Víkurfréttir - 24.05.2006, Qupperneq 34
GLÆSILEGT MANNVIRKI
STÓRSPILLT MEÐ FÁRÁN-
LEGRIAÐKOMU
Ný sundlaug var vígð með pompi og pragt þann 12.
maí sl. Allt er þar með glæsibrag en aðgengi er
hreint fráleitt að ekki sé meira sagt. Úr afgreiðslunni
er farið niður heldur þröngan hringstiga, 15 þrep eða svo,
(helsti gallinn á gömlu sundhöllina þóttu fjórar tröppur eða
svo) komið er að fínum búningsklefum og sturtum en gall-
inn er að þar er svo lágt undir loft að ekki þarf margt í sturtu
í senn til þess að allt fyllist af gufu, loftræsting er engin. Úr
sturtunum er farið upp sjö eða átta tröppur til þess að kom-
ast að sundlauginni og sami tröppufjöldi til viðbótar til þess
að komast að vatnaveröld barnanna. Ekki veit ég hvað hefur
komið yfir menn að hætta við að hafa búningsklefana þar
sem upprunalega var ætlað og nú er tækjasalur Perlunnar.
Allir frambjóðendur ættu að gefa kosningaloforð um að úr
þessu yrði bætt hið bráðasta.
Ólafur Björnsson
Guðbrandur Einarsson skrifar:
Vinnum saman - þá vinnum við
Kosningabaráttan í
Reykjanesbæ hefur
verið sérstök að mörgu
leyti. Fyrir
það fyrsta eru
miðjuöflin,
jafn að ar-
og félags-
hyggjuöflin
í íslenskum
stjórnmálum,
að bjóða fram
sameiginlegan lista ásamt
óflokksbundnum einstak-
lingum undir merkjum A-list-
ans.
Það er einnig merkilegt að
í framboði eru fleiri listar en
reiknað hafði verið með. Það
getur skipt máli þegar upp
verður staðið því aukin hætta
er á að atkvæði detti dauð niður
en á því hagnast helst Sjálfstæð-
isflokkurinn. Þá er einnig merki-
legt að skoða hvernig sjálfstæðis-
menn i Reykjanesbæ hafa þreytt
þessa kosningabaráttu.
Kosningabarátta D-list-
ans kostuð af öðrum
Sjálfstæðisflokkurinn, sem setið
hefur í meirihlutastjórn þetta
kjörtímabil hefur nýtt sér stöðu
sína sem sitjandi valdhafar út í
ystu æsar. Bæjarstjóranum hefur
verið teflt fram sem embættis-
manni og meðframbjóðendur
hafa ekki sést alla kosningabar-
áttuna. Meðal verkefna bæjar-
stjórans að undanförnu hafa
verið skóflustungur af ýmsu til-
efni, vígsluathafnir, kaffiboð og
hverfafundir þar sem bæjarstjór-
inn hefur ekki komið fram sem
frambjóðandi heldur sem emb-
ættismaður. Ekkert hefur skort
á gjafmildi hans og hafa börnin
okkar notið hennar m.a með
gjöfum sem kostaðar hafa verið
af verktakafyrirtækjum.
Verðskuldar Sjálfstæð-
isflokkurinn fylgisaukn-
ingu?
Sú fylgisaukning sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur verið að mæl-
ast með í skoðanakönnunum að
undanförnu er algjörlega óverð-
skulduð. Afrek sjálfstæðismanna
á þessu kjörtímabili felast í því
að selja fasteignir okkar og nýta
helminginn af þeim íjármunum
í rekstur, í stað þess að greiða
upp skuldir en hagræðið með
fasteignafélaginu átti að felast í
að greiða upp skuldir sveitarfé-
lagsins. Þannig hafa sjálfstæðis-
rnenn eytt 1,5 milljarði umfram
eiginlegar rekstrartekjur á þessu
kjörtímabili. Það er ekkert að
mál að eyða peningum, en það
er erfiðara að afla þeirra. Ár-
angur sjálfstæðismanna í þeim
efnum er enginn.
A-listinn fyrir fólkið í
bænum
Málefnaundirbúningur A-list-
ans fyrir þessa kosningabaráttu
var með samráði við íbúa á
fjölda opinna funda. Til varð
stefnuskrá sem einkennist af
aukinni þjónustu við íbúa þar
sem sérstök áhersla er lögð á
börnin okkar. A-listinn mun
koma á þátttökukortum að upp-
hæð 25.000 kr. fyrir börn 6-16
ára sem nýta má í íþrótta-, tóm-
stunda- og menningarstarfi.
Það er í samræmi við áherslur
ISl sem hvetur sveitarfélög til
að auka niðurgreiðslur vegna
félagsþátttöku barna. Við ætlum
að lækka leikskólagjöld um
helming en Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur hækkað þau umtals-
vert á kjörtímabilinu og eru leik-
skólagjöld nú langhæst í Reykja-
nesbæ þegar borin eru saman
stærstu sveitarfélögin. Munar
þar allt að 128%. Þetta eru dæmi
um áherslur A-listans sem skilja
hann frá Sjálfstæðisflokknum.
A-listinn til jöfnuðar
Því er stöðugt haldið fram að
sveitarstjórnarkosningar séu
ekki pólitískar og því skipti ekki
máli hverja þú kjósir. Slíkar full-
yrðingar eru fjarri öllum raun-
veruleika. Verkefnin, hvort þau
eru unnin af ríki eða sveitarfé-
lögum byggjast á þjónustu við
fólkið. Þegar kemur að því að
forgangsraða ræður hugmynda-
fræði stjórnmálamanna því
hver forgangsröðunin verður.
