Fréttablaðið - 01.09.2017, Síða 43
Auðveldara að láta
fólki líða illa
Atriði úr myndinni Gæs, eftir Unni Jónsdóttur.
ég veit ekki hvað. Allt óskaplega list-
rænar og vel gerðar myndir en alveg
drepleiðinlegar þannig að maður
var alveg kominn á barm örvænt-
ingarinnar. Þá hvíslaði ég að félaga
mínum, Ársæli Níelssyni sem stend-
ur með mér að hátíðinni, hvort það
væri ekki hægt að gera kvikmynda-
hátíð sem væri skemmtileg. Hátíð
þar sem væri verið að skemmta
áhorfendum og að það væri gaman
og léttleikinn fengi svona að vera í
fyrirrúmi. Úr því varð að við skellt-
um þessari hátíð á koppinn.“
Dagskrá hátíðarinnar er skemmti-
legt sambland ólíkra mynda og jafn-
vel frá ólíkum tímabilum en Eyþór
segir að fyrst og fremst sé áherslan á
stuttmyndir enn sem komið er. „Lík-
ast til er það af þeirri einföldu ástæðu
að það er ekki eins mikið framleitt af
gamanmyndum í fullri og lengd og
margir hefðu kosið. En það er líka
skemmtilegt með stuttmyndirnar
að það hafa ekkert margir séð þær
og svo er mesta gróskan í gaman-
myndum á meðal ungs fólks sem er
að taka sín fyrstu skref í kvikmynda-
gerðinni. Það virðast allir byrja á því
að gera litlar gamanmyndir en þróast
svo yfir í allar áttir þaðan.“
Eyþór segir að í ár sé á hátíðinni
mikið af myndum sem gerðar hafi
verið í skóla. „Þetta eru bæði
myndir eftir nýliða í kvikmynda-
gerðinni en svo eins líka myndir eftir
reyndari kvikmyndagerðarmenn.
Erum til að mynda með tvær gaman-
myndir eftir Grím Hákonarson sem
hann gerði í skóla og í dag er hann
einn okkar þekktasti kvikmynda-
leikstjóri. Þannig að hátíð sem þessi
gefur færi á aðeins öðrum vinkli.“
Eyþór bendir á að í þessum verkum
sé oft frábær húmorhráleiki sem
helst er að finna hjá unga fólkinu.
„Fyrir vikið er þetta mjög skemmtileg
og spennandi hátíð á marga vegu.“
Á hátíðinni er svo hafður sá háttur
á að einn kvikmyndagerðarmaður er
heiðraður fyrir sitt framlag til gam-
anmynda. „Já, í fyrra vorum við með
Ágúst Guðmundsson og Með allt á
hreinu, en í ár er það Þráinn Bertels-
son og Nýtt líf. Það er svona liður í
að lyfta þessu á hærri hest og þakka
þeim sem nenna að standa í þessu
allt sitt líf fyrir okkur sem kunnum
að meta góðar gamanmyndir og það
eru nú ekki fáir. Því miður virðist
eima eftir af því að það þyki ekki eins
fínt að gera gamanmyndir og drama-
mynd sem er í sjálfu sér merkilegt því
það er miklu erfiðara að gera góða
gamanmynd en dramatíska. Það er
miklu auðveldara að fá fólk til þess
að líða illa en að fá það til að hlæja.
Þannig að fyrir mér er gamanmyndin
æðra form.“
Eyþór segir að það stefni aftur í
alveg ljómandi góða mætingu og að
sýningar fari fram í gömlum bræðslu-
tanki sem stendur í þorpsjaðrinum.
„Ætli þetta sé ekki eina kringlótta
bíóið í heiminum. Þar eru allar bíó-
sýningar meira og minna en svo eru
skemmtanir á Vagninum, þeim frá-
bæra stað.“ magnus@frettabladid.is
↣
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 35F Ö S T U D A g U R 1 . S e p T e m B e R 2 0 1 7
0
1
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
3
-4
3
A
C
1
D
A
3
-4
2
7
0
1
D
A
3
-4
1
3
4
1
D
A
3
-3
F
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K