Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.2006, Side 32

Víkurfréttir - 24.05.2006, Side 32
Böðvar Jónsson skrifar: Rangfærslur í kosn- ingabaráttunni Sem fyrr hefur Sjálfstæð- isflokkurinn haft það að markmiði í þessari kosningabar- áttu að fjalla um sín eigin mál sem sett eru á oddinn, verkefnin sem búin eru en látið baráttu- mál annarra framboða óáreitt. Stundum er þó þörf á að leiðrétta það sem rangt er sagt. 180 milljónir A-listans Frambjóðendur A-listans hafa verið óragir við að halda á lofti fullyrðingum um að unnt væri að spara bæjarsjóði 180 millj- ónir króna árlega með því að hætta þátttöku í Fasteign hf. Hefur það verið helsta áherslu- mál þeirra í kosningabarátt- unni. Athygli vekur hins vegar að engir útreikningar hafa verið lagðir fram þessu til stuðnings. Ég leyfi mér að fullyrða að þessum útreikningum er veru- lega ábótavant. í þá vantar stóra kostnaðarliði s.s. viðhaldsþætti, umsýslu- og rekstrarkostnað og beinar og óbeinar arðgreiðslur. Þegar allt er tiltekið er mun hag- stæðara fyrir Reykjanesbæ að vera í Fasteign en utan þess. Fjöl- margir útreikningar og úttektír staðfesta það. Þátttaka margra annarra sveit- arfélaga en Reykjanesbæjar í Fasteign hf. staðfestir að hagur sveitarfélaganna við þátttöku í Fasteign er umtalsverður. Árásir á bæjarstjóra Af fjölmörgum greinum sem birst hafa síðustu vikur er áber- andi hvað bæjarstjórinn er ofar- lega í hugum frambjóðenda allra flokka. Sumum framboðum hefur gengið afar illa að skrifa um eigin málefni en látið þeim mun meira frá sér um fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins. A síðustu vikum hafa t.d. birst greinar undir fyrirsögnunum: Skattpíning Árna, Trúverðug- leiki Arna, Alræði D-listans, For- færingar á peningum, Enn lofar Árni því sem hann getur ekki staðið við, Sporin hræða o.s.frv. Allt greinar eftir aðra en sjálf- stæðismenn en engu að síður um sjálfstæðismenn. Þegar málflutningur er með þessum hætti er um leið staðfest að málefnastaða er döpur og lítið annað til ráða en að reyna að gera lítið úr andstæðingnum. Sem betur fer hafa slík vinnu- brögð aldrei skilað árangri. Á sama hátt hafa Sjálfstæðismenn aldrei svarað slíkum árásum. Leggjum verkin í ykkar dóm Við sjálfstæðismenn höfum lagt rnetnað í þá uppbyggingu og framfarir sem verið hafa í sveit- arfélaginu á síðasta kjörtímabili. Þessari sókn viljum við halda áfram og gera Reykjanesbæ að besta sveitarfélagi landsins til þess að búa í. Við óskum eftir stuðningi ykkar til þess í kosn- ingunum n.k. laugardag. XD Böðvar Jónsson bcejarfulltrúi ogframbjóðandi Sjálfstœðisflokksins í kosn- ingunum á laugardag Eysteinn Jónsson skrifar: Andvirði sölu fasteigna Reykjanes- bæjar brennt upp á einu kjörtímabili Andvirði sölu nánast allra fasteigna Reykjanesbæjar var ekki nýtt til upp- greiðslu skulda Reykjanesbæjar eins og ráð var fyrir gert, heldur nýtt til að fjármagna hallarekstur sveitarfélagins sem var 1,5 milljarður á þessu kjörtímabili. Þetta sjá allir sem vilja sjá og liggur á borðinu. Skuldaaukning sveitarfélagsins á þessu kjörtímabili náði nýjum hæðum. