Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 34

Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 34
Eygló Ásta er einmitt að byrja í pásu þegar slegið er á þráðinn til hennar í London. Þó hún sé til-tölulega nýkomin þang-að af Edinborgarhátíð- inni, þar sem hún sýndi leikverkið The Nature of Forgetting tuttugu og sex sinnum á einum mánuði með samstarfsfólki sínu í Theatre Re, er hún ekkert að slaka á heldur strax byrjuð í öðru verkefni. „Ég er núna á fullu í æfingum með eigin kompaníi sem heitir Ephemeral Ensemble. Við vorum að fá styrk sem svipar til listamannalauna og erum að æfa verk sem verður sýnt hér í London í lok október.“ Ég ákveð að forvitnast meira um nýja verkefnið síðar í viðtalinu og sný mér fyrst að sýningunni The Nature of Forgetting (Eðli gleymsk- unnar) og stjörnugjöfinni sem Eygló Ásta og félagar fengu fyrir hana. „Leikverkið snýst um  það sem eftir er af manneskjunni þegar minnið er farið,“ lýsir Eygló Ásta. „Því eins og segir í leikskránni: „Það er einhver kjarni, djúpt innra með okkur, í hverri manneskju, og það er það eina sem stendur eftir þegar minnið hverfur.“  Á sviðinu er Tom, sem er fimmtíu og fimm ára gam- all, á leið til veislu. Á meðan hann hefur sig til þá hreyfa við honum minningarslitur um vináttu, ást og sektarkennd.“ Við undirbúninginn sem stóð í tvö ár segir Eygló Ásta hópinn bæði hafa unnið með fólki sem er byrjað að missa minnið vegna öldrunar og fólki á ýmsum aldri sem er með Alz- heimer og aðra minnistengda sjúk- dóma. „Við frumsýndum verkið í byrjun árs í tilefni af International Mime Festival. Svo fórum við með það til Edinborgar. Við erum sex á sviði, fjórir leikarar og tveir tón- listarmenn,“ lýsir Eygló Ásta og segir sýninguna mjög krefjandi fyrir sig líkamlega. „Mikil hlaup um sviðið fram og til baka. Svaka keyrsla.“ Bæði hlegið og grátið Sýningin The Nature of Forgetting virðist ætla að verða langlíf því mikil ferðalög eru fram undan hjá Eygló Ástu og félögum í Theatre Re. „Við verðum á flakki með sýninguna um heiminn meira og minna næstu tvö árin,  bæði um Evrópu og Banda- ríkin. Svo er áhugi fyrir henni líka í löndum í Asíu og Suður-Ameríku,“ segir hún.  En er hópurinn þá ekki líka á leiðinni til Íslands? „Von- andi, við værum pottþétt til í það. Ísland er ekki svo langt undan. Við þurfum bara að finna rétta tím- ann. Þetta verður dálítið púsl af því við erum byrjuð á næsta verkefni. Svo erum við líka með stórt sett í sýningunni, mikið dót á sviðinu.“ Þetta síðasta útskýrir Eygló Ásta svo: „Í heilanum er staður sem heitir hippocampus (dreki á íslensku). Þar geymir fólk minningarnar, safnar þeim saman, svo þeirri heilastöð má líkja við verkstæði. Þennan stað sköpum við á sviðinu. Þar er fullt af hlutum og alls konar dóti sem við byggjum upp sem minningar en tökum þær svo í sundur og reisum aftur á rangan hátt til að sýna hvernig minnissjúkdómar fara með okkur.“ Í undirbúningsvinnunni var leik- hópurinn í þéttu sambandi við sér- fræðing á sviði minnissjúkdóma. „Það var prófessor frá UCL, stórum háskóla hér í London, sem gaf okkur vísindalegu hliðina og við notum hana til að búa til leikreglur á svið- inu,“ segir Eygló Ásta. „Bestu og skemmtilegustu verkfærin við sköp- un eru reglur og hindranir sem þarf að taka tillit til. Með þeim byrjaði vinnan okkar við verkið að mótast.“ Hún segir bæði hlegið og grátið á sýningunum. Eiginlega meira grátið. Það hafi þó ekki verið ætl- unin. „Maður býr ekki til eitthvað til að sækjast eftir harmi og vill helst ekki að fólk labbi út niðurbrotið. En þetta efni snertir marga og það eru margir sem koma til okkar eftir sýn- inguna og lýsa persónulegri reynslu af minnis sjúkdómum hjá sínum nánustu. Auðvitað skiptir máli fyrir okkur að fólk tengi við efnið. Þá erum við að gefa rétta mynd.“ Viðtökurnar komu á óvart Þið fenguð glimrandi dóma. „Já, við áttum ekki von á svona fínum við- tökum. Undir lokin vorum við, held ég, komin með fimm stjörnu dóma úr tólf mismunandi áttum.