Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 6

Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 6
Það eru fastir aðilar frá Öryggismiðstöð- inni í þessu og þeir fá sér- staka kynningu og fræðslu hjá okkur. Bernard Gerritsma, forstöðuhjúkr- unarfræðingur geðdeildar Sjúkra- hússins á Akureyri Ógrynni pílagríma í Sádi-Arabíu Gífurlegur fjöldi pílagríma sótti Arafat-fjall í Sádi-Arabíu heim í gær en heimsóknin er liður í Hajj-pílagrímsferðinni sem er mikilvægur þáttur íslamskrar trúar. Arafat-fjall er suðaustur af Mekka en múslimar trúa því að Múhameð spámaður hafi þar flutt síðustu ræðu sína. nordicphotos/AFp starfsmaður sjúkrahússins á Akureyri sér um að þjálfa öryggisverðina. FréttAblAðið/pjetur VIÐSKIPTI Lækkanir síðustu vikna á gengi hlutabréfa í Marel hafa skapað gott kauptækifæri fyrir fjárfesta að mati hagfræðideildar Landsbankans. Nýtt verðmat sér- fræðinga bankans, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er tæpum nítj- án prósentum hærra en gengi bréfa félagsins eftir lokun markaða í gær. Hagfræðideildin telur verðmats- gengi Marels vera 403 krónur á hlut, en gengið var 339 krónur á hlut síð- degis í gær. Er fjárfestum þannig ráðlagt að kaupa hlutabréf í félag- inu. Mælt í krónum hækkaði verð- matið um 5,7 prósent frá því í júní. Hlutabréf í Marel lækkuðu um 8,5 prósent í verði í ágústmánuði. Í verðmati hagfræðideildarinnar kemur fram að uppgjör félagsins fyrir annan fjórðung ársins hafi komið á óvart. Deildin hafi reiknað með tekjuvexti en hins vegar dróg- ust tekjurnar saman um 7,6 pró- sent á milli ára. Var rekstrarhagn- aður Marel fyrir afskriftir, fjár- magnsliði og skatta (EBITDA) jafnframt um tíu milljónum evra undir spá h a g f r æ ð i - deildar- innar. – kij Telja bréf Marel undirverðlögð Árni oddur Þórðar- son, forstjóri Marel HeIlbrIgÐISmál Öryggisverðir hafa eftirlit með fólki í sjálfsvígshættu á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAK), samkvæmt samningi milli Öryggismiðstöðvarinnar og sjúkra- hússins. Þetta staðfestir Bernard Gerritsma, forstöðuhjúkrunar- fræðingur geðdeildar SAK. „Það eru fastir aðilar frá Öryggis- miðstöðinni í þessu og þeir fá sér- staka kynningu og fræðslu hjá okkur,“ segir Bernard og segir þjálfunina lúta að fræðslu um geð- sjúkdóma og þjálfun í viðbrögðum við æstum sjúklingum og mögu- legum áhrifum hegðunar starfs- fólks á sjúklingana. „Fyrst fengum við þjálfun á Landspítalanum en svo sendum við mann suður í sér- staka þjálfun sem er núna í fullu starfi hjá okkur við þessa fræðslu.” Sams konar samningur er í gildi milli Landspítalans og Securitas en geðsvið spítalans hefur ekki nýtt þá þjónustu undanfarin ár. „Við teljum öruggara að okkar starfs- fólk sinni þessari umönnun,“ segir María Einisdóttir, framkvæmda- stjóri geðsviðs Landspítalans. Aðspurður segir Bernard að dæmi séu um að öryggisverðir hafi þurft að vakta einstaklinga stöðugt sólarhringum saman. „Það hefur komið fyrir að þeir hafi verið einir með skjólstæð- ingum okkar bara til að vakta þá. Það hefur þá verið út af mönnunar- vanda eða að þyngdin á deildinni er þannig að við höfum ekki getað sinnt þessu en viljum samt geta tryggt öryggi okkar skjólstæðinga. En það er alls ekki mín hugmynd, enda mitt álit að skjólstæðingi eigi alltaf að sinna af fagstarfsfólki,“ segir Bernard og játar því að hann myndi helst vilja hafa fast stöðu- gildi til að sinna þessu. „Þetta vekur upp ýmsar spurn- ingar,“ segir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, sem hafði ekki heyrt af þessari tilhögun fyrir norðan og veltir fyrir sér af hverju þessi leið sé farin, hvort hún sé rétt og hvort rétt sé farið að þessu. „Það er þó léttir að heyra að það eru fastir aðilar í þessu en við vitum að það er fólk ráðið utan af götu inn á geðdeildirnar og starfsmanna- veltan er mikil. Það þarf að huga að því hvernig það er fyrir sjúkl- inga að vera þjónustaðir af ungu og ómenntuðu fólki sem er kannski bara í örfáa mánuði hverju sinni og alltaf einhverjir nýir að byrja,“ segir Anna, og leggur áherslu á mikilvægi stuðnings og fræðslu við ófaglært starfsfólk á geðdeildum óháð því hve lengi það staldrar við. adalheidur@frettabladid.is Öryggisverðir gæta sjúklinga í sjálfsvígshættu á Akureyri Öryggismiðstöðin sér um eftirlit á Sjúkrahúsinu á Akureyri á álagstímum, stundum sólarhringum saman. Geðsvið Landspítalans nýtir ekki slíka þjónustu en er með sams konar samning. Framkvæmdastjóri Geð- hjálpar er hugsi yfir þessari leið og leggur áherslu á mikilvægi fræðslu fyrir ófagmenntað starfsfólk. reyKjaVíK Rekstrarniðurstaða sam- stæðu Reykjavíkurborgar, A- og B- hluta, var jákvæð um 18,6 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 7,8 milljarða. Rekstrarniðurstaða fyrir fjár- magnsliði var jákvæð um 14,2 millj- arða króna sem er 4,5 milljörðum króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. A-hlutinn, sá hluti borgarinnar sem rekinn er fyrir skattfé, skilaði 3,6 milljarða króna hagnaði. Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri skatttekjum, framlögum Jöfnunarsjóðs, sem og hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagn- aði fasteigna. – sg Borgin rekin í 19 milljarða plús 3,6 milljarða króna afgangur var af rekstri A-hluta borgar- innar. DÓmSmál Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í fyrradag karlmann á þrí- tugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir á þriðja tug lögbrota. Brotin voru framin á um tíu mánaða tímabili eða fram til maí á þessu ári. Maðurinn, sem játaði sök, gerðist sekur um fjórtán fíkniefnalagabrot, fimm umferðarlagabrot, nytjastuldi og brot á vopnalögum. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 8. maí síðastliðnum en dvölin þar dregst frá refsingunni. Þá voru gerð upp- tæk hnífur, sverð og fíkniefni, þar á meðal 118 e-töflur, sem lögreglan hafði lagt hald við rannsókn málsins. Fram kemur í dómi héraðsdóms að maðurinn eigi að baki sakaferil. – kij Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi 1 . S e P T e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D a g U r6 F r é T T I r ∙ F r é T T a b l a Ð I Ð 0 1 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 3 -5 C 5 C 1 D A 3 -5 B 2 0 1 D A 3 -5 9 E 4 1 D A 3 -5 8 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.