Víkurfréttir - 12.04.2006, Blaðsíða 26
Kristbjörg Hermannsdóttir skrifar:
Hvað skiptir máli ? Hugleiðing um skólamál
Fyrir skömmu var hald-
inn kynningarfundur
fyrir starfsfólk í Grunn-
skólanum í
Grindavík og
lét bæjarstjór-
inn i Grinda-
vík, Ólafur
Örn Ólafsson
þau orð falla
að skólastarf
væri ekki arð-
bær fjárfest-
ing. Almennterþóviðurkennt
í dag að menntunarstig þjóða
verði sá þáttur sem mestu
ræður varðandi velgengni
þeirra í framtíðinni. Hinar
hefðbundnu atvinnugreinar
munu ekki lengur skipa þann
sess sem þær hafa gert fram að
þessu, heldur aðrar áherslur
sem byggja á nýsköpun og hug-
viti. Ég er ekki alveg að skilja
hvar Ölafur sér hagnaðinn í
illa upplýstum þegnum. En
við Ólafur erum heldur ekki á
sömu braut í lífinu og forgangs-
röðum hvort á sinn hátt.
Þann 3. mars s.l. sat ég áhuga-
verða ráðstefnu ásamt mörgu
góðu fólki m.a. héðan úr Grinda-
vík. Ráðstefnan bar heitið “Hve
glöð er vor æska?“. Eitt vakti at-
hygli mína öðru fremur og var
það hluti af erindi Jóns Torfa
Jónssonar, prófessors í uppeldis-
og menntunarfræði við Há-
skóla Islands. Jón Torfi talaði
um börn og leikskóla í ýmsum
löndum. Hann bar saman m.a.
stöðuna á Norðurlöndunum.
Þar kom í ljós að hlutfallslega
lang fæst börn sóttu ieikskóla
í Finnlandi. Og til að leiðrétta
allan hugsanlegan misskilning
er ég ekki að tala gegn því góða
starfi sem fram fer á leikskólum
landsins. Hvað sem öðru líður
þá er hér um ákveðið samhengi
að ræða í samfélagslegri upp-
byggingu Finnlands og þess
góða árangurs sem þeir hafa
náð. Finnar hafa alltaf sett allan
sinn metnað í menntakerfið og
hert sultarólar á öðrum sviðum
en því, þegar þannig hefur
árað. Vitnað er í rannsókn
“Upplýsingaþjóðfélagið og vel-
ferðarríkið: Finnska módelið“
eftir Castells og Himanen, sem
báðir starfa við Berkeley-há-
skóla í Kaliforníu, en hún kom
út árið 2002. Þar kemur m.a.
fram að Finnar voru metnir
sem samkeppnishæfasta þjóð-
félag í heimi nokkur ár í röð.
Undirstaðan var talin vera
m.a. hátt menntunarstig þjóð-
arinnar. Þegnum Finnlands er
gert kieyft að sinna því sem ætti
að skipta okkur mestu máli,
nefnilega börnunum, allt frá
fyrsta degi. Þeir virðast sjá þá
arðbæru fjárfestingu sem ung-
dómurinn okkar er og hlúa að
velferð hans. Finnar uppskera
eins og þeir sá og geta státað af
einu háþróaðasta tæknisamfé-
lagi heims.
Annað sem ég á bágt með að
skilja er það úrræðaleysi bæjar-
stjórnar vegna fyrirsjáanlegrar
fjölgunar nemenda í Grunn-
skóla Grindavíkur. Við erum nú
þegar farin að innrétta andyri til
kennslu, ég átta mig ekki á því
hvernig okkar ágætu ráðamenn
í stjórn bæjarins ætla að taka á
þessu máli. Allavegana er engin
svör að hafa frá þeim og virðist
sem skjóta eigi málinu á frest
Særún Rósa Ástþórsdóttir skrifar:
Umhverfismál í Sveitarfélaginu Garði
Hverju málefni sem
unnið er að þarf að
setja skýra stefnu
því án markmiða og áætlana
verður stjórnendum lítið úr
verki. Umhverfismál eru engin
undantekning hvað þetta
varðar en athuganir Lands-
skrifstofu Staðardagskrár 21
hafa sýnt að umhverfismál eru
í dag fullgildur málaflokkur í
stefnu allra stjórnmálaflokka.
Því miður virðist því ekki vera
þannig háttað í Garðinum. Þar
er engin umhverflsstefna sýni-
leg íbúum. Víst hefur grænum
svæðum fjölgað í sveitarfélaginu
með gróðursetningu trjáplantna,
áhugi íbúa á fegrun umhverfis
fer vaxandi og það er vissulega
skref í rétta átt. Við megum
hins vegar ekki takmarka um-
LyCf’U.T
Pizzutilboð nr.l
12" pizza m/2 álegg
+1/2 Itr.Coke kr. 1.250,
Pizzutilboð nr.2:
16"pizza m/2álegg
+2 Itr.Coke kr. 1.600,-
Ath. Sendum ekki heim milli kl.
