Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 33
Margrét Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Ég hef mest dálæti á Stephen
King þegar hann lýsir
fólki sem á undir högg
að sækja. Hann hefur
einstakan hæfileika til
þess að lýsa persónum
út frá gjörðum frekar en
útliti eða fasi. Ég myndi
vilja sitja í kennslustund
hjá honum og læra af
honum.
Fyrsta bókin trúi ég að
hafi verið Carrie, eftir að
hafa horft á kvikmynd-
ina. Hann hefur skrifað af
færni um sterkar konur
og hann talar um kyn-
ferðis- og heimilisofbeldi.
Hæfileikar Stephens King
eru miklir og það er
merkilegt hversu ótrú-
lega mikið hann hefur
skrifað. Ég trúi því að
hann sé haldinn athyglis-
sýki manns sem er yfir-
gefinn af föður sínum.
Hann er alinn upp af ein-
stæðri móður sem gerir
hann líka skilningsríkan
og næman. Hann hefur
mikla tilfinningagreind.
Þórarinn Þórarinsson
blaðamaður
Ég kynntist Stephen King í febrúar
1984 þegar ég hlustaði þrettán ára
og drulluhræddur á útvarpsleik-
ritið „Stundum koma þeir aftur“. Karl
Ágúst Úlfsson vann leikgerðina upp
úr smásögunni „Sometimes they
come back“ og ég ætla að misnota
aðstöðu mína hérna og skora á RÚV
eða Karl Ágúst að grafa þetta upp og
endurflytja!
King er frábær rithöfundur, fer-
lega flinkur við persónusköpun og
skrifar magnaðan stíl. Ég hef marg-
lesið margar bóka hans en enga jafn
oft og vampírusöguna Salem’s Lot.
Alveg meiriháttar virðingarvottur við
„Dracula“.
Svo er King svo mikill vinur okkar,
lesendanna, þykir vænt um okkur
og ávarpar okkur ítrekað í formálum
sem „Dear Constant Reader“.
Það eru Tækifærisdagar hjá okkur. Líttu inn og gerðu góð kaup.
Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Þvottavél, iQ300
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með
10 ára ábyrgð.
Fullt verð: 119.900 kr.
Tækifærisverð: WM 14N18SDN
94.900 kr.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
10 ára
ábyrgð
á
iQdrive
mótorn
um.
Þurrkari, iQ300
Gufuþétting, enginn barki. Hraðkerfi
40 mín. Krumpuvörn við lok kerfis.
Fullt verð: 119.900 kr.
Tækifærisverð: WT 45H2K7DN
94.900 kr.
Tekur mest
7
Orkuflokkur
Veggofnar, iQ500
Hagkvæmir með 67 lítra ofnrými.
Fimm hitunaraðgerðir. Stafrænn skjár,
rafeindaklukka. Sjálfhreinsiplata á
bakhlið.
Fullt verð: 89.900 kr.
Tækifærisverð (hvítur):
Tækifærisverð (stál):
HB 23AB221S
HB 23AB521S
69.900 kr.
Orkuflokkur
T kifæri
Ryksuga
Orkuflokkur B. Útblástur A. Parkett
og flísar, flokkur D. Teppi, flokkur E.
Útblástur A.
Fullt verð: 19.900 kr.
Tækifærisverð: VS 06B120
14.900 kr.
Jolly
Hangandi ljós
Fullt verð: 8.900 kr.
Tækifærisverð: 65536-xx
6.900 kr.
Örbylgjuofn, Serie 2
Hvítur. Frístandandi. 17 lítra.
Mesti örbylgjustyrkur 800 W.
Fullt verð: 19.900 kr.
Tækifærisverð: HMT 75M421
14.900 kr.
Samlokugrill
700 W. Fyrir tvær samlokur.
Viðloðunarfrítt yfirborð.
Fullt verð: 6.900 kr.
Tækifærisverð: ST 710
4.900 kr.
ROMMELSBACHER
Fáanlegt í hvítu og svörtu.
