Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 6
Kjaramál Mikið ber í milli í launa-
deilu Flugvirkjafélags Íslands og
Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd
Icelandair. Deilan hefur verið send
til ríkissáttasemjara og fundað hefur
verið í deilunni þar.
Óskar Einarsson, formaður Flug-
virkjafélags Íslands, segir fyrsta
fund hjá ríkissáttasemjara ekki hafa
breytt miklu. Þar hafi aðilar helst
verið að kynna sín sjónarmið og fara
yfir málið í rólegheitum. Hann segir
hugmyndir flugvirkja og Samtaka
atvinnulífsins um launahækkanir
vera mjög mismunandi.
„Við erum með ákveðnar kröfur og
kynntum þær. SA eru hörð á því að
bjóða okkur launahækkanir sem
miða við SALEK-samkomulagið
sem er löngu dautt. Við munum ekki
sætta okkur við það,“ segir Óskar en
það sé nú stutt liðið á þessa samn-
ingagerð og því gæti nú allt gerst enn
þá. „Þetta var nú bara fyrsti fundur
og við skulum sjá hvað setur. Við
erum allavega ekki farnir að
hugsa það að leggja niður
störf strax.“
Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmda-
stjóri SA, segir línu sam-
takanna alveg skýra. Á
fundi samtaka atvinnulífs-
ins á Akureyri í fyrradag
talaði hann um að krafa
væri uppi í þjóðfélaginu
um ósjálfbærar launa-
hækkanir í landinu.
„Stundum er mikið
svigrúm fyrir launa-
hækkanir, stundum
er lítið svigrúm
fyrir launahækk-
anir. Það er alveg
ljóst að það er ekkert svigrúm fyrir
launahækkanir eins og staðan er í
dag,“ segir Halldór Benjamín á
fundinum. „Við verðum að
verja þá kaupmáttaraukn-
ingu sem launafólk hefur
fengið á síðustu árum,
sem er á milli 20 og 30
prósent.“
Einnig sagði Halldór
Benjamín að útflutnings-
fyrirtækin yrðu að vera
leiðandi í verðmæta-
sköpun og því hversu
m i k i ð svi g r ú m
væri til launa-
h æ k k a n a .
O p i n b e r i r
starfsmenn
og kjararáð
gætu ekki
með nokkru móti verið leiðandi í
launahækkunum í þessu landi.
„Það var lítið sem gerðist á þessum
fundi og ég mun boða aðila til fund-
ar aftur innan tveggja vikna nema
eitthvað sérstakt gerist í millitíð-
inni,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir
ríkissáttasemjari.
sveinn@frettabladid.is
Hækkun í anda Salek
ekki nóg fyrir flugvirkja
Deilur flugvirkja Icelandair við Samtök atvinnulífsins gefa tóninn í kjaravið-
ræðum sem fram undan eru í vetur. Forsvarsmenn SA telja ekkert svigrúm til
launahækkana en flugvirkjar sætta sig ekki við litla hækkun í anda SALEK.
Á flótta
Flóttamannabúðir Rohingja í Bangladess eru hættulegar heilsu flóttamannanna. Þetta fullyrtu mannúðarsamtökin Læknar án landamæra í gær. Bentu
þau á að úrgangur frá fólki og skítugt vatn flæddi inn í hrörlega kofa búðanna. Nærri 430.000 Rohingjar hafa flúið til Bangladess á undanförnum vikum
eftir að átök brutust út í Rakhine-héraði Mjanmar. Sameinuðu þjóðirnar segja yfirvöld í Mjanmar standa að þjóðernishreinsunum. Nordicphotos/AFp
Flugvirkjar icelandair vilja ríkulegri launahækkanir en örfá prósent. stefnir því
í hart á milli deiluaðila í samningaviðræðum í vetur. FréttAblAðið/Vilhelm
halldór
benjamín
Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri sA
Það var lítið sem
gerðist á þessum
fundi og ég mun boða aðila
til fundar aftur innan tveggja
vikna.
Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissátta-
semjari
StjórnSýSla Endurmenntun innan
stjórnarráðsins er til skoðunar hjá
Ríkisendurskoðun. Litlar upp-
lýsingar liggja fyrir um kostnað,
umfang og ávinning endurmennt-
unar starfsmanna ráðuneytanna
og mjög skortir á heildaryfirsýn
og skipulagt utanumhald hennar,
samkvæmt forkönnun Ríkisendur-
skoðunar sem vinnur nú stjórn-
sýsluúttekt á þessu sviði. Markmið
úttektarinnar er að leiða í ljós áhrif
endurmenntunar og hvort staðið
sé að henni með hagkvæmum og
árangursríkum hætti. Niðurstaða
úttektarinnar verður kynnt með
skýrslu til Alþingis síðar í haust. – aá
Úttekt á
endurmenntun
í ráðuneytum
SKútuStaðahreppur Viðræður
Skútustaðahrepps við ríkisstjórn-
ina um fjárhagsaðstoð vegna alvar-
legs vanda í fráveitumálum er í
uppnámi vegna stjórnarslitanna.
Hreppurinn og fyrirtæki í ferða-
þjónustu við Mývatn biðja nú um
gálgafrest áður en til afturköllunar
starfsleyfa kemur, sem vofað hefur
yfir ferðaþjónustufyrirtækjum á
svæðinu, Frestur sem heilbrigðis-
nefnd svæðisins veitti hreppnum
og fyrirtækjum til að skila fjármagn-
aðri úrbótaáætlun og Fréttablaðið
hefur greint frá, rann út fyrir viku.
Ákvörðun heilbrigðisnefndarinnar
um hvort frestur verður veittur
verður tekin snemma í október,
segir Alfred Schiöth, framkvæmda-
stjóri heilbrigðiseftirlits svæðisins.
Áætlaður heildarkostnaður við
úrbætur er um eða yfir hálfur millj-
arður króna og leitað hefur verið til
ríkisins eftir fjárhagsaðstoð. Björt
Ólafsdóttir umhverfisráðherra hefur
lagt þá línu að fyrirtækin á svæðinu
þurfi sjálf að leggja eitthvað af mörk-
um, en sýna þurfi skilning á því að
vandinn sé stór og sveitarfélagið
lítið. Enn liggur þó ekkert fyrir um
aðkomu ríkisins.
„Viðræður voru komnar í fínan
farveg. Við áttum bókaðan fund
síðastliðinn mánudag með bæði
fjármála- og umhverfisráðherra.
Hann var blásinn af vegna stjórn-
málaástandsins,“ segir Þorsteinn
Gunnarsson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps. „Nú fer allt í bið og
við þurfum væntanlega að byrja frá
grunni þegar ný ríkisstjórn hefur
verið mynduð eftir kosningar.“ – aá
Ríkisaðstoð í uppnámi
vegna stjórnarslitanna
Fráveitumál við mývatn hafa lengi verið í ólestri. FréttAblAðið/Vilhelm
Nú fer allt í bið og
við þurfum væntan-
lega að byrja frá grunni þegar
ný ríkisstjórn hefur verið
mynduð eftir kosningar.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri
Skútustaðahrepps
sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.
FréttAblAðið/GVA
2 3 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-9
7
1
0
1
D
D
2
-9
5
D
4
1
D
D
2
-9
4
9
8
1
D
D
2
-9
3
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K