Fréttablaðið - 23.09.2017, Qupperneq 22
Við viljum vek ja athyg li á þarfri umræðu um geð-heilbrigði og vellíðan barna og unglinga og ætlum að bjóða upp
á vandaða dagskrá,“ segir Tinna
Bessadóttir, einn aðstandenda álfa-
hátíðar sem verður haldin í Hellis-
gerði í Hafnarfirði í dag, laugardag.
Aðgangur er ókeypis en fjáröflunin
fer fram með sölu veitinga og varn-
ings sem verður í boði og rennur
ágóðinn til Hugarafls.
„Við sem stöndum að hátíðinni
höfum fylgst grannt með umræðu
um geðheilbrigðismál í samfélaginu
undanfarið og viljum leggja okkar af
mörkum til þess að vekja athygli á
þeim þáttum sem stuðla að vellíðan
barna og unglinga. Við bjóðum upp
á góða og uppbyggjandi samveru-
stund í Hellisgerði,“ segir Tinna og
telur upp þá skemmtikrafta og ein-
staklinga sem hafa lagt hátíðinni
lið. „Benedikt búálfur mætir, Húlla-
dúlla kennir börnum skemmti-
legar sirkuslistir, trúðurinn Singó og
Solla stirða og Siggi sæti úr Latabæ.
Hljómsveitin Ylja spilar notalega
tónlist fyrir gesti,“ segir Tinna sem
segir gesti ekki heldur verða svikna
af haustlitunum í Hellisgerði þó að
mögulega verði þeir að klæða sig vel
eftir veðri.
„Við verðum með sögustund
og lesum Gunnhildi og Glóa fyrir
börnin, í framhaldinu leitum við
að geislasteinum og hver veit nema
einhver börn fái smáverðlaun,“ segir
hún.
„Þá verður tásunudd í boði fyrir
börn sem þreytast og á staðnum
verður líka heilari.“
Meðlimir í Hugarafli koma á
hátíðina og kynna þeim sem vilja
starfsemina. „Við erum fyrst og
fremst að bjóða upp á samkomu
þar sem minnt er á mikilvægi þess
að huga að geðheilsunni. En líka
viljum við aðstoða þá sem vilja taka
fyrsta skrefið og þiggja liðsinni frá
samtökunum með því að leiða fólk
saman,“ segir Tinna.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Álfahátíð haldin í Hellisgerði
Þeir sem vilja sameina það tvennt að njóta gæðastundar með börnum sínum og styrkja gott málefni geta komið
við í Hellisgerði í Hafnarfirði í dag þar sem verður margt um að vera í þágu geðheilbrigðis barna og unglinga.
Tinna Bessadóttir og Alexandra Andrésdóttir eru á meðal þeirra sem standa fyrir hátíðinni í Hellisgerði. FréTTABlAðið/Eyþór
Danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir er komin til Barcelona þar sem hún
heldur sína stærstu flugelda-
sýningu til þessa á listahátíðinni
La Mercé í Barcelona. Sigríður
Soffía hefur í þrjú ár hannað flug-
eldasýningar á Menningarnótt og
því reynslunni ríkari en nú verða
fleiri áhorfendur því um tvær
milljónir þátttakenda taka þátt í
hátíðinni. Á La Mercé-hátíðinni
er valin borg í forgrunni ár hvert.
Í ár varð Reykjavík fyrir valinu. „Mér
finnst mikill heiður að fá að taka þátt
í hátíðinni. Ég fékk tækifæri til þess
að vinna með töluvert stærri flug-
elda en hér heima og í ótal fleiri lit-
brigðum og gerðum. Ég hef til dæmis
verið að vinna með flugelda sem er
skotið á vatn. Köku sem raðskýtur
eins og litlum skeljum á vatnsflöt-
inn. Í sýningunum er ég að hugsa um
hrynjandina, ég spila ekki tónlist
undir. Flugeldarnir eru í aðalhlut-
verki. Litir, form og taktur,“ segir
Sigríður Soffía sem hefur staðið í
ströngu í sumar að lesa viðamikla
katalóga um flugelda frá Spáni.
Stjórnmálaástandið í borg-
inni er róstusamt og standa yfir
mótmæli víða. „Ég hef verið að
fylgjast með fréttum og vona
að mótmælin verði friðsamleg
allra vegna,“ segir Sigríður Soffía
sem sagði frá reynslu sinni í Frétta-
blaðinu á síðasta ári þar sem hún
var stödd í París 13. nóvember 2015
ásamt eiginmanni sínum og ungri
dóttur, fjögur hundruð metra frá
Bataklan-tónleikahöllinni þar sem
hryðjuverk voru framin.
Sprengir flugelda fyrir milljónir manna
Sigríður Soffía hefur stúderað flug-
elda í allt sumar.
Sigríður
Soffía er
reynslunni
ríkari eftir að
hafa skemmt
landanum
með flug-
eldasýningu
á Menningar-
nótt þrjú
liðin ár.
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
2
-A
0
F
0
1
D
D
2
-9
F
B
4
1
D
D
2
-9
E
7
8
1
D
D
2
-9
D
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K