Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 17

Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 17
Einu sinni var kaldhæðni sjald-gæft stílbragð. Þegar Oscar Wilde, sem virðist hafa verið frekar kaldhæðinn náungi, var uppi, gat kaldhæðni verið virkilega beitt. Þetta var á Viktoríutímanum. Þegar það var nánast hættulegt að vera kaldhæðinn opinberlega. Enda var Oscar Wilde settur í fangelsi fyrir „sódómíseringu“, hvað í fjand- anum sem það er. Líklegast var hann settur í fangelsi fyrir einmitt það viðhorf: að hæðast að heimsku lagabókstafa sem fyrirskipuðu um kynferðismálefni fólks. Frank Zappa, sem einnig var kaldhæðnispostuli sinnar kyn- slóðar, var einnig settur í fangelsi. Hann þurfti að vísu bara að dúsa í tíu daga, fyrir að hafa tekið sviðsett samfarahljóð upp á segulband. Þetta var í upphafi ferils hans. Allt frá þeim tíma talaði hann í miklum hæðnistón um stjórnvöld og ýmis boð og bönn. Frank Zappa var kaldhæðinn. Auðvitað var hann það. Hann kom inn í músík- bransann, neflangur og sveittur af ítalsk-arabískum ættum, á sama tíma og söngvarar í Ameríku voru ljóshærðir og bláeygir og sungu um mömmu sína. Hann var í stríði við alla. Plötuútgefendur, lögregluna og pabbana og mömmurnar. Frank Zappa var kaldhæðinn þegar fáir aðrir voru kaldhæðnir. Flestir voru alvarlegir á þessum tíma. Prestar voru alvarlegir. Lögreglan var ekki með fyndinn Instagram reikning. Forsetinn var alvarlegur. En nú erum við með forseta sem er kaldhæðinn. Forsetinn okkar vill ekki ananas á pitsur. Hann lét það út úr sér og heimurinn nötraði. Eða hvað? Nötraði hann í alvöru? Nei. Það var líka kaldhæðni. Allir skildu kaldhæðnina. Nema kannski einn gæi í Kanada (sem á víst að hafa fundið upp að hafa ananas á pitsur) en hann varð brjálaður og er víst dáinn núna (sem kemur reyndar málinu ekki við). En líklega var hann ekkert brjálaður. Það var líka kaldhæðni hjá honum. En hér er allt sagt í einlægni, þið getið farið yfir sérhverja hugsun hér orð fyrir orð og vegið það og metið. Punkturinn er sá að í dag er fólk í valdastétt einnig kaldhæðið. Í Bandaríkjunum grasserar nú fasismi. Það eru engar ýkjur. Í skjóli popúlisma leyfist ofbeldis- fullum hópum að hafa uppi aftur- haldssöm sjónarmið. Stjórnvöld eru í ríkum mæli farin að fórna hagsmunum minnihlutahópa, tala niður kvenréttindi, vinna fyrir hagsmunum einangrunar og er sú þróun leidd áfram af sjálfum forsetanum. En það er ekki eins og Vesturlandabúar hafi tekið þessu þegjandi. Forseti Bandaríkjanna hefur verið vélbyssudritaður með kaldhæðnum athugasemdum alveg frá því að hann ákvað að gefa kost á sér í kjör forseta fyrir rúmum tveimur árum síðan. Hann hefur verið sagður þumbaralegur, Er hægt að sigra fasisma og hafa gaman í leiðinni? með asnalegt hár, belgsíður, rass- breiður, typpskammur, með asna- legt nafn, nef og ásjónu. Margir hafa líka bent á kaldhæðnislegan hátt á stærra samhengið. Að hér sé Walmart- og byssuóða álfan að fá að finna á eigin skinni það sem hún sannarlega hefur látið yfir aðrar þjóðir ganga. Við þetta er ekkert að athuga, annað en að þetta virðist ekki vera að virka. Sjáið til. Forseti Bandaríkjanna er ekki viktoríanskur kerfiskall sem er afhjúpaður á snilldarlegan hátt með kaldhæðni. Hann er sjálfur kaldhæðinn og er læs