Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 43

Fréttablaðið - 01.09.2017, Side 43
Auðveldara að láta fólki líða illa Atriði úr myndinni Gæs, eftir Unni Jónsdóttur. ég veit ekki hvað. Allt óskaplega list- rænar og vel gerðar myndir en alveg drepleiðinlegar þannig að maður var alveg kominn á barm örvænt- ingarinnar. Þá hvíslaði ég að félaga mínum, Ársæli Níelssyni sem stend- ur með mér að hátíðinni, hvort það væri ekki hægt að gera kvikmynda- hátíð sem væri skemmtileg. Hátíð þar sem væri verið að skemmta áhorfendum og að það væri gaman og léttleikinn fengi svona að vera í fyrirrúmi. Úr því varð að við skellt- um þessari hátíð á koppinn.“ Dagskrá hátíðarinnar er skemmti- legt sambland ólíkra mynda og jafn- vel frá ólíkum tímabilum en Eyþór segir að fyrst og fremst sé áherslan á stuttmyndir enn sem komið er. „Lík- ast til er það af þeirri einföldu ástæðu að það er ekki eins mikið framleitt af gamanmyndum í fullri og lengd og margir hefðu kosið. En það er líka skemmtilegt með stuttmyndirnar að það hafa ekkert margir séð þær og svo er mesta gróskan í gaman- myndum á meðal ungs fólks sem er að taka sín fyrstu skref í kvikmynda- gerðinni. Það virðast allir byrja á því að gera litlar gamanmyndir en þróast svo yfir í allar áttir þaðan.“ Eyþór segir að í ár sé á hátíðinni mikið af myndum sem gerðar hafi verið í skóla. „Þetta eru bæði myndir eftir nýliða í kvikmynda- gerðinni en svo eins líka myndir eftir reyndari kvikmyndagerðarmenn. Erum til að mynda með tvær gaman- myndir eftir Grím Hákonarson sem hann gerði í skóla og í dag er hann einn okkar þekktasti kvikmynda- leikstjóri. Þannig að hátíð sem þessi gefur færi á aðeins öðrum vinkli.“ Eyþór bendir á að í þessum verkum sé oft frábær húmorhráleiki sem helst er að finna hjá unga fólkinu. „Fyrir vikið er þetta mjög skemmtileg og spennandi hátíð á marga vegu.“ Á hátíðinni er svo hafður sá háttur á að einn kvikmyndagerðarmaður er heiðraður fyrir sitt framlag til gam- anmynda. „Já, í fyrra vorum við með Ágúst Guðmundsson og Með allt á hreinu, en í ár er það Þráinn Bertels- son og Nýtt líf. Það er svona liður í að lyfta þessu á hærri hest og þakka þeim sem nenna að standa í þessu allt sitt líf fyrir okkur sem kunnum að meta góðar gamanmyndir og það eru nú ekki fáir. Því miður virðist eima eftir af því að það þyki ekki eins fínt að gera gamanmyndir og drama- mynd sem er í sjálfu sér merkilegt því það er miklu erfiðara að gera góða gamanmynd en dramatíska. Það er miklu auðveldara að fá fólk til þess að líða illa en að fá það til að hlæja. Þannig að fyrir mér er gamanmyndin æðra form.“ Eyþór segir að það stefni aftur í alveg ljómandi góða mætingu og að sýningar fari fram í gömlum bræðslu- tanki sem stendur í þorpsjaðrinum. „Ætli þetta sé ekki eina kringlótta bíóið í heiminum. Þar eru allar bíó- sýningar meira og minna en svo eru skemmtanir á Vagninum, þeim frá- bæra stað.“ magnus@frettabladid.is ↣ m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 35F Ö S T U D A g U R 1 . S e p T e m B e R 2 0 1 7 0 1 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 3 -4 3 A C 1 D A 3 -4 2 7 0 1 D A 3 -4 1 3 4 1 D A 3 -3 F F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.