Breidd: 36 sm.
Guðfinna Gunnarsdóttir kennari
Hann fær mann sem lesanda til að
detta inn í sinn söguheim, hversu
furðulegur sem hann er. Hann er
gríðarlega flinkur að búa til and-
rúmsloft og umhverfi sem er svo
lýsandi að þegar ég loka augunum
þá er ég komin á staðinn. Ætli það
sé ekki einmitt þess vegna sem
efnið hans er notað svona mikið í
kvikmyndir og sjónvarp.
Svo finnst mér svo áhugavert að
lesa smásögur eftir hann sem
sumar eru af allt öðru tagi en þær
bækur sem hann er þekktastur fyrir.
Ég kenni ensku og hef notað stuttar
sögur eftir hann í kennslu, eins og til
dæmis nóvellurnar Rita Hayworth
and the Shawshank Redemption
og The Body (úr smásagnasafninu
Different Seasons).
Uppáhaldsbækurnar eru klárlega
Græna mílan, skáldsagan sem hann
gaf út í 6 bóka seríu. Ég man eftir
að hafa hangið á hurðarhúninum
á bókasafninu og beðið eftir að
næsta bók kæmi úr pöntun að utan
á safnið. Svo er það bók sem heitir
On writing: a memoir of the craft,
en í þeirri bók er hann að ræða um
hvernig hann skrifar, hvaðan hann
fær innblástur og hugmyndir á
mjög skemmtilegan hátt.
Margrét Gústavsdóttir,
blaðamaður og ritstjóri Birtu
Síðasta bókin sem ég las eftir hann
var Mr. Mercedes en uppáhalds-
bókin mín eftir hann heitir On
Writing. Sú er kennslubók í skáld-
sagnarlistinni og um leið óformleg
sjálfsævisaga
hans.
Ég var tólf
ára þegar ég
byrjaði að
lesa bækur
eftir King.
Það byrjaði
allt með
því að ég
laumaðist
til að horfa
á Carrie,
s e m v a r
bönnuð börnum, í sjónvarpinu.
Myndin fannst mér stórkostleg og
eftir þessa upplifun skrifaði ég bréf í
Velvakanda þar sem ég kvartaði yfir
því að hún væri bönnuð. Eftir þetta
hef ég verið mikill aðdáandi Kings.
Þeir sem skrifa grín og hryll-
ing eru oft ekki metnir að verð-
leikum, bókmenntagagnrýnendur
taka sig kannski of hátíðlega til
að vilja fjalla um grín og hrylling?
Stephen King var lengi virkur alkó-
hólisti og kókaínfíkill en þegar hann
hætti að drekka og neyta fíkniefna
þá breyttust áherslurnar. Hann
skrifaði t.d. Shawshank Redempt-
ion og Green Mile og ímyndin fór
smátt og smátt að breytast. Hryll-
ingurinn fór út og mennskan kom
inn í staðinn. Hann sýndi á sér fleiri
hliðar sem rithöfundur sem er gott
af því að hann er svo stórkostlega
fær. Meira að segja á Twitter, þar
sem hann dundar sér helst við að
höggva í Trump með góðum árangri.
Forsetinn móðgaðist svo mikið við
eitt tístið að hann er búinn að blok-
kera kónginn.
Nýi þríleikurinn, sem hófst á „Mr.
Mercedes“, er alger yndislestur sem
óhætt er að mæla með og síðan
ættu allir sem vilja kynnast mann-
inum og list hans betur að lesa „On
Writing: A Memoir of the Craft“.
Helst að ná í hana á hljóðbók þar
sem hann les sjálfur. Það er eins
og að hafa hann andspænis sér við
eldhúsborðið í notalegu spjalli.
King er góður maður sem skrifar
af stakri list um skuggahliðar
mannssálarinnar og annan viðbjóð.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33L A U G A R D A G U R 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 7
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-B
9
A
0
1
D
D
2
-B
8
6
4
1
D
D
2
-B
7
2
8
1
D
D
2
-B
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K