Víkurfréttir - 12.04.2006, Síða 31
Aðsent efni: postur@vf.is
lega og var þátttaka góð meðal
íbúa, en margir nýttu sér þetta
tækifæri og komu sínum sjónar-
miðum á framfæri. Enn er hægt
að koma sínum sjónarmiðum
á framfæri á heimsíðu A-list-
ans, www.xa.is, en sérstakur
hugmyndabanki hefur verið
opnaður þar sem öllum íbúum
er gefin kostur á að leggja fram
sínar hugmyndir.
Aljóðaflugvöllurinn;
ný tækifæri
Óhætt er að fullyrða að mörg
ný atvinnutækifæri fyrir okkur
á Suðurnesjum liggja í staðsetn-
ingu alþjóðaflugvallarins hér á
Miðnesheiðinni. Þessi tækifæri
liggja á mörgum sviðum, hvort
sem það er tengt alþjóðlegu
borgaraflugi og þjónustu tengt
vexti þess, flutning innanlands-
flugs til Keflavíkur, nútímavæð-
ingu varna íslands, miðstöð alls
eftirlits með land- og lofthelgi
Islands, miðstöð alls björgunar-
starfs á íslandi, o.s.frv.
Á opnum stefnumótunar-
fundum A-listans komu fram
margar góðar hugmyndir um
ný atvinnutækifæri tengt aðstöð-
unni á Miðnesheiðinni sem vert
er að skoða og hægt er að kynna
sér nánar á www.xa.is.
A-listinn leggst gegn hug-
myndum um einkavæð-
ingu Keflavíkurflugvallar
A-listinn leggst gegn hug-
myndum formanns Sjálfstæðis-
flokksins, Geir H. Haarde um
einkavæðingu Keflavíkurflug-
vallar. Ekki kemur til greina að
einkavæða Keflavíkurflugvöll
né Flugstöð Leifs Eiríkssonar
hf. Keflavíkurflugvöllur er ein af
meginstoðum atvinnulífs á Suð-
urnesjum. Því eru hugmyndir
um einkavæðingu flugvallarins
mjög varhugaverðar, sérstak-
lega í ljósi þess atvinnuástands
sem nú skapast við brotthvarf
varnarliðsins en Keflavíkurflug-
völlur er eini eiginlegi alþjóða-
flugvöllurinn á Islandi og því í
einokunarstöðu. Flugvöllurinn
og öll nauðsynleg mannvirki
í kringum hann eiga að vera í
eigu og á forræði þjóðarinnar.
Allar tekjur flugvallarins
renni til uppbyggingar á
Keflavíkurflugvelli
A-listinn leggur þunga áherslu
á að allar tekjur, í hvaða formi
sem er, af rekstri flugvallarins
og flugstöðvarinnar fari í upp-
byggingu starfseminnar á Kefla-
víkurflugvelli. Öðruvísi er ekki
hægt að vera með samkeppnis-
hæf verð og gæði þjónustunnar
verða lakari. Það skiptir miklu
máli fyrir ferðaþjónustuna að
eini eiginlegi millilandaflug-
völlur landsins sé samkeppnis-
hæfur við aðra millilandaflug-
velli hvað varðar þjónustu, gæði
og verð.
Einnig þarf að tryggja sveigj-
anleika í verðlagningu á þjón-
ustu og gjaldtöku fyrir nýtingu
flugvallarins. Endurskoða þarf
því lög um loftferðir og heim-
ila slíku félagi sveigjanlegri
verðlagningu I þeim tilgangi að
nýta betur Keflavíkurflugvöll
sem áfangastað fyrir flugfélög
og fjölga þannig ferðamönnum
til Islands og fjölga þar með
atvinnutækifærum í ferðaþjón-
ustu og við alþjóðaflugvöllinn í
Keflavík.
Ef þú vilt öflugt og fjöbreytt at-
vinnulíf með mörgum vel laun-
uðum störfum þá merkir þú x
við A þann 27. maí.
Eysteinn Jónsson
Skipar 2. sœtið á A-list-
anum í Reykjanesbœ
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreggviður Hermannsson,
læknir,
andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi
við Fossvog, laugardaginn 8. apríl.
Jarðarför fer fram frá Keflavíkurkirkju,
miðvikudaginn 19. apríl kl. 14:00.
Lilja Jóhannsdóttir,
Margrét Hreggviðsdóttir, Bjarni Guðjónsson,
Hermann Torfi Hreggviðsson, Ágústa Hildur Gizurardóttir,
Elín Kristín Hreggviðsdóttir, Júlíus Sigurðsson,
Guðmundur Páll Hreggviðsson, Sólveig Silfá Karlsdóttir,
Björn Blöndal,
Gísli Blöndal, Sólveig Leifsdóttir,
James William Sandridge,
Jóhann Dalberg, Kristín Ruth Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Reykjanesbœ oy liafa opnaðMBofafœtitÍýK.
sem Bílasala Kéflayíkur var síðast til húsa.
Þar hefur syniugarsalurinn hlotið inikla
andlitslyftingu og verið stœkkaður.
STUÐLABERG
FASTEIGNASALA
Guðlaugur H. Guðlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali
Sölumenn: Halldór Magnússon og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Hafnargötu 29,2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000 • fax 420 4009 • studlaberg.is
Álfatjöm, Njarðvík
Glæsilegt 194m2 einbýlishús á einni hæð með
innbyggðum bílskúr. Húsið er í byggingu og
afhendist fullbúið að utan með tyrftri lóð og
búið verður að helluleggja bílastæði. Að innan
afhendist húsið tilbúið undir tréverk. Húsið er
teiknað af Pálmari Kristmundssyni arkitekt.
Kjarrmói 4, Njarðvík.
Um 160m2, fimm herbergja parhús á tveimur
hæðum ásamt 25m2 bflskúr. Góðar innréttingar,
parket og flisar á öllum gólfum. Glæsileg eign
í alla staði á mjög góðum stað.
15.200.000,-
I
II II M ’
r
Heiðarhvammur 9, Keflavík
Um 78m2, 3 herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjöl-
býli. Lausafög eru endurnýjuð og neyslulagnir.
Snyrtileg og góð íbúð. Búið er að endumýja
teppi á stigagangi og mála.
Hóimgarður 2b, Keflavík
94m2, 3 herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýli.
Mjög falleg og rúmgóð eign, nýtt parket á gólfum,
góðar innréttingar á baði og í eldhúsi. Mjög
snyrtileg og rúmgóð sameign. Góður staður.
Starmói 5, Njarðvík
Um 150m2 einbýlishús ásamt 50m2 tvöföldum bfl-
skúr. Fjögur svefnherbergi, flísaiagt baðherbergi og
flest gólfefni em ný. Innangengt er í bílskúr.
Rúmgóð eign sem býður upp á ýmsa möguleika.
Góð staðsetning.
Garðavegur 5, Keflavík
Einkar glæsilegt 125m2, fimm herbergja einbýlishús
ásamt tæplega 37m2 bílskúr. Nýjar innréttingar em
bæði í eldhúsi og á baði, öll góífefni em ný og búið
er að endumýja allar lagnir í húsinu ásamt þakjámi 1
og þakkanti. Topp eign.
Gleðilega páska!
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSiNGABLAÐiÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR i MIÐVIKUDAGURINN12. APRÍL 20061 B1