Fréttablaðið - 23.09.2017, Síða 18
„Mér finnst alveg frábært að fylgjast með Andra
Rúnari. Þetta er frábært, algjört öskubuskuævin-
týri,“ segir Þórður Guðjónsson, fyrrverandi at-
vinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, sem skoraði
19 mörk fyrir Íslandsmeistara ÍA árið 1993.
„Það er ótrúlegt að sjá hvað smá viðhorfsbreyt-
ing hjá einum fótboltamanni getur gert þrátt fyrir
að hann sé 26 ára gamall. Þetta er bara geðveikt
og ég vona svo innilega að hann nái þessu,“ segir Þórður, en meinar hann
það?
„Algjörlega. Met eru til að slá þau. Þetta hefur staðið í alltof langan
tíma. Það er klárlega kominn tími á að einhver skori 20 mörk. Fótboltinn
þróast bara svona. Einu sinni voru spilaðir fjórtán leikir og þá átti einhver
metið, svo voru 18 leikir og núna 22. Það er kominn tími á nýtt met,“ segir
Þórður.
Andri Rúnar er aðeins á sinni annarri leiktíð í efstu deild og sagan því
enn ótrúlegri fyrir vikið.
„Þessi drengur er öðrum leikmönnum mikil fyrirmynd. Hann er að sýna
að það er aldrei of seint að taka til hjá sjálfum sér og ætla sér að verða
eitthvað sama hversu menn eru gamlir. Vonandi skilar þetta honum bara
þessu meti og öskubuskuævintýrið verður fullkomnað.“
Góðir straumar
frá 19 marka
klúbbnum
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Grindavíkur í
Pepsi-deild karla, hefur 180 mínútur til að bæta eftir-
sóttasta met íslenska boltans: Flest mörk á einni leik-
tíð. Fréttablaðið ræddi við 19 marka mennina sem
segjast allir samgleðjast framherjanum.
Pétur Pétursson setti fyrstur metið þegar hann
skoraði 19 mörk árið 1978 en hann er sá eini sem
hefur gert það í 17 leikjum. Hann þekkir aðeins til
Andra Rúnars og samgleðst honum.
„Ég var með 2. flokkinn hjá Víkingi í fyrra og
Andri fór ekki í utanlandsferðina með aðalliðinu.
Hann kom því á æfingar hjá mér og það virðist
sem svo að ég hafi kennt honum það mikið að
nú geti hann klárað þetta blessaða met,“ segir Pétur og hlær við.
Hann hefur mikla trú á Vestfirðingnum: „Ég held að hann slái þetta
met miðað við hvernig hann er að spila. Þegar við framherjarnir förum
í gang þá er alveg sama hvar maður stendur þegar maður skýtur á
markið. Boltinn er bara alltaf inni,“ segir Pétur sem er ekkert fúll yfir því
að missa metið.
„Mér finnst alveg vera kominn tími á að þetta met verði slegið. Þetta
er orðið 39 ára gamalt. Það segir nú ýmislegt um hina framherjana.
Maður verður nú aðeins að skjóta á þá,“ segir Pétur hlæjandi og heldur
áfram:
„Ég tel mig hafa lagað Andra Rúnar til eins og með þetta blessaða
pitsuát sem hann er alltaf að tala um. Ég hef aldrei skilið hvernig menn
geta étið pitsur á næturnar. Það er frábært að sjá hvernig hann hefur
tekið sig á.“
„Það er alveg magnað að sjá drenginn eftir að
hann tók til í sínum málum. Það hefur glatt mig
mikið að fylgjast með framgöngu Andra,“ segir
Framarinn Guðmundur Torfason sem skoraði
18 mörk á Íslandsmeistaraári Safamýrarliðsins
árið 1986.
Guðmundur hefur verið mikið tengdur
Víkingi undanfarin ár og gat því fylgst aðeins
betur en margir með Andra Rúnari.
„Ég man að þegar ég jafnaði metið þá fór ég inn í veturinn fyrir tíma-
bilið og æfði sem aldrei fyrr. Hann gerði það sama og er að uppskera.