9"pizza m/2 álegg
og 1/2 Itr.Coke ídós
kr. 850,-
Kjúklingasalat + 1/2
Itr.Toppureða Coke
Light kr. 1.050,-
Hamborgari,franskar,
sósa og 1/2 Itr.Cokeí
dós kr. 750,-1
14 og 17 virka daga.
eingöngu sótteðaísal
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 4-21 4777
hverfisstefnu
okk ar við
fegrun á nán-
asta umhverfi.
Umhverfismál
eru svo mikið
víðari mála-
flokkur og svo
margt annað
sem skiptir máli.
Staða umhverfismála í Garð-
inum er slæm. Helst ber að
nefna frárennslismál sem eru
ekki í samræmi við gildandi
reglugerðir Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja. Samkvæmt mæl-
ingum HES á skólpmengun við
höfnina hefur komið í ljós að
hún er yfir leyfilegum mörkum.
Samgöngum til nágrannabæjar-
félaga er ábótavant sem hefur
þau áhrif að þörf fyrir einka-
bílarekstur er meiri. Einnig má
nefna upplýsingaflæði og þjón-
ustu við íbúa um málefni tengd
umhverfinu, s.s. endurvinnslu
og helstu atriði varðandi um-
hverfisvernd.
I Garðinum hefur heldur ekki
verið unnið að áætlanagerð og
formlegri samþykkt Staðardag-
skrár 21 þrátt fyrir mögulega
aðstoð frá Sambandi Sveitarfé-
laga í þeim efnum. Staðardag-
skrá 21 er áætlun sem öllum
sveitarstjórnum heimsins er
ætlað að gera í samræmi við
ályktun Heimsráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna urn umhverfi
og þróun í Ríó de Janeiró 1992.
Hér er um að ræða áætlun um
þau verk sem vinna þarf í hverju
samfélagi um sig til að nálgast
markmiðið um sjálfbæra þróun
Óskum eftir að ráða smiði til vinnu við
uppslátt, klæðningar og almenna smíða-
vinnu í Vogum og á Reykjanesi.
Mikil vinna framundan.
Upplýsingar gefur Kristján
í síma 660 1798.
fram yfir kosningar. Skólinn
er vinnustaðurinn minn og satt
best að segja finnst mér svona
óvissa ekki ákjósanlegur kostur.
Það að sýna skólamálum yfir-
borðskenndan áhuga korteri
fyrir jól (eða stuttu fyrir kosn-
ingar) er ekki alveg að gera sig
fyrir mig.
En hvað skiptir máli ?
Kristbjörg Hermannsdóttir
Kennari í textílmennt við
Grunnskóla Grindavíkur
Áhugasömum lesendum
bendi ég á að lesa grein Jóns
Baldvins Hannibalssonar á
slóðinni: http://www.framtid.
is/?f=5&i=5&o=330
á 21. öldinni. Samband Sveitarfé-
laga hefur síðan árið 1998 boðið
sveitarstjórnum ráðgjöf og að-
stoð við að stíga fyrstu skrefin
í átt að umhverfisvænna samfé-
lagi. Sú aðstoð stendur sveitar-
félögum til boða til loka ársins
2006.
Garður hefur enn möguleika á
að grípa tækifærið og vinna að
bættu samfélagi með skýrri um-
hverfisstefnu. Við megum ekki
lengur sitja aðgerðarlaus og láta
eins og umhverfið skipti okkur
ekki máli. N-listinn leggur
mikla áherslu á umhverfismál
og setur raunhæf og framkvæm-
anleg markmið með stefnu sinni
í þeim málum. Við teljum mikil-
vægt að unnið sé markvisst að
bættu samfélagi þar sem m.a.
umhverfisvernd er höíð í fyr-
irrúmi. Með auknu samstarfi
við leik- og grunnskóla í sveit-
arfélaginu vill N-listinn styrkja
og auka möguleika skólanna til
umhverfisfræðslu. Aukið upp-
lýsingaflæði og virk þátttaka
íbúa skiptir líka miklu máli en
N-listinn vill bæta þjónustu og
aðgengi varðandi endurvinnslu
svo eitthvað sé nefnt.
Kæru Garðbúar, látum ekki að-
gerðarleysi í umhverfismálum
viðgangast lengur. Garðurinn er
falleg náttúruperla og okkur ber
skylda til að halda því þannig
um ókomna framtíð. Við
höfum einnig alla burði til að
skara fram úr á sviði umhverfis-
mála og vera til fyrirmyndar en
ekki eftirbátar annarra. Ég hvet
ykkur eindregið til að skoða
umhverfisstefnu okkar betur á
heimasíðu listans: www.nlistinn.
is. Og setja svo X við N í vor.
Sœrún Rósa Ástþórsdóttir
skipar 5. sœti N-listans i Garði
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
26
VÍKURFRÉTTIR 15. TÖLU8LAÐ 27. ÁRGANGUR