“ Hina miklu aðsókn að The Nature of Forgetting á Edinborgarhátíðinni segir Eygló Ásta meðal annars skýrast af því að verkið hafi verið valið sem boðssýning af menningarstofnun- inni British Council. „British Council velur tuttugu sýningar annað hvert ár á Edinborgarhátíðinni sem stjórn- endum leikhúsa alls staðar að úr heiminum er boðið á. Mjög margir aðstandendur sýninganna sækja um að komast inn í þann pakka. Ég held að á hátíðinni séu yfir 3.000 sýn- ingar af ýmsum toga þannig að það er erfitt að keppa um athyglina en við vorum svakalega heppin að vera valin í þennan hóp. Sóttum um með árs fyrirvara og fengum  sérstakan stimpil þegar við komum á hátíðina. Það var mikill heiður.“ Eðli gleymskunnar er samstarfs- verkefni hópsins sem að honum stendur, að sögn Eyglóar Ástu. „Það var ekkert handrit – og er ekki enn, nema í hausnum á okkur. Við vorum með ákveðið þema, ákveðna búninga og einhverja leikmynd, plús þessa vísindalegu hlið sem við feng- um hjá sérfræðingnum en notum mikinn spuna til að byggja upp sýn- inguna.  Í grunninn erum við alltaf með sama þemað en í hvert skipti sem við sýnum erum við að endur- uppgötva og upplifa. Þó sýningin sé erfið líkamlega þá er hún enn erfið- ari fyrir heilann því hún er alltaf að koma manni á óvart.“ Nýtt verk í smíðum Eygló Ásta flutti út til London haustið 2010 og ætlaði bara að vera í nokkra mánuði við nám í The International School of Corporeal Mime. „Ég hafði einhverja drauma um að ferðast en fann mig svo vel í skólanum svo ég var í honum í fjög- ur ár, fyrst að læra og svo að kenna. Skólinn flutti til Bandaríkjanna, ég fór með honum og varði þremur sumrum þar. Við opnuðum leikhús – nú er það þar og ég hér. Það hafði líka áhrif að ég gifti mig. Maðurinn minn, Ramon Ayres, er frá Brasilíu Fengu fimm stjörnu dóma úr tólf áttum Eygló Ásta Þorgeirsdóttir, leikari og leik- stjóri, er nýlega komin af Edinborgar- hátíðinni. Sýning sem hún tók þátt í sem höfundur og leikari, The Nature of Forgett- ing – eða Eðli gleymskunnar – sló þar ræki- lega í gegn og er á leið um heiminn. Eygló Ásta ætlaði bara að vera nokkra mánuði í London þegar hún fór þangað 2010 en þar er hún enn. MyNd/RaMoN ayREs Eygló Ásta er á stöðugu flugi um sviðið. MyNd/daNiLo MoRoNi Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Sjötíu ára hátíð Edinborgarhátíðin er yfirskrift fjölmargra leiklistar-,dans-, óperu-, og tónlistarviðburða og smærri hátíða sem fram fara á þriggja vikna tímabili síðsumars í Edinborg í Skotlandi. Hátíðin hóf göngu sína árið 1947, í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar, til að auðga menningarlíf Evrópu. Það hefur hún gert árlega síðan. AuðvitAð skiptir máli fyrir okkur Að fólk tengi við efnið. Þá erum við Að gefA réttA mynd. en við búum hér í London enn sem komið er og vinnum saman í  fyrirtækinu okkar, Ephemeral Ensemble.“ Nú berst talið aftur að nýja leik- verkinu sem  Eygló Ásta  minntist á í upphafi og ég bið hana að segja mér frá því. „Við Ramon erum búin að ganga með þetta verk sem hugar- fóstur í eitt og hálft til tvö ár. Nú er það loksins að fara á svið. Tveir menn eru á sviðinu, annar þeirra er Ramon, ég er að leikstýra og svo er tónlistarmaður, því við erum með lifandi tónlist, þannig að á æfingum erum við fjögur. Á ensku heitir það The Actualisation Show og snýst um það hvernig við finnum gildi lífsins þegar það virðist tilgangslaust.“ Þið eruð ekkert á láglendinu þegar þið veljið ykkur viðfangsefni. „Nei, við höfum ekki gaman af að búa til list nema hún hafi innihald og skipti fólk einhverju máli.“ 2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 3 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D 2 -B E 9 0 1 D D 2 -B D 5 4 1 D D 2 -B C 1 8 1 D D 2 -B A D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.