A-Iistinn byggir á hugsjónum
jöfnuðar og aukinnar samfélags-
legrar ábyrgðar. Við leggjum
áherslu á þjónustu við íbúa alla
ævi. Þar má enginn verða út-
undan.
Sért þú sömu skoðunar, þá
áttu samleið með okkur í A-list-
anum.
Guöbrandur Einarsson
oddviti A-listans í Reykjanesbœ
Hilmar Kristinsson og Styrmir Barkarson skrifa:
Engin efling á starfsemi Fjörheima og 88 Hússins
Itilefni af nýbirtri auglýs-
ingu Sjálfstæðisflokks-
ins þar sem talað er um
áfram hald-
andi eflingu
á starfsemi
Fjör heima
og 88 Húss-
ins vilj um
við benda á
nokkur atriði
sem okkur
þykja stangast
verulega á við
þessa yfirlýs-
ingu flokks-
ins.
Það hefur ekki
farið fram
nein efling á
starfsemi Fjör-
heima, heldur þvert á móti hefur
starfsemin þar dalað undanfarin
ár. Dregið hefur úr íjárfram-
lögum til reksturs Fjörheima
og aðsókn þar dregist saman
undanfarin ár. Auk þess hefur
stöðugildum í húsinu verið
fækkað og í dag er þar aðeins
einn starfsmaður sem einnig
er íhlaupastarfsmaður fyrir 88
Húsið auk forstöðumanns sem
einnig sinnir 88 Húsinu og fleiri
verkefnum. Þegar Ungó og Fjör-
heimar voru sameinuð undir
nafni Fjörheima árið 1998 varð
strax ljóst að húsnæði Fjör-
heima var þá þegar of lítið til að
sinna sameinuðu sveitarfélagi
Reykjanesbæjar. Síðan þá hafa
ekki verið stigin nauðsynleg
skref til að bæta aðstöðu Fjör-
heima. Af aðsóknartölum úr
Keflavíkurhverfi má sjá að Fjör-
heimar standa ekki undir nafni
sem félagsmiðstöð alls Reykja-
nesbæjar. Nauðsynlegt er að
útvega félagsmiðstöðinni nýtt
húsnæði og veita fé til að ráða
fleira starfsfólk og halda úti öfl-
ugu forvarnar- og félagsstarfi
fyrir eldri bekki grunnskóla í
Reykjanesbæ. Miðað við stærð
bæjarins mætti jafnvel íhuga að
bæta við félagsmiðstöð.
Hvað varðar uppbyggingu í
88 Húsinu hefur lítið gerst frá
opnun hússins í samræmi við
möguleikana sem þá voru fyrir
hendi. Ýmislegt gott hefur verið
gert í starfi 88 Hússins en betur
má ef duga skal og síst var það
framfaraspor að fækka starfs-
mönnum hússins um helming.
Þegar 88 Húsið var opnað var
það sett undir sama hatt og
Fjörheimar og fjárframlög ekki
aukin nægilega til að standa
undir rekstri beggja stofnana
svo vel sé. Sameiginlegur fjár-
hagur húsanna verður til þess
að stórar framkvæmdir eða við-
burðir í 88 Húsinu koma niður
á Fjörheimum og öfugt. Þetta
hefur leitt til þess að þrengt
hefur að Fjörheimum sem virð-
ast hafa fallið í skugga 88 Húss-
ins þrátt fyrir ólíka starfsemi.
Metnaðarleysi hefur orðið til
þess að lítil framþróun hefur
orðið í þessum málaflokki sem
hefur meðal annars valdið því
að bænum hefur haldist illa á
starfsfólki í þessum stofnunum
og hafa auk þess nýtt uppsagn-
irnar til þess að fækka stöðu-
gildum. I því sem virðast vera
sparnaðartilraunir er starfs-
mönnum þessara tveggja stofn-
ana gert að ganga í störf hvers
annars frekar en að ráða fleira
starfsfólk. Vegna þess grund-
vallarmunar sem er á starfsemi
stofnananna spillir núverandi
fyrirkomulag möguleikum
þeirra á að vaxa og dafna á eigin
forsendum og verða í staðinn
til þess að þær eru orðnar bjag-
aðar eftirmyndir hvor af annarri
og klúðurslegur hrærigrautur
ólíkrar hugmyndafræði.
Fyrstu skrefin í átt að öflugra
félags- og ungmennastarfi í
Reykjanesbæ er að aðskilja
þessar stofnanir, starfsfólk þeirra
og fjárhag. Það er lágmark að
það séu tveir starfsmenn við
hvora stofnun fyrir sig, þar af
einn forstöðumaður, og að þeir
geti einbeitt sér að því að þjón-
usta sína skjólstæðinga.
Auk þess þarf að heíjast handa
við að gera Fjörheimum þá um-
gjörð sem þarf til að hægt sé
að halda úti boðlegri félagsstarf-
semi og forvarnarstarfi fyrir
elstu árganga grunnskólanna.
Uppbyggingunni þarf ekki að
halda áfram heldur þarf hún að
hefjast.
Höfundar erufyrrver-
andi starfsmenn Fjör-
heima og 88 Hússins.
34 VlKURFRÉTTIR f 21.TÖLU8LAÐ I 27. ÁRGANCUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETÍNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!