Víkurfréttir - 12.04.2006, Side 21
Hverju svarið þið gagnrýni á fjármála-
stjórn bæjarins undir ykkar stjórn?
„Ég verö aö játa að ég skil ekki alltaf
gagnrýni minnihlutans í þeim efnum.
Ég myndi svara því þannig að eiginfjár-
staöa Reykjanesbæjar hefur batnað
á þessu kjörtímabili, sem þýöir að
eignir hafa vaxið umfram skuldir“.
sveitarfélagsins. Annað í þessu
er að vísa í ársreikning ársins
2005 þar sem bæði bæjarsjóður
og samstæða Reykjanesbæjar
er að skila verulegum afgangi,
langt umfram þær áætlanir sem
voru gerðar í upphafi ársins. Það
kemur til af því að íbúafjölgun
hefur verið meiri en við gerðum
ráð fyrir sem ýmsir töldu þó
vera frekar bjartsýnar áætlanir.
■ Að hvaða leyti er fyr-
irhugað álver raunhæfari
kostur en aðrir stóriðjukostir
sem hafa dottið uppfyrir?
Þar erum við að eiga við aðila
sem eru með talsverða starfsemi
á íslandi. í hinum tilfellunum er
um að ræða aðila sem ekki eru
með starfsemi hér á landi fyrir.
Ég ætla ekki að lofa einu né
neinu varðandi álver í Helguvík.
Við lofuðum reyndar aldrei neinu
varðandi stálpípuverksmiðju, en
höfum alltaf sagt að það sem
þarf að gera er að byggja þarna
undir fyrirtækjarekstur. Þannig
að þegar stórir erlendir aðilar
koma og vilja setja upp starfsemi
séu til lóðir og hafnaraðstaða
svo þeir geti komið sér fyrir. [...]
Auðvitað verður ekkert af þessu
nema að það uppfylli öll skilyrði,
m.a. umhverfisskilyrði sem sett
eru við slíkan atvinnurekstur.
■ Hvernig hefur þér
fundist takast til i þróun
byggðar í Reykjanesbæ
og hvernig verður fram-
haldið íþeim efnum?
Mér finnst hafa tekist vel til.
Það hefur verið mikil uppbygg-
ing í bænum. Miklu meiri en
við höfum séð, að minnsta
kosti áratuginn þar á undan.
Við höfum farið hratt í að
skipuleggja þau svæði og út-
hlutað lóðum undir á annað
þúsund íbúðir á sama tima
og við erum að sjá hverfi eins
og i kringum Keflavíkurhöfn
og önnur svæði þéttast.
Það verður klárlega haldið áfram
á sömu leið. Mérfinnst það
vera hlutverk okkar sem sveitar-
stjórnarmanna að tryggja að það
sé framboð á lóðum á meðan
eftirspurnin er fyrir hendi. Það er
búið að úthluta nánast öllu sem
búið er að skipuleggja og það
eru enn að berast fyrirspurnir
og umsóknir og á meðan það er
höldum við áfram að skipuleggja
hverfi í áttina að Vogastapa og
bjóða þar bæði einstaklingum og
fyrirtækjum lóðir til að byggja.
■ Hvaða lausnir sjá
sjálfstæðismenn i atvinnu-
málum á svæðinu eftir
brotthvarf hersins?
Við hefuðum viljað fá lengri tíma
til að aðlagast þeim aðstæðum
sem fylgja brotthvarfi Varnarliðs-
ins. Það liggur ekki fyrir með
hvaða hætti það verður. Hvað
verður eftir og hvað fer í burtu
þannig aö við þurfum að bíða
og sjá til hvað kemur út úr þeim
viðræðum sem eru á milli banda-
rískra og íslenskra yfirvalda.
Við höfum hins vegar sett fram
fjöldan allan af hugmyndum og
Arni Sigfússon, bæjarstjóri, hefur
tekið forystu í þessum málum að
draga saman þær hugmyndir og
vangaveltur manna sem þekkja
best til um hvaða starfsemi gæti
hentað vel á þessu svæði.
