Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 55
Viltu vinna að betri heimi?
Íslandsdeild Amnesty International leitar að öflugri
manneskju með brennandi mannréttindaáhuga í stöðu
fjáröflunarstjóra. Skrifstofan er staðsett í Reykjavík.
Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst
fyrir því að mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar
þeirra. www.amnesty.is.
Við leitum að að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og
hefur hugmyndaauðgi og skipulagshæfni.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
• Þekking og reynsla af greiningu tölulegra upplýsinga
• Reynsla og þekking á sölu- og markaðsmálum er kostur
• Góð tölvukunnátta
• Mjög góð færni í íslensku og ensku
• Hugmyndaauðgi og framsýni
• Áhugi á mannréttindamálum
Við bjóðum :
• Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi
• Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf
• Starf, þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín
• Möguleika á að vinna í alþjóðlegu samstarfi
• Tækifæri á að vinna að framgangi mannréttinda í
heiminum.
Umsóknir skal senda á tgj@amnesty.is.
Umsóknarfrestur er til 30. september 2017
Æskilegt er að umsækjandi getið hafið störf
fljótlega. Upplýsingar um starfið veitir Torfi Jónsson
framkvæmdastjóri í gegnum tölvupóst tgj@amnesty.is.
Lausar stöður hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
Þrjár stöður LæknA í HeiLsugæsLu HsA
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HsA) óskar eftir þremur læknum til starfa. einum með aðalstarfsstöð í
Fjarðabyggð, öðrum á egilsstöðum og hinum þriðja á Djúpavogi. stöðurnar veitast frá 01.01. 2018 eða eftir
nánara samkomulagi og eru 100%, nema um annað sé samið.
Frekari upplýsingar um stöður og umsókn
Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags
Íslands, en áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að fá
frekari upplýsingar um kjör.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis
landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra,
Lagarási 22, 700 Egilsstöðum.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu
HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám,
starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum
sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist
á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækj-
endur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim.
Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá
Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm
heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Austurland er stórt og dreifbýlt með um 11 þúsund íbúa, þar sem
HSA sinnir heilsugæslu á 11 starfsstöðvum, rekur Umdæmis-
sjúkrahús Austurlands í Neskaupsstað og þrjár hjúkrunardeildir.
Auk lækna í heilsugæslu, skurðlæknis og svæfingalæknis á
sjúkrahúsinu starfar húðsjúkdómalæknir hjá HSA og þar er reglu-
lega veitt ýmiss konar önnur sérfræðiþjónusta. HSA kemur að
kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilis-
lækningum. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu lækna
með öðru fagfólki, þ.á.m. hjúkrunarfræðingum, lyfjafræðingi,
ljósmæðrum, sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennar lækningar.
• Heilsuvernd.
• Vaktþjónusta.
• Kennsla nema.
• Þátttaka í vísindastarfi, gæða- og umbótaverkefnum.
Hæfnikröfur
• Sérfræðimenntun í heimilislækningum er æskileg.
• Sjálfstæði í starfi, skipuleg og öguð vinnubrögð og faglegur
metnaður.
• Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu).
• Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og
sveigjanleiki.
• Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem
ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
• Íslenskukunnátta áskilin.
nánari upplýsingar veita:
Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga,
s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is.
emil sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470-3053 og
895-2488, netf. emils@hsa.is.
guðjón Hauksson, forstjóri HSA, s. 470-3051, 470-1437 og
774-5030, netf. gudjonh@hsa.is.
umsóknarfrestur er til 16.10. 2017.
www.hsa.is
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að
auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag
með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir
háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verk-
fræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í
Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er
áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa
um 240 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga
á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu öflugrar tækni- og verkfræðideildar.
Deildarforseti ber ábyrgð á rekstri deildarinnar og leiðir akademískt starf hennar.
Deildarforseti heyrir undir rektor og situr í framkvæmdastjórn háskólans.
Forseti tækni- og
verkfræðideildar
Leitað er að einstaklingi með:
– Doktorspróf á sviði verkfræði eða skyldra greina.
– Reynslu af kennslu og rannsóknum á háskólastigi.
– Hæfni til að vinna að stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar.
– Reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
– Hagnýta reynslu úr atvinnulífi eða af samstarfi við atvinnulífið.
– Reynslu af alþjóðlegum vettvangi.
Innan tækni- og verkfræðideildar er fengist við kennslu og rannsóknir í verkfræði, tæknifræði,
iðnfræði, íþróttafræði, byggingafræði og orkuverkfræði. Boðið er upp á nám á diplóma-, BSc-,
MSc- og PhD-stigi. Um 1200 nemendur stunda nám við deildina og eru fastir starfsmenn um
50 talsins. Tækni- og verkfræðideild er aðili að alþjóðlegu samstarfsneti um þróun tæknináms
sem kallast CDIO (e. Conceive, Design, Implement, Operate).
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri
mannauðs (sigridureg@ru.is).
Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2017.
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-C
8
7
0
1
D
D
2
-C
7
3
4
1
D
D
2
-C
5
F
8
1
D
D
2
-C
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K