö borga
hljómsveitinni í veislulok. Eg
held að við getum ekki horft
upp á það að svona eyðslufyllerí
sé í gangi í mörg kjörtímabil.
Það þarf engan reiknisnilling
til þess að finna út úr því.
Ég held að þessi góði rómur
bæjarins sé til staðar og verði
áfram til staðar. Þetta er spurn-
ing um markaðssetningu á
hlutunum og Árni er mjög góður
í því. A listinn hefur sýnt það
þessar fáu vikur sem við höfum
starfað að við höfum góða sýn
á þessa hluti og við verðum
ekki í nokkrum vandræðum
með að halda uppi merkjum
Reykjanesbæjar í framtíðinni.
■ Er eitthvað sem þú
vilt bæta við að lokum?
Ég held að íbúar Reykjanesbæjar
þurfi að íhuga það mjög vel hvort
það vilji halda áfram skuldsetn-
ingu bæjarins eða hvort það vilji
aukna þjónustu fyrir fólkið sjálft.
Tökum málefni aldraða sem
dæmi. Við viljum leggja á það
mikla áherslu að Reykjanesbær
sé fyrir bæjarbúa alla ævi. Ég
hef engan áhuga á því að fara
til Grindavíkur til þess að heim-
sækja móður mína á elliheimili
eða ég fari þangað sjálfur þegar
þar að kemur. Við viljum að allir
okkar íbúar fái alla þjónustu í
Reykjanesbæ en þannig er því
ekki farið í dag. A listinn mun
tryggja þjónustu fyrir alla íbúa á
góðum kjörum í Reykjanesbæ.
HvítasutmnjiMirk j an Kefkvík
Páskamót
Gestir frá Færeyjum verða með okkur um páslcana
Einnig Snorri Óskarsson (Betel).
Samkomur verða:
í Njarðvíkurkirkju
Skírdag kl. 20.00: Gospel samkoma.
Fram koma: Gospelkór Suðurnesja og
Gospel Invasion Group frá Krossinum.
í Hvítasunnukirkjunni Hafnargötu 84
Föstudaginn langa lcl. 10.00-12.00: Lofgjörð - Kennsla
Föstudaginn langa kl. 20.00: Samkoma
Laugardagur kl. 10.00-15.00: Lofgjörð - Kennsla - Fyrirbæn.
Páskadagur kl. 11.00: Hátíðarsamkoma
Páskamótið er öllum opið og þátttaka ókeypis.
Auglýsing um starfsleyfistillögu
fyrir Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.
í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1 998 um hollustu-
hætti og mengunarvarnir, liggur starfsleyfistillaga fyrir
sorpbrennslustöð Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf., Helgu-
vík, frammi til kynningar á afgreiðslutíma í bæjarskrifstofum
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbær, á
tímabilinu frá 1 2. apríl til 7. júní 2006.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu hafa
borist Umhverfisstofnun fyrir 7. júní 2006. Einnig má nálg-
ast starfsleyfistillöguna á heimasíðu Umhverfisstofnunar,
www.ust.is/
UST
Umh verfisstofn un
Suðurlandsbraut 24-108 Reykjavík
HVARERTÞÚAÐ
AUGLÝSA?
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 4210000
STÆRSTA FRÉTTA- OG'AUGLÝSINGABLAÐiÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR MIÐVIKUDAGURINN12. APRlL 20061 19