Með þessu er hann að senda ungum drengjum ákveðin skilaboð. Það
er ýmislegt hægt ef menn setja metnað í hlutina og hafa áhuga,“ segir
Guðmundur sem hrífst af fjölbreytni Andra þegar kemur að marka-
skorun.
„Hann er með frábær skot, frábæra skalla og getur klárað með vinstri
og hægri.“ Eins og hinir í 19 marka klúbbnum sér Guðmundur ekkert
eftir metinu. „Þetta er ekkert erfitt fyrir mig. Þetta met var alltaf að fara
að falla á einhverjum tímapunkti. Við Pétur allavega segjum nú alltaf á
milli okkar að við eigum metið í tíu liða deild,“ segir hann en hvaða ráð
getur hann gefið Andra Rúnari? „Hann verður að slaka á í síðustu leikj-
unum og vera hann sjálfur. Mörkin verða að fá að koma til hans.“
Síðasti maðurinn til að jafna metið var Tryggvi
Guðmundsson meistaraár Eyjamanna árið 1997.
Síðan þá hefur enginn komist nálægt því.
„Mér finnst Andri alveg magnaður drengur.
Þetta er sveitastrákur að vestan sem er að
blómstra seint. Það hefur bara allt fallið með
honum fyrir utan þessar tvær vítaspyrnur sem
hann er búinn að brenna af. Hann ætti að vera
kominn með þetta met nú þegar!“ segir Tryggvi.
Markahrókurinn frá Vestmannaeyjum sér sjálfan sig í Andra Rúnari
og getur tengt við það sem er að gerast hjá honum.
„Þetta minnir svolítið á mína sögu þó að við yrðum reyndar Íslands-
meistarar. Andri er svona utanbæjargaur sem allt í einu datt í gírinn.
Það er rosalega erfitt fyrir okkur framherjana að útskýra hvað er í
gangi þegar svona vel gengur. Stundum er bara allt inni sama hvað
maður gerir,“ segir hann.
Tryggvi sér ekkert að því að missa metið en heldur í 18 leikina eins
og Guðmundur.
„Andri er „bara“ með 18 mörk í 20 leikjum en við skoruðum 19 í
18 leikjum. Við sem eigum metið erum fljótir að finna alls konar af-
sakanir til að gleymast ekki. Það er kominn tími á þetta og ég sé hann
bara ekki klikka á þessu úr því sem komið er. Ég óska Andra bara til
hamingju með metið hér og nú!“
Fótbolti Andri Rúnar Bjarnason,
framherji Grindavíkur í Pepsi-deild
karla í fótbolta, er tveimur mörkum
frá ódauðleika. Framherjinn öflugi
er búinn að skora 18 mörk í Pepsi-
deildinni og hefur tvo leiki til að
jafna metið goðsagnakennda yfir
flest mörk á einu tímabili eða hrein-
lega bæta það.
Metið stendur í 19 mörkum og
hefur gert það frá því 1978 þegar
Skagamaðurinn Pétur Pétursson
skoraði 19 mörk fyrir Íslandsmeistara
ÍA. Framarinn Guðmundur Torfa-
son jafnaði það fyrstur árið 1986 og
Þórður Guðjónsson skoraði svo 19
mörk fyrir ÍA árið 1993. Síðastur til að
skora 19 mörk í efstu deild var marka-
kóngurinn Tryggvi Guðmundsson
sem setti 19 fyrir ÍBV árið 1997.
Þrátt fyrir að fjölgað væri í efstu
deild árið 2008 og nú spilaðir 22
leikir hefur enginn í raun komist
nálægt því að skora 19 mörk.
Þrír markahrókar (Steingrímur
Jóhannesson, ÍBV 1998, Guð-
mundur Steinarsson, Keflavík 2008
og Björgólfur Takefusa, KR 2009)
skoruðu 16 mörk en enginn hefur
sett fleiri en það síðan Tryggvi jafn-
aði metið síðast.