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur kosningar eftir kosningar reynt að fella R-listann í Reykjavík vegna óráðsíu í íjár- málastjórnun, skuldir og skuldbindingar pr. íbúa í Reykjavík eru rúmar 400 þúsund krónur á meðan sambærileg tala fyrir Reykjanesbæ er að nálgast eina milljón. Skv. frétt í Fréttablaðinu sl. haust voru skuldir og skuldbindingar vel yfir 800 þús- und krónur um áramótin 2005 og inn í þeim tölum voru ekki skuldbindingar vegna Akurskóla (616 milljónir), nýrrar sundlaugar (680 milljónir), íþróttaakademíu (460 milljónir), og mörg fleiri smá verkefni upp á 227 milljónir eða samtals 2 milljarðar sem eru 180 þúsund pr. íbúa og því erum við að nálgast það að skuldir og skuldbind- ingar nemi einni milljón pr. íbúa sem er íslands- met og þó víðar væri leitað. í raun má segja að eignamyndun sveitarsjóðs sl. 100 ár hafi verið brennt upp á einu kjörtímabili, svo einfalt er það. Eysteinn Jónsson Skipar 2. sœtið á A-listanum Fasteignasala G.Ó. Hafnargötu 79, Keflavík sími: 421 8111 . f'ax:421 4172 www.fasteign.com. fasteign@fasteign.com Gunnar Ólafsson lg.fs.« Randver Ragnarsson sölustjóri Grænás ib, Njarðvík Góð 4 herb. 109m2 íbúð á fyrstu hæð með sólstofu og afgirtum sólpall, ágætlega rnrngóð íbúð, allt húsið og lóðin hefur verið tekin í gegn. 15.800.000,- Hjallavegur 5, Njarðvík 3 herbergja íbúð á þriðju hæð, 81m2, plastparket og dúkur á gólfum. Nýlega búiðerað skipta um jám á þaki og mála blokkma að utan. IO.900.OOO,- Austurbraut 6, Keflavík Rúmgóð og björt 4 herbergja 131nr neðri hæð í tvíbýli, ásamt 26m2 bílskúr, húsið hefur verið töluvert endumýjað að utan. i9.OOO.OOO,- Heiðarvegur 16, Keflavík 5 herbergja eldra einbýlishús á tveimur hæðum 137mz og bílskúr 37m2, eignin hefur verið töluvert endumýjuð. Bílskúr er lélegur. 21.900.000,- Kno.- nyoygging smíðum, 172m2 og bílskúr 32m2 .Teikningar fráVerk- ffæðistofu Suðumesja.Afhent tilbúið til innréttinga eða fullbúið. Afhendingartími skammt undan. Uppl. og teikningar á skrifstofu. Smáratún 37, Keflavík Vel skipulögð 131m2,4ra herbergja neðri sérhæð í tvíbýK ásamt 28m2 bílskúr. Eignin er vel staðsett í bænum, stutt í alla þjónustu. 20.800.000,- íbúð, 121mz, bílskúr m/geymslu 35m2. Fyrstí húsið er tilbúið til afhendingar. fullbúið innan með glæsilegurr tækjum, gólfefnum og innréttingum. Gónhóll 16, Njarðvík Fallegt parhús með bílskúr, samtals um 161m2. Lóð með skjólgirðingu og heitum potti á verönd. Rúmgóð eign og vel skipulögð. Stutt i afhendingu. Uppl. skrifst. Hátún 16, Keflavík Mjög gott og snyrtilegt 6 herb. 156m2 einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 45nr bílskúr. Þetta er töluvert mikið endumýjuð eign og býður upp mikla möguleika. 28.900.000,- Vallargata 36, Sandgerði Stórglæsilegt 4 herbergja, 105m2 parhús og 33m2 btlskúr. Þetta er eign sem hvergi hefur verið til sparað í innréttingar og gólfefni. Góður afgirtur sól- pallur með heitum potti er á baklóð. 24.900.000,- Hlíðargata 44, Sandgerði Mjög gott 131m2,5 herb. einbýlishús á einni hæð. Gólfefni eru flísar og parket, ný eldhúsinnrétting og tæki. Stór og mikill sólpallur með heitum pottierviðhúsið. 22.900.000,- Nónvarða 3, Keflavík Gott 6 herbergja, 145mz einbýlishús og bílskúr 52m2, eignin skiptist í 5 svefnherbergi, sjónvarpshol, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Gólfefni em flísar og parket. Upplýsingar á skrifstofu. 32 IVÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 27.ÁRCANCUR VÍKURFRÉTTIR.Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR 0AGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.