Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 2
Veður Fremur hæg suðvestanátt og bjart- viðri austan til, en annars skýjað og sums staðar súld. Hlýtt í veðri með hita að 22 stigum fyrir austan. sjá síðu 28 Allt á fullu á lóð kísilvers PCC Framkvæmdir við kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík eru á lokametrunum. Gangsetning verksmiðjunnar verður samkvæmt áætlunum í desember og full afköst ættu að nást nokkrum vikum síðar. Rétt rúm tvö ár eru liðin síðan jarðvinna hófst á lóðinni. Mynd/Gaukur Hjartarson stjórnmál „Stjórnmálamenn eiga auðvitað að skipta sér af lögum sem varða uppreist æru. Þetta á ekki við um mína nefnd,“ segir Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og formaður alls- herjar- og menntamálanefndar, um færslu sem hún lækaði við á Twitt er á mánudag. Í umræddri færslu frá Davíð Þorlákssyni, lög- fræðingi og fyrrverandi formanni Sambands ungra Sjálfstæðis- manna, lýsir hann þeirri skoðun sinni að fátt sé meira „lýðskrum en þegar þingmenn krefjast fundar í þingnefnd út af ein- hverju sem stjórnmálamenn ættu ekki að skipta sér af“. Áslaug Arna lýsti vel- þóknun á þessari fullyrð- ingu Davíðs með því að líka við færsluna á mánu- dag, daginn áður en alls- herjar- og menntamála- nefnd kom saman til opins fundar til að fjalla um reglur um uppreist æru. Fundar sem Þór- hildur Sunna Ævars- dóttir, þingmaður Pírata, óskaði eftir. Þegar blaðamaður bar undir Áslaugu Örnu hvort hún væri sammála full- yrðingu tístsins kannaðist hún í fyrstu ekki við að hafa séð það. Þegar blaðamaður minnti hana á að hún hefði lækað færsluna sagðist hún telja að færslan hefði því ekki átt við um hennar nefnd. „Ég er sammála því að það er tilgangslaust að halda fundi í nefndum um málefni sem heyra ekki sérstaklega undir nefndina eða sem þing- menn geta ekki gert neitt í. Sem hann er að vitna til.“ Áslaug segir ljóst að málefni uppreist æru heyri undir allsherjar- og menntamálanefnd. Hún hafi glöð orðið við beiðni minnihlutans um fundinn enda komi málið á borð nefndarinnar til umfjöllunar þegar það komi frá ráðherra. Þing- menn í hennar nefnd hafi einbeitt sér að málum sem stjórn- málamenn eigi að skipta sér af. „Þess vegna á þetta ekki við í þeim tilfellum.“ Þórhildur Sunna, þingmaður Pírata, segir að þó erfitt sé að lesa í læk á tístum sé málið óheppilegt. „Það er mjög miður að formaður allsherjar- og menntamálanefndar skuli taka undir þessi sjónarmið.“ Eftir umtalaða færslu Áslaugar á Twitter um helgina þar sem hún óskaði eftir ólöglegu streymi á box- bardaga og þessara óheppilegu undir- tekta hennar við færslu Davíðs segir hún aðspurð að ekki sé ástæða fyrir hana til að endurskoða hegðun sína á samfélagsmiðlum í ljósi stöðu sinnar og ábyrgðar. „Nei, það tel ég ekki. Ég er búin að biðjast afsökunar á þessu tísti sem var þarna inni í örskamma stund og taldi vera mistök. Að öðru leyti tel ég það ekki vera.“ mikael@frettabladid.is Áslaug lækaði að ósk um fund væri lýðskrum Nefndarformaðurinn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lýsti velþóknun sinni á Twitter-færslu það var kallað lýðskrum þegar þingmenn óskuðu eftir þing- nefndarfundum. Þingmaðurinn segir að færslan eigi ekki við um hennar nefnd. Færsla davíðs og Áslaug arna á lista meðal þeirra sem lækuðu hana. PÁSKATILBOÐ Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400 Opið virka daga 11-18 Laugardag 11-16 Grillbúðin Nr. 12652 Grill - Húsgögn Eldstæði - Útiljós Hitarar - Aukahlutir • 3 brennarar • Brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Rafkveikja • Gashella í hliðarborði • Tvöfalt einangrað lok • Stór efri grind • Hitamælir • Grillflötur 58 x 46 cm • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Afl 13,4 KW Gildir 1. - 9. sept Opið virka daga 11-18 Opið laugardaga 11-16 22% afsláttur 69.900 Verð áður 89.900 lÖGrEGlumál Verjandi Sveins Gests Tryggvasonar, sem var í gær ákærður vegna dauða Arnars Jóns- sonar Aspar, segir umbjóðanda sinn hafna ákærunni. „Hann hefur lýst sig saklausan af þessum ásökunum og heldur sig fast við það,“ segir verj- andinn, Þorgils Þorgilsson, í samtali við blaðið. Héraðssaksóknari ákærði Svein Gest fyrir stórfellda líkamsárás samkvæmt 2. málsgrein 218. greinar almennra hegningarlaga. Brotið getur varðað fangelsi allt að sextán árum þegar bani hlýst af atlögunni. Sveinn Gestur hefur setið í gæslu- varðhaldi síðustu tólf vikur grun- aður um að hafa ráðið Arnari bana að Æsustöðum í Mosfellsdal þann 7. júní. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á að framlengja varð- haldið yfir honum til 28. septem- ber. Úrskurðurinn hefur verið kærður t i l H æ st a - réttar, að sögn Þor- gils. S v e i n n G e s t u r e r einn ákærð- ur í málinu e n u p p - haflega voru sex handteknir. Fjórum var fljótlega sleppt og þeim fimmta, Jóni Trausta Lúth- erssyni, nokkrum vikum síðar eftir að Hæstiréttur neitaði að fallast á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Sveinn Gestur og Jón Trausti voru báðir í einangrun í nokkra daga á meðan gæsluvarð- haldsvist þeirra stóð. Málið var upphaflega rannsakað sem manndráp, líkt og fram kemur í eldri gæsluvarðhaldsúrskurðum, en eins og áður segir hefur saksóknari nú ákveðið að ákæra fyrir stórfellda líkamsárás. – kij Sveinn lýsir áfram yfir sakleysi FjÖlmiðlar Kostnaður Ríkisút- varpsins (RÚV) vegna skrifstofu útvarpsstjóra, fjármáladeildar og stjórnar nam tæpum 140 millj- ónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um tuttugu prósent á milli ára, að því er fram kemur í hálfsársuppgjöri félagsins. Rekstrar- gjöld Ríkisútvarpsins námu rúmum þremur milljörðum króna á tíma- bilinu og hækkuðu um 114 milljónir eða fjögur prósent á milli ára. Um 44 milljóna króna tap varð á rekstri RÚV á fyrri helmingi ársins borið saman við 38,2 milljarða króna tap á sama tíma í fyrra. Þá námu gjaldfærð laun og lífeyris sjóðsgreiðslur til æðstu stjórnenda RÚV, annarra en útvarpstjóra, 60,7 milljónum króna á fyrri helmingi ársins og hækkuðu um 7,4 prósent á milli ára. Heildar- laun og þóknanir útvarpsstjóra námu 10,5 milljónum króna. – kij Kostnaður RÚV jókst um 20% 1 . s E p t E m b E r 2 0 1 7 F Ö s t u D a G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 0 1 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 3 -3 4 D C 1 D A 3 -3 3 A 0 1 D A 3 -3 2 6 4 1 D A 3 -3 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.