Fréttablaðið - 23.09.2017, Side 8
Dómsmál Á síðustu árum hefur
fjölgað málum þar sem ákært er
og sakfellt fyrir nauðgun þar sem
kynmök eru fengin með annars
konar nauðung en ofbeldi. Þetta
kom fram í máli Ragnheiðar Braga-
dóttur, prófessors í lögfræði við
Háskóla Íslands, á hádegisfundi
Rannsóknarstofnunar í kynja-
fræðum á fimmtudag um þróun
nauðgunarákvæðis almennra
hegningarlaga.
Undir annars konar ólögmæta
nauðung geta fallið alls konar tilvik
þar sem aldurs- eða aðstöðumunur
getur valdið því að þolandi getur
ekki spornað við kynmökum. „Ef
við tökum til dæmis árabilið 2012
til 2014, þá eru sjö hæstaréttar-
dómar sem má skilgreina með
þessum hætti. Þolendur í þeim
öllum eru börn á aldrinum 11-18
ára,“ sagði Ragnheiður.
Í flestum tilfellum voru aðstæður
þannig að ákærði notfærði sér yfir-
burðastöðu sína vegna aldurs og
þroskamunar. Hann fer til dæmis
á afvikinn stað með barnið eða er
á stað sem veldur barninu ótta eða
bjargarleysi. „Til dæmis í partíi þar
sem er fullt af fullorðnu fólki undir
áhrifum áfengis eða vímuefna eða
er í aðstæðum þar sem er ekki gott
fyrir börn að vera í,“ útskýrði Ragn-
heiður.
Hún benti á að þegar kynferðis-
brotakafli almennra hegningarlaga
var endurskoðaður árið 2007 hefði
hugtakið nauðgun verið rýmkað
mjög mikið frá því sem áður var.
Undir ákvæðið fellur nú ofbeldi,
hótanir um ofbeldi og svo annars
konar ólögmæt nauðung. Engar
kröfur séu gerðar um hótanirnar.
Þær þurfi einfaldlega að hafa þau
áhrif að þolandi lætur undan. „Við
getum hugsað okkur hótanir um
að birta nektar- eða kynlífsmyndir
á netinu. Þær geta verið hótanir í
skilningi nauðgunarákvæðisins og
verið þá nauðgun eða tilraun til
nauðgunar. Eftir því hversu langt
verknaðurinn er kominn,“ útskýrir
Ragnheiður.
Á þennan skilning hafi reynt
í nýlegum dómi Hæstaréttar frá
15. desember 2016. Þar dæmdi
Hæstiréttur karlmann í tveggja
ára fangelsi fyrir tilraun til nauðg-
unar. „Brot hans fólst í því að hóta
að dreifa opinberlega samskiptum
hans við 15 ára dreng á netinu og
mynd sem drengurinn hafði sent
honum á netinu ef drengurinn
hefði ekki kynmök við hann fyrir
klukkan ellefu þá um kvöldið,“
segir Ragnheiður. Hæstiréttur
klofnaði í afstöðu sinni til máls-
ins. Meirihluti dómsins ákvað að
sakfella, en tveir dómarar skiluðu
sératkvæði. Þeir töldu að ekki
hefði verið um að ræða tilraun til
nauðgunar af því að hótunin hafði
verið gerð á netinu. Brotamaður og
brotaþoli höfðu ekki verið í sama
húsi. jonhakon@frettabladid.is
Notfærði sér
samfélagsmiðla
til að reyna að
nauðga dreng
Málum hefur fjölgað þar sem nauðgun er reynd með
annars konar nauðung en ofbeldi. Flestar tilraunir
þannig að gerendur nýta sér yfirburðastöðu vegna
aldurs og þroskamunar. Nauðgunarhugtakið var
rýmkað árið 2007 við breytingar á hegningarlögum.
2012 til 2014 féllu sjö dómar í Hæstarétti þar sem gerendur voru fundnir sekir um
að nýta sér aldurs- og aðstöðumun til að ná fram vilja sínum. Fréttablaðið/GVa
LEGSTEINAR
Í MIKLU ÚRVALI
Helluhrauni 2, Hafnarfirði
544 5100 – granitsteinar.is
20% AFSLÁTTUR Í SEPTEMBER
Brot hans fólst í því
að hóta að dreifa
opinberlega samskiptum
hans við 15 ára dreng á
netinu og mynd sem dreng-
urinn hafði sent honum á
netinu.
Ragnheiður Braga-
dóttir, prófessor
við lagadeild
Háskóla Íslands
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 l A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-A
A
D
0
1
D
D
2
-A
9
9
4
1
D
D
2
-A
8
5
8
1
D
D
2
-A
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K