Fréttablaðið - 01.09.2017, Page 28
Svo virðist sem líkaminn ráði betur við stórar máltíðir í upp-hafi dags en að sami kaloríu-
fjöldi þegar líður að kvöldi safnist
fremur upp í formi fitu. Nýlegar
rannsóknir á bæði dýrum og mönn-
um benda með öðrum orðum til
þess að ekki þurfi aðeins að horfa á
kaloríur heldur líka klukkuna þegar
kemur að mat og þyngdarstjórnun.
Halda frekar kjörþyngd
Nýleg rannsókn á matarvenjum
50.000 sjöunda dags aðventista
yfir sjö ára tímabil sýndi að þeir
sem borða stóra máltíð að morgni,
minni í hádeginu og léttan eða
jafnvel engan kvöldmat koma
efnaskiptunum fyrr í gang og
draga þannig úr líkum á offitu.
Þeir þátttakendur sem borðuðu
stærstu máltíðina að morgni áttu
með öðrum orðum auðveldast með
að halda kjörþyngd. Lægsta BMI
hafði svo átta prósent hópsins sem
borðaði síðustu máltíðina snemma
eftirmiðdags og síðan ekkert fyrr en
morguninn eftir, eða föstuðu í 18 til
19 tíma á sólarhring.
„Svo virðist sem líkami okkar sé
hannaður til að borða vel og fasta
á víxl í stað þess að vera stöðugt að
narta,“ segir dr. Hana Kahleova, ein
þeirra sem standa að baki rann-
sókninni sem var birt í The Journal
of Nutrition í sumar. Hún segir
það að borða stærstu máltíðina
að morgni jafnframt virðast hafa
jákvæð áhrif á þyngdina. „Ástæðan
er líkast til sú að virkni insúlíns,
sem myndast í brisinu og heldur
blóðsykrinum í skefjum, virðist
vera mest í upphafi dags. Maturinn
nýtist okkur því best á þeim tíma.“
Ísraelski vísindamaðurinn dr.
Daniela Jakubowicz Wolfson
við Heilsustofnun Tel Avív, hefur
rannsakað þetta frekar. Hún skipti
konum með offitu upp í tvo hópa.
Hvor hópur fyrir sig neytti 1.400
hitaeininga á dag. Annar helming-
urinn neytti 700 kaloría að morgni,
500 í hádeginu og 200 á kvöldin.
Hinn sneri dæminu við. Eftir 12
vikur höfðu konurnar í báðum hóp-
unum grennst en þær sem borðuðu
stærstu máltíðina að morgni um
tvisvar sinnum meira.
Amerísku hjartaverndarsam-
tökin hafa bent í sömu átt en í upp-
hafi árs gáfu þau út yfirlýsingu þess
efnis að með því að tímasetja mál-
tíðir betur megi mögulega draga úr
hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Þar er mælt gegn því að fólk sleppi
því að borða morgunmat, líkt og
20-30 prósent Bandaríkjamanna
gera, enda hefur það verið tengt
aukinni hættu á insúlínónæmi og
sykursýki. Samtökin hafa einnig
bent á að stöku föstur geti dregið
úr offitu, í það minnsta til skamms
tíma.
Áhrif líkamsklukkunnar
Dr. Satchidananda Panda, prófessor
við Salk stofnunina í San Diego og
einn fremsti vísindamaður heims
í rannsóknum á áhrifum líkams-
klukkunnar á heilsu, hefur komist
að sömu niðurstöðu, en hann
heldur fyrirlestur á heilsuráðstefn-
unni Who Wants to Live Foerever,
sem verður haldin í Hörpu föstu-
daginn 8. september næstkomandi.
„Ef þú gæfir heilbrigðum ein-
staklingi stóran skammt af glúkósa
í upphafi dags myndi blóðsykurinn
haldast hár í einn til tvo tíma þar til
hann næði jafnvægi á ný. Ef þú gæfir
sama einstaklingi sama magn seint
að kvöldi, þegar insúlínvirknin er
í lágmarki, myndi blóðsykurinn
haldast hærri mun lengur, eða í
allt að þrjá tíma.“ Þetta hefur verið
kallað kvöldsykursýki, en þeir sem
eru haldnir sykursýki mynda of lítið
insúlín og geta þar af leiðandi ekki
haldið blóðsykrinum eðlilegum
sem aftur hefur verið tengt við
fjölda annarra lífsstílssjúkdóma.
Dr. Panda hefur líka bent á að
gott sé að gefa líkamanum lengri
hvíld frá áti. Hann bað sjálfboðaliða
að mynda allt sem þeir borðuðu
og drukku yfir daginn og komst
að því flestir borðuðu yfir 15
tíma tímabil og tóku sér aðallega
hvíld á nóttunni. Hann hafði áður
komist að því í músatilraunum að
með því að gefa dýrum óheftan
aðgang að ís, osti og flögum allan
sólarhringinn þróuðu þær með sér
insúlínónæmi og offitu á tíu vikum.
Þær sem fengu sama kost yfir átta
tíma tímabil og föstuðu það sem
eftir lifði sólarhringsins urðu hins
vegar ekki feitar og hafa ýmsar fleiri
dýrarannsóknir í gegnum árin bent
í sömu átt.
Að mati Kahleova bendir margt
til að fólk ætti að hafa það í huga
að stækka morgunverðinn og
minnka kvöldmáltíðina. Að það
ætti að fylgja gamla máltækinu að
borða morgunmat eins og kóngur,
hádegismat eins og prins og kvöld-
mat eins og sveitarómagi. „Þessu
kann þó að vera erfitt að snúa við
enda flestir stilltir inn á að setjast
að snæðingi á kvöldin. Það á sér
einfaldlega djúpar menningarlegar
rætur.“ Hún segir þó ekki úr vegi að
reyna að hafa þetta í huga eins oft
og kostur er.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Mýs sem fá óheftan
aðgang að ís, osti og
flögum allan sólarhring
inn þróa með
sér insúlín
ónæmi og
sykursýki á
tíu vikum.
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 14-28
ÆFINGARFATNAÐUR
Sjáðu úrvalið í netverslun www.curvy.is
eða komdu í verslun okkar að Fákafeni 9
Opið alla virka daga frá kl. 11-18 og
Laugardaga frá kl. 11-16
Virkni insúlíns virðist vera meiri í upphafi dags en seint á kvöldin.
Flestir eru stilltir inn á að setjast niður að snæðingi á kvöldin og á það sér djúpar menningarlegar rætur. Ýmislegt
bendir til þess að það sé þó ekki endilega líkamanum fyrir bestu.
Stærsta máltíðin að morgni
Margir kannast við að skófla í sig skál af morgunkorni og kaffi í flýtinum á morgnana en borða svo
vel í hádeginu og jafnvel mest á kvöldin. Æ fleiri rannsóknir benda til þess að betra væri að snúa
dæminu við. Eins virðist gott að gefa líkamanum frí frá áti með föstu inni á milli.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . S e p t e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-4
D
8
C
1
D
A
3
-4
C
5
0
1
D
A
3
-4
B
1
4
1
D
A
3
-4
9
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K