Mér finnst mikilvægt nú að
forsætisráðherra kalii til þá
sjö manna nefnd sem hann
hafði boðað á fundi með
bæjarfulltrúum Reykjanes-
bæjar og sveitarfélög á Suð-
urnesjum skipuðu strax í.
Það er mikið af hugmyndum í
gangi og við þurfum að vinna úr
þeim og vera undirbúin þegar
niðurstaða liggur fyrir á milli
Bandaríkjamanna og íslendinga
um hvernig framhaldið verður.
■ Viltu bæta ein-
hverju við að lokum?
Ég vona að þetta verði skemmti-
leg og ábyrg kosningabarátta.
Það er mikilvægt að við munum
það að allir bæjarstjórnarmenn
bera mikla ábyrgð hvort sem
þeir eru í meirhluta eða minni-
hluta. Við eigum öll að vera að
vinna að því hlutverki að byggja
upp bæinn okkar og benda á þá
kosti sem hann hefur umfram
aðra sem við erum í samkeppni
við. Það er mikilvægt að menn
séu að koma heiðarlega fram
og setja upplýsingar rétt fram.
Við íbúa vísa ég í það við höfum
verið á réttri braut og höfum verið
í mikilli uppbyggingu og sókn í
sveitarfélaginu. Við höfum breytt
sjónarmiði almennings á íslandi
gagnvart okkar svæði og erum
orðin eftirsóttur búsetukostur og
ég vonast til þess að íbúar Reykja-
nesbæjar gefi okkur tækifæri
til þess að vinna þessi verkefni
áfram á næsta kjörtímabili.
ATVINNA
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
10-11 óskar eftir að ráða fólk til starfa í
verslun okkar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf.
10-11 er framsækið fyrirteeki í örum
vexti. 10-11 erfremsta þægindaverslun
landsins með 21 verslun. Velgengni
sína þakkar fyrirtækið fyrst og fremst
starfsfólki sínu. Því er ætíð lögð áhersla
á að gott fólk veljist til starfa.
Leitað er eftir áreiðanlegum, duglegum og
samviskusömum einstaklingum. Æskilegur
aldur umsækjenda er 18 ára og eldri.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á
skrifstofu 10-11, Lyngási 17,210 Garðabæ
eða á www.10-1 l.is.
VINNUEFTIRLITIÐ
Bíldshöfða 16-110 Reykjavík - Sími 550 4600 - Fax 550 4610
Netfang: vinnueftirlit@ver.is - Heimasíða: www.ver.is
Vinnueftirlit ríkisins starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980. Markmið stofnunarinnar er að stuðla að
fækkun slysa, atvinnutengdra sjúkdóma og góðri líðan starfsmanna á vinnustað.
Umdæmisstjóri á Reykjanesi
Viðfangsefni:
• Skipulagning og yfirumsjón með eítirlitsstarfsemi innan umdæmisins
• Þátttaka í stefnumótun eftirlitsstarfsemi Vinnueftirlitsins
• Eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustöðum
• Fræðsla, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum
Menntunar- og hæfniskröfúr:
• Tæknimenntun, t.d. verkfræði eða tæknifræði,
eða önnur menntun sem nýtist í starfi sem þessu
• Menntun eða reynsla á sviði stjórnunar og/eða vinnuverndar
• Færni í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli
• Færni í norðurlandamáli og/eða ensku
• Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sveigjanleiki
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með staðsetningu í Keflavík. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem íyrst. Starfsþjálfun fer ffam við upphaf
starfs. Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Konur jafnt sem
karlar eru hvött til að sækja um starfið. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Vinnueftirliti ríkisins, Bfldshöfða 16,110 Reykjavík
fýrir 25. aprfl nk. Umsóknareyðublað er ekki notað. Nánari upplýsingar um
starfið veita Þórunn Sveinsdóttir defldarstjóri þróunar- og eftirlitsdeildar, s. 550
4640/ 862 2829 (torunn@ver.is) og Ólafur Hauksson aðstoðardefldarstjóri
þróunar- og eftirlitsdefldar, s. 550 4642 (olafúr@ver.is).
Gleðilega pdskahátíð!
STÆRSTA FRÉTTA- OG-AUGLÝSINCABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR I MIÐVIKUDAGURINN12. APRÍL2006I 21