Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 55

Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 55
Viltu vinna að betri heimi? Íslandsdeild Amnesty International leitar að öflugri manneskju með brennandi mannréttindaáhuga í stöðu fjáröflunarstjóra. Skrifstofan er staðsett í Reykjavík. Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. www.amnesty.is. Við leitum að að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og hefur hugmyndaauðgi og skipulagshæfni. Hæfnis- og menntunarkröfur: • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi • Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi • Þekking og reynsla af greiningu tölulegra upplýsinga • Reynsla og þekking á sölu- og markaðsmálum er kostur • Góð tölvukunnátta • Mjög góð færni í íslensku og ensku • Hugmyndaauðgi og framsýni • Áhugi á mannréttindamálum Við bjóðum : • Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi • Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf • Starf, þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín • Möguleika á að vinna í alþjóðlegu samstarfi • Tækifæri á að vinna að framgangi mannréttinda í heiminum. Umsóknir skal senda á tgj@amnesty.is. Umsóknarfrestur er til 30. september 2017 Æskilegt er að umsækjandi getið hafið störf fljótlega. Upplýsingar um starfið veitir Torfi Jónsson framkvæmdastjóri í gegnum tölvupóst tgj@amnesty.is. Lausar stöður hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands Þrjár stöður LæknA í HeiLsugæsLu HsA Heilbrigðisstofnun Austurlands (HsA) óskar eftir þremur læknum til starfa. einum með aðalstarfsstöð í Fjarðabyggð, öðrum á egilsstöðum og hinum þriðja á Djúpavogi. stöðurnar veitast frá 01.01. 2018 eða eftir nánara samkomulagi og eru 100%, nema um annað sé samið. Frekari upplýsingar um stöður og umsókn Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands, en áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um kjör. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækj- endur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem HSA sinnir heilsugæslu á 11 starfsstöðvum, rekur Umdæmis- sjúkrahús Austurlands í Neskaupsstað og þrjár hjúkrunardeildir. Auk lækna í heilsugæslu, skurðlæknis og svæfingalæknis á sjúkrahúsinu starfar húðsjúkdómalæknir hjá HSA og þar er reglu- lega veitt ýmiss konar önnur sérfræðiþjónusta. HSA kemur að kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilis- lækningum. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu lækna með öðru fagfólki, þ.á.m. hjúkrunarfræðingum, lyfjafræðingi, ljósmæðrum, sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum. Helstu verkefni og ábyrgð • Almennar lækningar. • Heilsuvernd. • Vaktþjónusta. • Kennsla nema. • Þátttaka í vísindastarfi, gæða- og umbótaverkefnum. Hæfnikröfur • Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg. • Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur metnaður. • Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). • Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. • Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. • Íslenskukunnátta áskilin. nánari upplýsingar veita: Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is. emil sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og 895-2488, netf. emils@hsa.is. guðjón Hauksson, forstjóri HSA, s. 470-3051, 470-1437 og 774-5030, netf. gudjonh@hsa.is. umsóknarfrestur er til 16.10. 2017. www.hsa.is Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verk- fræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa um 240 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara. Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu öflugrar tækni- og verkfræðideildar. Deildarforseti ber ábyrgð á rekstri deildarinnar og leiðir akademískt starf hennar. Deildarforseti heyrir undir rektor og situr í framkvæmdastjórn háskólans. Forseti tækni- og verkfræðideildar Leitað er að einstaklingi með: – Doktorspróf á sviði verkfræði eða skyldra greina. – Reynslu af kennslu og rannsóknum á háskólastigi. – Hæfni til að vinna að stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar. – Reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum. – Hagnýta reynslu úr atvinnulífi eða af samstarfi við atvinnulífið. – Reynslu af alþjóðlegum vettvangi. Innan tækni- og verkfræðideildar er fengist við kennslu og rannsóknir í verkfræði, tæknifræði, iðnfræði, íþróttafræði, byggingafræði og orkuverkfræði. Boðið er upp á nám á diplóma-, BSc-, MSc- og PhD-stigi. Um 1200 nemendur stunda nám við deildina og eru fastir starfsmenn um 50 talsins. Tækni- og verkfræðideild er aðili að alþjóðlegu samstarfsneti um þróun tæknináms sem kallast CDIO (e. Conceive, Design, Implement, Operate). Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs (sigridureg@ru.is). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2017. 2 3 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D D 2 -C 8 7 0 1 D D 2 -C 7 3 4 1 D D 2 -C 5 F 8 1 D D 2 -C 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.