á þann leik rétt eins og hver annar. Hann meinar ekki allt sem hann segir, stundum er merkingin þveröfug við það sem orðin ættu að þýða, sé einhver merking. Hann talar fjálg- lega og af kæruleysi um alvarleg málefni í von um að kreista fram ódýra hlátra. Og stundum tekst það jafnvel. Ætli kaldhæðnis-stig Bandaríkjaforseta sé ekki álíka mikið og hjá venjulegu fólki þegar það tjáir skoðanir sínar á netinu. Og hér kem ég loksins að loka- punktinum. Ég hef ekkert á móti kaldhæðni. Í gegnum tíðina hefur kaldhæðni verið kraftmikið stíl- bragð og fengið fólk til að hugsa. Og kaldhæðni getur líka fengið mann til að hlæja. En í sérhverju stríði þarf maður að velja vopn sín. Og kaldhæðni bítur ekki á nútíma fasisma. Ekki ögn. Kaldhæðni bítur ekki á fasisma Vesturlanda því kaldhæðni er ekki lengur einka- vopn intellígensíunnar í stríði við spillt stjórnvöld. Kaldhæðni er allra. Allir nota og skilja kald- hæðni. Líka óvinurinn. En hvernig verður þá fasismi kveðinn niður? Fasismi verður kveðinn niður með aga, hjartahlýju, lögfræðilegri kænsku og eftir atvikum persónu- legum fórnum. Eitt af því fyrsta sem við þurfum að fórna eru þau þægindi að telja sig geta barist gegn fasisma og haft gaman í leiðinni. Ég hef ekkert á móti kald- hæðni. Í gegnum tíðina hefur kaldhæðni verið kraftmikið stílbragð og fengið fólk til að hugsa. Og kaldhæðni getur líka fengið mann til að hlæja. En í sérhverju stríði þarf maður að velja vopn sín. Bergur Ebbi Í dag Miklu meira en bara ódýrt Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Loftdæla OMEGA 12V 30L Viðgerðarkollur, hækkanlegur Avo fjölsvið- mælir 8.995 7.495 Jeppatjakkur 2.25T 52cm 17.995 Allt fyrir listamanninn Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Amsterdam akrýllitir Van Gogh olíulitir Van Gogh vatnslitir Frábært úrval af strigum Frábært úrval af VIAIR loftdælum BERNAL Bílskúrs- hurðaopnarar Öflugar háþrýstidælur 165Bör 1800W 29.999 2T Tjakkur í tösku 3.795 1.895 2.995 2T Búkkar Fötur/Balar/Tunnur/ Stampar, mikið úrval Perfectpro Lunchbox vinnuútvörp, ryk og vatns- varinn, margar gerðir Vinnuvetlingar PU Flex 295 Ruslapokar 90L/120L/140L/ 190L 10/25/50stk Einnig glærir frá 385 frá 585 Strákústar 4.895 Hjólbörur 100 kg burðargeta 495 Hitamælir mikið úrval Sekkjatrillur í miklu úrvali Háþrýstidæla 1650W frá 2.995 Bílaþvotta- kústar 985 WD40 - 400ml (20% afsláttur ef keyptur er kassi) 9.895 44.999 Vélastandur 1000lb Vélagálgi 2T frá 1.999 Álskóflur Tröppur og stigar í frábæru úrvali Mikið úrval af dekkjum og flutningspöllum 4.995 Ljósabretti f/kerrur Strekkibönd og teygjur við allra hæfi 24.985 19.995 Silverline súluborvél Sjálfvirkur suðuhjálmur m/photosellu 7.995 Loftpressa 8Bör 180L 24L 19.995 METABO KS 216M Lasercut bútsög Silverline Sverðsög 800W 16.999 METABO KGS216M Lasercut bútsög m/framdragi 29.985 Scantool Hverfisteinarnir komnir aftur Silverline Hleðsluborvél 18V Li-Ion 9.999 9.999 Ný sending af strigum frá Sara&Alma Ný sending frá Talens, Rembrant, Van Gogh, Amsterdam 9.999 S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 1 . S e p T e m B e R 2 0 1 7 0 1 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 3 -4 D 8 C 1 D A 3 -4 C 5 0 1 D A 3 -4 B 1 4 1 D A 3 -4 9 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.