Andri spilaði fyrst í efstu deild
árið 2015 og skoraði þá tvö mörk
í 17 leikjum fyrir Víking. Hann
var svo lánaður í Inkasso-deildina
á síðustu leiktíð en stendur nú á
barmi þess að skáka nokkrum af
mestu goðsögnum íslenska bolt-
ans.
tomas@355.is
„Verður að slaka á“ „Segir margt um hina framherjana“
„Algjört öskubuskuævintýri“ „Óska honum til hamingju“
Helgin
Laugardagur:
11.20 West Ham - Tottenh. Sport
13.50 Grindavík - Þór/KA Sport 2
13.50 HK - Keflavík Sport 3
13.50 Southampt.-Man Utd. Sport
14.10 Alavés - Real Madrid Sport 4
16.00 Laugardagsmörkin Sport
16.20 Leicester - Liverpool Sport
16.25 A. Villa - Nott. For Sport 2
16.25 Dortmund - Gladb. Sport 3
16.30 Tour Championship Golfst.
18.40 Girona - Barcelona Sport
Sunnudagur:
13.45 Stjarnan - Valur Sport 2
13.45 Breiðablik - ÍBV Sport 3
13.50 Víkingur Ó. - FH Sport 4
14.50 Brighton - Newcastle Sport
16.00 Tour Championship Golfst.
17.00 Messan Sport
17.00 Vikings - Buccaneers Sport 2
17.50 Haukar - Stjarnan Sport 3
19.20 Afturelding - Stjarn. Sport 3
20.20 Chargers - Chiefs Sport 2
21.15 Pepsi-mörkin Sport
22.40 Síðustu 20 Sport
Pepsi-deild karla í fótbolta:
S14.00 Víkingur R. - ÍA
S14.00 KA - Grindavík
S14.00 Víkingur Ó. - FH
S14.00 Fjölnir - KR
S14.00 Stjarnan - Valur
S14.00 Breiðablik - ÍBV
Pepsi-deild kvenna í fótbolta:
L14.00 Grindavík - Þór/KA
L14.00 FH - Valur
L14.00 Stjarnan - Breiðablik
L16.00 KR - Haukar
Olís-deild karla í handbolta:
S16.00 Grótta - ÍBV
S19.30 Fjölnir - Valur
S19.30 Víkingur - ÍR
S20.00 Afturelding - Stjarnan
Olís-deild kvenna í handbolta:
L13.30 Fram - Fjölnir
L14.00 Selfoss - ÍBV
S18.00 Valur - Grótta
S18.00 Haukar - Stjarnan
GeTA oRðIð MeISTARAR Í
GRIndAVÍK Í dAG
Þórs/KA-stelpur geta tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í dag vinni
þær heimastúlkur í Grindavík í
næstsíðustu umferð Pepsi-deildar
kvenna. Þór/KA hefur fimm stiga
forskot á Breiðablik þegar aðeins
sex stig eru eftir af pottinum.
Önnur úrslit gætu einnig dugað
Þór/KA takist Blikum ekki að
vinna Stjörnuna á sama tíma.
Þór/KA hefur einu sinni áður
orðið Íslandsmeistari í kvenna-
flokki en það var fyrir fimm árum,
sumarið 2012. Þór/KA tryggði
sér þá titilinn þá með 9-0 sigri á
Selfossi á heimavelli í næstsíðustu
umferðinni. Sandra María Jessen,
fyrirliði Þórs/KA í dag, skoraði
þrjú mörk í þessum leik fyrir fimm
árum, þá aðeins 17 ára gömul.
Ágústa Kristinsdótt-
ir, Lára
einars-
dóttir og
Lillý Rut
Hlynsdóttir
voru
einnig í
Þór/KA-
liðinu
sem
vann
titilinn
í fyrsta sinn
fyrir fimm
árum.
Pepsi-deild kvenna
ÍBV - Fylkir 0-0
Fylkir var fallinn fyrir leikinn og ÍBV er eftir
sem áður í fjórða sæti deildarinnar.
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 l A U G A r D A G U r18 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sPort
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-7
9
7
0
1
D
D
2
-7
8
3
4
1
D
D
2
-7
6
F
8
1
D
D
2
-7
5
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K